Landbúnaðarráðherra (Steingrímur J. Sigfússon):
Virðulegi forseti. Það hefur orðið einhver smávægilegur misskilningur á því sem ég sagði. Til þess að verða nú ekki sakaður eða vændur hér um áframhaldandi hroka skal ég reyna að útskýra það af eins miklu lítillæti og mér er framast kostur. Það sem ég var að segja var þetta:
Samkvæmt hinni nýju flugmálaáætlun okkar verða allir þeir flugvellir sem hún tekur til byggðir upp í samræmi við staðla eða tilmæli Alþjóðaflugmálastofnunarinnar. Í þeim skilningi getum við þegar uppbyggingu þeirra lýkur kallað þá alþjóðlega flugvelli. Þeir fullnægja þessum alþjóðlegu tilmælum og mega þess vegna flokkast, hver í sínum stærðarflokki, sem alþjóðlegir flugvellir af þessari stærð. Síðan getum við gefið þeim formlegan status til viðbótar með því að gera þá að tollhöfnum. Þar með öðlast þeir aukið mikilvægi sem millilandaflugvellir og svo fer það sem sagt eftir stærðarflokkun þeirra og útbúnaði hverjir þeirra verða teknir upp í alþjóðlegar handbækur til leiðbeiningar fyrir flug sem fer hér yfir landið. Eins og stendur eru það einir sex flugvellir, sem ég taldi hér upp áðan, sem eru þegar og hafa verið um árabil skráðir í alþjóðlegar bækur þó að þeir fullnægi því miður ekki enn þá að öllu leyti tilmælum Alþjóðaflugmálastofnunarinnar. Þá er þetta vonandi skýrt.
Varaflugvöllur er svo í raun og veru íslenskt hugtak að mestu leyti sem ég veit ekki hvort við eigum að hætta okkur lengra út í að ræða hér við þennan takmarkaða tíma.
Ég vil líka leiðrétta það eða upplýsa það svo að hv. þm. og fyrrum verkalýðsleiðtogi, Guðmundur H. Garðarsson, viti af því að ég hef haft mikið samband við íslenska flugmenn út af þessum málum. Einhverjir þeir fyrstu sem komu á minn fund voru einmitt félagsmenn úr Félagi íslenskra atvinnuflugmanna. Síðar fékk ég til viðbótar öryggisnefnd Félags íslenskra atvinnuflugmanna og ég hef lagt sérstaklega til grundvallar í minni stefnumörkun álit og tillögur Félags íslenskra atvinnuflugmanna og öryggisnefndar þeirra samtaka vegna þess að það eru auðvitað þeir menn sem þekkja á sjálfum sér aðstæður í þessum efnum.
Ég vil svo líka benda á það að innan flugráðs eru margir flugmenn og flugráð og Flugmálastjórn eru hinir faglegu aðilar þessa máls sem ég ber fullt traust til og legg fram með glöðu geði og í fullu trausti þær tillögur og þær niðurstöður sem ég fæ frá þeim aðilum.