Alþjóðaflugvöllur á Egilsstöðum
Fimmtudaginn 09. febrúar 1989

     Menntamálaráðherra (Svavar Gestsson):
    Virðulegi forseti. Í dag hefur farið fram umræða um till. til þingsályktunar um flugvöll á Egilsstöðum. Undir þeirri umræðu hefur hv. 2. þm. Norðurl. e. verið í salnum mestallan tímann. Hann veit þess vegna að hæstv. samgrh. hefur þegar talað tvisvar og auk þess gert örstutta athugasemd og getur ekki talað oftar í þessari umræðu. Þá kemur hv. 2. þm. Norðurl. e. upp í ræðustól, veður að hæstv. samgrh. með svívirðingum, dylgjum og útúrsnúningi á ótrúlega ósmekklegan hátt þar sem hann ber m.a. fyrir sig heildarhagsmuni þess kjördæmis sem hæstv. samgrh. er auk þess kosinn til þings í.
    Ég satt að segja hélt að þeir menn sem hafa verið á þingi um hríð hefðu a.m.k. lært að sýna mönnum þá tillitssemi að vaða ekki fram með þessum hætti. Þegar hv. 2. þm. Norðurl. e. veit það líka að hæstv. samgrh. er fullfær um að svara fyrir sig við eðlilegar aðstæður þegar kostur er á að ræða mál með venjulegum hætti. Ég tel þetta ósmekklegt og tel hv. 2. þm. Norðurl. e. mann að minni fyrir vinnubrögð af þessu tagi. Vænti ég þess að við þurfum ekki að kynnast slíku hér á komandi vikum og mánuðum.
    Í annað stað, varðandi málið sjálft, vil ég segja þetta: Það var athyglisvert að heyra ræðuhöld hv. 2. þm. Norðurl. e. um þá áherslu sem hann leggur einhliða á Aðaldal í þessu sambandi. Hafnar hann því þá að Akureyrarflugvöllur verði útbúinn sem varaflugvöllur? Er hann á móti því? Er hann á móti Egilsstöðum í þessu sambandi? Sér hann engan annan möguleika en Aðaldal í þessu efni? Og úr því að hann er að veitast að hæstv. samgrh. út af Aðaldalsflugvelli er kannski rétt að benda á að hæstv. forsrh. og fyrrv. utanrrh. lýsti því yfir fyrir ekki alllöngu að varaflugvöllur yrði ekki í Aðaldal. Hér er því auðvitað ekki um nein ný tíðindi að ræða í þessu efni. Hins vegar hafa hæstv. núv. og fyrrv. samgrh. lýst því yfir að um myndugan héraðsflugvöll eigi að vera að ræða. En hvað er hér á bak við hjá hv. 2. þm. Norðurl. e., hvað er hér á bak við? Það er það að reyna að fá þjóðina til að trúa því að ameríkaninn vilji gefa varaflugvöll og að Íslendingar séu ekki menn til þess að byggja og kosta varaflugvöll. Að þjóðin sé svo smá og efnahagslega illa á sig komin að hún geti ekki komið hér upp venjulegum varaflugvelli sem þó kostar ekki nema á bilinu 100 og 200 millj. kr. til viðbótar við það sem þegar er gert ráð fyrir. Sá varaflugvöllur fyrir hernað sem menn hafa verið að tala um er allt annað mannvirki og hafa menn verið að nefna 10--15 milljarða kr. í þeim efnum. Og ég spyr: Er hv. 2. þm. Norðurl. e. að kalla slíkar hremmingar yfir Aðaldal? Vill hann kalla slíkar hremmingar yfir Aðaldal og nánasta umhverfi Aðaldals og Suður-Þingeyjarsýslu? Vill hv. 2. þm. Norðurl. e. virkilega fórna þessu umhverfi fyrir herflugvöll upp á 10--15 milljarða kr.? Nei, ég er viss um að hann vill það ekki. Hann fer hins vegar hér offari og reynir á furðu ósmekklegan hátt að koma höggi á hæstv. samgrh. Ég mótmæli vinnubrögðum af þessu tagi, jafnvel þó þau komi frá þingmönnum

stjórnarandstöðunnar.