Ástand í raforkumálum
Mánudaginn 13. febrúar 1989

     Guðrún Agnarsdóttir:
    Hæstv. forseti. Aðeins örfá orð í tilefni þessarar utandagskrárumræðu. Ég tel að rafmagnsleysið, þó að það hafi valdið ýmsum erfiðleikum, hafi samt sem áður verið holl áminning til okkar allra um það hversu lifnaðarhættir okkar allir og nútímaþægindi eru háð tækni sem við höfum lítil ráð yfir þegar náttúruöflin reisa sig. Hve mörg af þessum þægindum eru í raun rafknúin. Ég hygg að flestir hafi komist að því heima hjá sér í gær. Og ég er viss um að myrkrið og kertaljósin hafa þjappað fjölskyldunum saman. Það tengdi vissulega landshlutana saman í útvarpinu þar sem fólk fylgdist með fréttum frá öðrum landshlutum, t.d. unglingum í áætlunarbílum sem sátu fastir. Það hefur því að vissu leyti sína kosti að minna okkur á hversu ótrygg sú tækni er sem við reiðum okkur á á hverjum degi.
    Vissulega hefur þetta vakið upp margar spurningar og það hafa fengist góð svör við þeim hér frá þeim ráðherrum sem hafa verið spurðir. Mörg þau svör vekja reyndar fleiri spurningar. Það er íhugunarvert að hér á eyju úti í Norður-Atlantshafi skuli einangrun eða tengivirki vera þannig búin að þau þoli illa sjávarseltu en gott að heyra að það stendur til bóta nú þegar í haust.
    En það er ein spurning eða tvær reyndar sem ég vildi beina til ráðherra. Önnur er til hæstv. iðnrh. Ég vil spyrja hann hvort honum komi það ekki spánskt fyrir sjónir, því að öll komumst við að því í gær að heita vatnið þarf rafmagn til þess að dælurnar gangi og það komist inn í húsin okkar, hvort það komi honum ekki spánskt fyrir sjónir að á meðan Hitaveita Reykjavíkur hefur efni á því að byggja veitingahús sem snýst uppi á hitaveitutönkunum í Öskjuhlíð, þá hefur hún enn ekki séð sér fært að koma upp vararafstöð til þess að dælurnar gangi og heita vatninu sé miðlað til borgarbúa eða þeirra sem búa á höfuðborgarsvæðinu. Í öðru lagi vil ég beina spurningu, ég er ekki alveg viss hvert, vegna Almannavarna, heyrir það undir ... ? ( Gripið fram í: Dóms- og kirkjumálaráðherra, sem er fjarverandi). Dóms- og kirkjumálaráðherra sem er fjarverandi, en ég vil þá alla vega velta vöngum yfir því hvernig almannavarnakerfið starfar í svo algjöru rafmagnsleysi sem var og kemur sínum boðum til íbúanna ef t.d. útvarp fellur einnig út. Og ég vil líka velta því fyrir mér hvort ekki beri að halda almannavarnaæfingar sérstaklega með tilliti til þess að rafmagnsleysi ríki eða jafnvel meðan rafmagnsleysi varir.