Menntamálaráðherra (Svavar Gestsson):
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. 4. þm. Vesturl. fyrir að hefja þessa umræðu hér utan dagskrár. Það er satt að segja mjög þarft að farið sé yfir þessi öryggismál hér á hv. Alþingi. Ég vil leyfa mér að nefna eitt atriði til viðbótar sem enn hefur ekki verið rætt en nauðsynlegt er að hafa í huga og það er ástand langbylgjustöðvar Ríkisútvarpsins.
Það hefur verið sagt í mörg ár, a.m.k. eins lengi og ég hef verið hér í þinginu og sennilega lengur, að langbylgjusendirinn væri mjög illa á sig kominn og gæti í raun og veru farið í óveðrum hvenær sem væri. Ég bið ykkur um að hugleiða hvar við værum stödd með möguleika á sambandi við þjóðina alla ef þessi stöð bilar eða bregst. Nú er það ekki vegna þess að menn hafi ekki vitað um málið að það hafi ekki verið efnt til viðgerða eða endurbóta á þessari stöð. Það hefur oft, aftur og aftur verið vakin athygli á þessu við forráðamenn ríkisstjórnar og Alþingis, en kostnaðurinn við endurbætur á langbylgjusendinum er 400 millj. kr. ef hann á að endurreisa með þeim hætti að brúklegt sé til lengri tíma. Hér er m.ö.o. um að ræða risavaxið verkefni. En það er alveg augljóst að ef við viljum tryggja að í óveðri getum við náð sambandi frá einhverjum stað við þjóðina alla, þá verður þessi stöð að endurbyggjast og endurbætast frá því sem nú er. Það er óhjákvæmilegt verkefni.
Ég hef reyndar, virðulegi forseti, áður við svipaðar kringumstæður hér á hv. Alþingi og áður en ég kom í menntmrn. vakið athygli á þessu atriði. Menn hafa allir tekið undir það á þeirri stundu sem utandagskrárumræðan fór fram á hverjum tíma. En hratt flýgur stund og óðara eru menn farnir að huga að einhverjum nýjum verkefnum.
Ég ítreka þetta hér vegna þess að ég tel að það sé svo brýnt að við verðum að hafa það í huga þegar við ræðum um öryggi þjóðarinnar við þær aðstæður sem hér sköpuðust í gær.