Ástand í raforkumálum
Mánudaginn 13. febrúar 1989

     Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson):
    Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir að fá að svara hér spurningum sem fram hafa komið. Það er vissulega rétt að þessar rafmagnstruflanir minna okkur á hversu háð við erum náttúruöflunum --- fremur en tækninni eins og hv. 6. þm. Reykv. orðaði það. Ég vil þakka fyrir þær ábendingar sem hér hafa komið fram um það sem úr þyrfti að bæta og það er þá sérstaklega að bæta þurfi samstarf milli starfsmanna þessara orkustofnana og veitustofnana, Vegagerðarinnar og Almannavarna, og sú þörf sem fram hefur komið að mínu áliti við þessa atburði að huga að varaaflsstöðvum fyrir lífsspursmálin í landinu, þ.e. Borgarspítalann, eins og hv. 5. þm. Reykv. nefndi, dælustöðvar fyrir Hitaveituna, eins og hv. 6. þm. Reykv. nefndi. Hér er ekki fjallað um forgangsröð í framkvæmdum Hitaveitu Reykjavíkur, en vissulega er það umhugsunarefni sem hér var á drepið.
    Ég tel það líka mikilvægt að hér hefur greinilega komið fram hvaða landshlutar það eru sem eru sérstaklega í hættu þegar gerir svona vestanveður. Við þurfum svo sannarlega að huga að því, sérstaklega á Vesturlandi og á Snæfellsnesi, eins og hér hefur komið fram bæði í máli málshefjandans og hv. 2. þm. Vesturl.
    Um Geithálsstöðina ætla ég ekki að fara fleiri orðum, segi aftur það sem ég sagði áðan að úr mikilvægi hennar verður dregið í haust þegar Hamranesstöðin kemur sem verður með gaseinangrun en ekki hefðbundinni einangrun, undir þaki, en ekki úti í veðri og vindum.
    Um forvarnarstarfið ætla ég ekki að segja fleira. Ég þakka fyrir umræðuna.