Ástand í raforkumálum
Mánudaginn 13. febrúar 1989

     Sighvatur Björgvinsson:
    Virðulegi forseti. Það er einkum tvennt sem mér finnst athygli vert við þær umræður sem orðið hafa í kjölfar þessara rafmagnstruflana. Það er annars vegar það að í fjölmiðlunum, sem eiga að ná til landsins alls, gerðist ekkert í þessum málum fyrr en seinni hluta dags á sunnudag þegar rafmagnið fór af Reykjavík. Fyrr má segja að landsmenn hafi ekki fengið af því nema fáar fréttir að rafmagnsbilanir hafi orðið á Íslandi. Þegar þetta gerðist voru sum byggðarlög búin að vera án rafmagns í tæpa tvo sólarhringa. Og ástandinu þar held ég að hv. þm. Guðrún Agnarsdóttir mundi ekki líkja við sérstaka rómantík, þegar menn eru búnir að sitja ljóslausir og án upphitunar undir teppum í tvo sólarhringa, jafnvel þó að kertaljós væri. En það vill vera svo með fjölmiðlana okkar að það verður engin ófærð á Íslandi fyrr en fréttamennirnir komast ekki sjálfir á vinnustað. Það verður ekki rafmagnsleysi á Íslandi fyrr en rafmagnslaust er orðið í Reykjavík o.s.frv. Þetta er annað atriði sem ég vildi nefna, það að þegar Reykvíkingar urðu rafmagnslausir seinni partinn í gær, þá var ástandið orðið þannig víða úti á landi að menn voru búnir að sitja í kuldanum og myrkrinu í tvo sólarhringa.
    Í annan stað vekur það að sjálfsögðu athygli mína einnig hvað það var mikið af grundvallaratriðum í samgöngum og öryggi þjóðarinnar sem fór úr sambandi við þessa bilun. Menn hafa nefnt hér sendingar Ríkisútvarpsins og annarra fjölmiðla. Menn gætu nefnt hér varaafl t.d. hjá spítölum og sjúkrahúsum. Menn skulu huga að því að sennilega hefur allt flugöryggiskerfi dottið út við þessa bilun o.fl. o.fl. Það væri þarft, virðulegi forseti, ef menn ætla sér að reyna að læra eitthvað af þessu, ef það er hægt, þá væri það mjög þarflegt ef t.d. Almannavörnum væri falið að gera úttekt á því hvað úrskeiðis fór við þessar rafmagnsbilanir hér svo að menn gætu séð það svart á hvítu hvar veiku blettirnir eru í sambandi við samgöngur og öryggisgæslu ef eitthvað fer úrskeiðis vegna þess að það þarf ekki endilega að vera að það verði eingöngu ill veður sem geta sett þjóðfélagið svona gjörsamlega úr sambandi. Skemmdarverk mundu einnig geta orsakað svipuð vandkvæði og þau skemmdarverk hafa verið unnin ekki víðs fjarri okkur Íslendingum þó að okkur kunni að koma það framandlega fyrir sjónir að slíkt geti gerst hér.
    Að lokum, virðulegi forseti, held ég að ef marka má þau orð hv. 6. þm. Reykv. hve sælt væri að sitja í myrkri við kertaljós, þá hlytu íbúar heimabyggðar hv. alþm. Skúla Alexanderssonar að vera orðnir afskaplega rómantískt fólk því að eftir því sem einn þingbróðir hans annar hefur sagt hér, þá skera þeir sig úr um það við hve mikið kertaljós þeir hafa þurft að búa umfram aðra landsmenn.