Egill Jónsson:
    Virðulegi forseti. Það er vissulega þakkarvert að í hvert skipti sem hæstv. viðskrh. kemur í ræðustól skýrist enn betur hvað þetta mál er léttvægt. Í hvert sinn er sá virðulegi ráðherra kemur í ræðustólinn talar hann í stórum orðum um að þetta þurfi að gera til þess að ná fram þessu eða hinu, tryggja framgang þessa eða hins. Það er athyglisvert og reyndar vert að undirstrika að þær heimildir sem hann vitnaði til um samþykkt fyrrv. ríkisstjórnar eru í lögum enn. Út af þessu vildi ég aðeins segja að það sem hér á að gera er að kjósa varamenn og það eru strangari ákvarðanir um að kalla inn skýrslu. Efnislega er það þetta tvennt og það þriðja sem kemur til viðbótar er að orkuvinnslufyrirtæki verða að sæta verðlagsákvörðunum.
    Það er hárrétt, sem formaður fjh.- og viðskn. Ed. sagði áðan, að þetta er ekki flókið mál. Hér er því verið að gera mikið úr því hvað mikil örlög ráðist af því að þetta mál komist sem fyrst í gegnum Alþingi. Ég vildi hins vegar mega taka það skýrt fram, af því að formaður fjh.- og viðskn. þessarar virðulegu deildar var að fara hér yfir ummæli mín, og bið ég hann að taka vel eftir því ég geri ráð fyrir að hann ætli að bera þau fyrir sig í meðförum málsins í deildinni og við nefndarstörf, að ég sagði að sjálfsagt væri að greiða fyrir því að málið gengi til nefndar. Það var sú yfirlýsing sem ég gaf og ekki orð þar fram yfir. Ég tók það skýrlega fram að það hlyti að skýrast við meðferð málsins í nefnd hvernig þessar ákvarðanir mundu snerta orkuvinnslufyrirtækin og þá um leið hvers mætti vænta um áhrif til verðlækkunar eða stöðvunar á verðhækkunum á þeim vettvangi. Það er því að sjálfsögðu alveg augljóst að um þau efni hljóta menn að þurfa að fjalla við meðferð málsins. Málið er hins vegar ekki með þeim hætti að það ætti að vefjast sérstaklega fyrir mönnum, það er annað mál, en það hlýtur að verða upplýst með mjög skýrum hætti hvaða ávinningur er að þessu því að annað eru bara talslaufur í kringum þessi mál. Auðvitað er þetta gagnslaust að öðru leyti en því að hægt er að halda áfram af þessari núv. hæstv. ríkisstjórn í þykjustuleiknum við að stjórna þessu landi.