Námslán og námsstyrkir
Fimmtudaginn 09. febrúar 1989

     Ólafur Þ. Þórðarson:
    Herra forseti. Það er kunnara en frá þurfi að segja að þannig stendur á með nefndir þingsins að ekki er samræmi milli nefnda í deildum og nefnda í Sþ. Af framangreindri ástæðu er starfandi nefnd í Sþ., allshn., sem hefur það hlutverk að taka við þeim málum sem vísað væri til ýmissa nefnda í deildum og í þessu tilfelli til samgn. Þær framkvæmdir sem nú standa yfir á Austfjörðum, á Egilsstaðaflugvelli, fóru á sínum tíma í gegnum allshn. Sþ. Þar voru þær ræddar og þar voru þær afgreiddar til þingsins. Ég tel ákaflega bagalegt ef málefni hoppa á milli nefnda á þann hátt, sem er að aukast mjög í þinginu, eftir tillögum flm. sem þá gjarnan ákveða að kjósa sér nefndir eftir geðþótta. Fjvn. sem slík hefur út af fyrir sig alveg ákveðin verkefni til að vinna að í þinginu. Auðvitað er hægt að taka sig til og leggja niður aðrar nefndir og vísa málum bara til fjvn. En ég tel að það sé nánast nauðsynlegt að forseti kynni sér nokkuð vel hvaða meginreglur hafa verið í gildi um vísun mála til nefnda, en láti ekki ávallt flm. komast upp með það að kjósa sér nefndir ef svo mætti komast að orði.