Skúli Alexandersson:
Virðulegi forseti. Ég þakka forseta fyrir að gefa mér tækifæri til þess að leggja nokkrar spurningar fyrir hæstv. iðnrh. og vekja athygli á því ófremdarástandi sem hefur verið hér á landi síðustu daga í dreifingu rafmagns, þ.e. rafmagnsleysi í meginhluta landsins, einnig að gefa mér tækifæri til að spyrja samgrh. um gildi símans sem neyðar- og hjálpartækis við þær aðstæður sem sköpuðust hér í gær og á undanförnum dögum.
Þá fyrst hæstv. iðnrh. --- Það er greinilegt að rafmagnið er ekki komið í lag enn þá.
Ég vona þó að hvorki ráðherrar né almenningur í landinu geri sig ánægða með að hlutir gerist síendurtekið eins og þeir gerðust í gær hér í Reykjavík og hafa gerst endurtekið síðustu daga úti um land. Ekki var um það að ræða að truflun væri á aðflutningslínum frá virkjunum né að truflun ætti sér stað á framleiðslu virkjananna sjálfra. Það sem virtist hafa gerst og almenningur var upplýstur um var að aðveitukerfið hefði brugðist. Búnaður a.m.k. sumra aðveitustöðva hafði ekki staðist veðraganginn um helgina. Frammi fyrir slíkum vandræðum og ófremdarástandi eins og var í gær hljóta margar spurningar að vakna.
Okkur hefur verið sagt að alls konar hringtengingar séu fyrir hendi, ef einn þáttur bilar í þessa átt, þá eigi það ekki að koma að sök því að þá taki við tenging úr hinni áttinni. Við höfum líka trú á því að á þessum vettvangi sé jafnan haldið uppi miklu forvarnarstarfi og ekki síst þegar hætta er yfirvofandi. Mér sýnist, því miður, að þessir þættir hafi ekki skilað sér til þess að koma að gagni nú.
Ég lít svo á að þegar rafmagn fer af byggð, hvort sem það er einn sveitabær eða þéttbýli, skapist neyðarástand. Starfslið rafveitna á Íslandi úti um land er fámennt og ekki alltaf búið tækjum til að komast milli staða eða bilunarstaða. Ég var með það í huga, virðulegi forseti, í gær og í morgun að spyrja hæstv. iðnrh. nokkurra gagnrýnna spurninga um þessi mál. Þær komu margar upp í hugann. Ég hef þó horfið frá því og spyr hæstv. ráðherra fyrst og fremst hvernig við er brugðist þegar vandræði koma upp, það skiptir kannski höfuðmáli, og hvernig staðan er í sambandi við spenni- og aðveitustöðvar. Spurningar mínar til hæstv. iðnrh. eru þessar:
1. Telja ekki forsvarsmenn orkumála að bregðast þurfi við líkt og neyðarástand sé fyrir hendi þegar rafmagn fer af byggðum klukkutímum og dægrum saman?
2. Er skipulegt samstarf milli starfsliðs Landsvirkjunar og rafveitna og Almannavarna og er samstarf milli vinnuflokka Rafveitunnar innbyrðis og milli þeirra og hjálpar- og björgunarsveita?
3. Er Vegagerð ríkisins kölluð til aðstoðar við starfsmenn rafveitnanna þegar ófærð á vegum tefur ferð viðgerðarmanna á bilunarstað? Svo tel ég að í sumum tilfellum hafi ekki verið gert nú á síðustu dögum.
4. Víða um land eru spennistöðvar sem eru illa
varðar og valda síendurteknum straumrofum. Er ekki von til að þar verði úr bætt?
5. Svo virðist sem ýmsar hringtengingar raforkuflutningslína hafi komið að litlu haldi vegna vandræða í aðveitustöðvum. Liggur fyrir hver orsökin er?
6. Eru ekki starfsmenn Landsvirkjunar og rafveitna þjálfaðir og búnir undir það með æfingum að bregðast við aðstæðum eins og gengu yfir síðustu dægrin?
Og í lokin spyr ég hæstv. iðnrh.: Eru ekki aðrar flutningaleiðir fyrir hendi fyrir raforku til Reykjavíkur og Reykjaness ef svipuð bilun og varð í gær endurtekur sig í Geithálsstöðinni?
Virðulegi forseti. Ég hef rétt lokið máli mínu og ætla nú að beina orðum mínum til hæstv. samgrh.
Ofan á það sem var að gerast í sambandi við raforkuna í gær fylgdi það að fólk var beðið að spara símanotkun, jafnframt að sum svæði væru algjörlega símalaus. Í sjónvarpsfréttum í gærkvöldi var okkur svo sagt að ein lítil dísilrafstöð hjá útvarpinu hafi myndað eina tengiliðinn sem hægt var að nota milli landshluta og hefur þó orðið að treysta því að þeir sem þurftu að nota þann tengilið sem öryggistæki hefðu undir höndum rafhlöðuútvarpstæki. Ég spyr því hæstv. samgrh. hvað hann segi um þessa stöðu hjá Landssíma Íslands.
Ég vil svo, virðulegi forseti, vekja athygli á því að það sem gerðist hér í gær á höfuðborgarsvæðinu er á sumum stöðum á landinu nokkuð algengur viðburður.
Ég hef lokið máli mínu.