Kristín Halldórsdóttir:
    Virðulegur forseti. Hv. 1. flm. till. minnti í máli sínu hér áðan á tillögu sem Alþingi samþykkti á sl. vori um könnun á vinnu nemenda í framhaldsskólum og spurði hvað liði framkvæmd þeirrar tillögu. Því miður var hæstv. menntmrh. upptekinn við samtöl hér úti í salnum og hefur væntanlega ekki heyrt spurninguna. Ég hafði hugsað mér að bera hana fram á þingskjali en úr því að tilefni gafst væri ágætt að fá svör menntmrh. við því hvað líði framkvæmd þessarar tillögu um könnun á launaðri vinnu framhaldsskólanema.