Alþjóðaflugvöllur á Egilsstöðum
Fimmtudaginn 09. febrúar 1989

     Menntamálaráðherra (Svavar Gestsson):
    Virðulegi forseti. Ég þakka hv. 2. þm. Norðurl. e. fyrir þessa málefnalegu ræðu og það hversu víða hann kom við í henni varðandi samgöngumál, flugmál, öryggismál þjóðarinnar, efnahagsmál. Hann vék einnig m.a. á ótrúlega stuttum tíma að eiginfjárstöðu fyrirtækjanna í landinu og benti á það réttilega að í tíð ríkisstjórnar Þorsteins Pálssonar brann upp helmingur af eigin fé fyrirtækjanna. Það er því auðvitað ástæða til þess að þakka hv. þm. fyrir það lið sem hann veitir núv. ríkisstjórn ævinlega þegar honum tekst best upp í ræðustól.
    Það kom hins vegar fram í hans ræðu, sem er raunar kjarni málsins af hálfu fáeinna talsmanna Sjálfstfl., að þeir telja í raun og veru að aðalatriðið sé að ná Atlantshafsbandalaginu inn í þessa mynd. Það sé aðalatriðið að tengja þetta hernaðarhugsuninni. Mikið minna mál sé í raun og veru það sem snýr að okkur sjálfum, aðalatriðið er ef það mætti takast að flækja okkur inn í hernaðarnetið um leið og tekin yrði ákvörðun um varaflugvöll. Þetta er náttúrlega mjög athyglisvert því að á sama tíma og þjóðir heimsins eru að afvopnast standa menn hér í ræðustól, að ég segi ekki gráir fyrir járnum, tæta hár sitt og skegg og segja: herflugvöll, herflugvöll, jafnvel þó að það kosti það að fórna þurfi einhverjum mestu náttúruperlum þessa lands í þágu hugsjónarinnar um aukinn vígbúnað. Ég hygg að jafnvel í Bandaríkjaþingi séu ekki til jafnharðir haukar og sumir þeir sem hér birtast í ræðustól af og til.