Samgöngur á Austurlandi
Fimmtudaginn 09. febrúar 1989

     Jón Kristjánsson:
    Virðulegi forseti. Það hefur nú verið nokkuð á reiki til hvaða nefndar þessar tillögur um samgöngumál fara. Þess eru dæmi að þeim hefur verið vísað til allshn. Hins vegar hef ég sem einn af flm. þessarar till. í sjálfu sér ekkert við það að athuga að till. fari til fjvn., svo framarlega sem það er regla að tillögur um samgöngumál fari til þeirrar nefndar. Ég er ekki að biðja um neina sérstaka meðferð á þessari till. En ég hlýt þá að skoða það svo að það sé regla að allar tillögur um samgöngumál og áætlanir í þeim málum fari til fjvn. Ef svo er hef ég ekkert við það að athuga að fjvn. fái till. og legg það til.