Flm. (Ingi Björn Albertsson):
Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir till. til þál. á þskj. 89 um rannsókn á tíðni og umfangi kynferðislegrar misnotkunar á börnum. Flm. ásamt mér eru hv. varaþm. Ásgeir Hannes Eiríksson og hv. þm. Guðmundur Ágústsson. Tillagan hljóðar svo:
,,Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að skipa nú þegar starfshóp er kanni tíðni og umfang kynferðislegrar misnotkunar á börnum hér á landi og geri tillögur um samræmdar aðgerðir opinberra aðila til að sporna við slíku atferli. Jafnframt skal starfshópurinn gera tillögur um lagabreytingar á þessu sviði telji hann þörf á.
Starfshópurinn skal skipaður sérfræðingum á þeim sviðum sem mál þessi varða og skal hafa aðgang að þeim gögnum og upplýsingum hjá opinberum aðilum sem honum eru nauðsynleg við könnunina.``
Í grg. segir eftirfarandi:
,,Eins og öllum er vafalaust í fersku minni var nú nýverið sýnd hér á landi norsk heimildarmynd um kynferðislega misnotkun á börnum. Er ekki ofmælt að öllum almenningi hafi verið stórlega brugðið við þær upplýsingar sem fram komu í heimildarmyndinni og viðbrögð almennt einkennst af hryllingi.
Af umræddri heimildarmynd og umræðum, sem fylgt hafa í kjölfarið, hefur komið skýrt fram að ríkrar tilhneigingar gætir til að neita tilvist þessara brota hér á landi eins og raunar víða annars staðar. Má ef til vill segja að þessi sjónarmið séu eðlileg þar sem hér er um dulin afbrot að ræða sem eru af fjölskyldu- og tilfinningaástæðum sjálfsagt sjaldnast kærð. Því miður er hins vegar engin ástæða til að ætla að ástand þessara mála sé á annan veg hér á landi en annars staðar. Er því full ástæða til að fram fari heildstæð úttekt á þessum málum svo að móta megi heildarstefnu af hálfu opinberra aðila sem beinist ekki síst að fyrirbyggjandi aðgerðum, jafnframt því sem hugað verði að úrræðum til aðstoðar fórnarlömbum sem oftast geta ekki borið hönd fyrir höfuð sér. Þá er ekki síður ástæða til að leita leiða til að aðstoða brotamennina sjálfa sem oft á tíðum má ætla að séu haldnir annarlegum hvötum sem þeir ráða ekki við sjálfir án læknisaðstoðar í einhverju formi.
Framangreindum markmiðum verður ekki náð án þess að opinberir aðilar og almenningur viðurkenni vandann í reynd og nái að skilgreina hann. Markviss rannsókn af því tagi sem hér er lögð til færir okkur nær því marki og gerir okkur betur kleift að veita börnum okkar þá vernd sem þau þarfnast og eiga rétt á af hálfu samfélagsins.``
Þannig hljóðar grg. með tillögunni.
Misnotkun á börnum kynferðislega virðist vera mun meiri og algengari en fólk hefur hingað til gert sér grein fyrir. Þannig segir t.d. Gestur Ingi Pálsson barnalæknir, sem kom fyrir dóm vegna eins slíks máls, að kynferðisafbrot gagnvart börnum á þessum aldri væru algengari en áður var talið. Hann kvað það algengt að komið sé seinna til læknis með börn sem fyrir slíku verða og þá engar skýringar fyrir hendi. Slasist börn hins vegar á kynfærum með öðrum hætti
sé strax komið með þau til læknis og skýringar þá á reiðum höndum.
Geta menn yfirleitt sett sig í spor þess barns sem fyrir slíku verður? Ég held að það sé mjög erfitt en ekki útilokað. Hvernig skyldi slíku barni líða sem verður fyrir því að faðir þess misnotar það kynferðislega? --- Ég segi faðir vegna þess að í langflestum tilfellum eru það feðurnir sem eru brotlegir en ekki mæðurnar þó það komi einnig fyrir. --- Hvernig líður slíku barni sem oftast hefur engan til að leita til? Pabbi hótar og hræðslan ein veldur því að barnið þorir ekki að láta mömmu eða nokkurn vita. Bæði getur verið um hræðslu við pabbann að ræða og eins hræðsluna um að verða þess valdandi að pabbi verði sendur í burt, að fjölskyldan skiptist upp. Hvernig líður því barni sem ekki þorir að vera eitt heima með pabba? Hleypur sífellt út ef í það stefnir að þau verði ein heima saman. Þolandinn þjáist oft af hræðslu við að verða barinn, send að heiman eða þá að enginn trúi henni. Þar af leiðandi segir hún engum frá sifjaspellunum. Oft tryggir skömmin þögn hennar. Stundum er hún hrædd um að pabbi verði fangelsaður ef hún kemur upp um hann og þá sé enginn til að sjá fyrir fjölskyldunni. Hver sem ástæðan er lendir þolandinn í heimi leyndar, skammar, vonleysis og sektarkenndar. Í þeim heimi skynjar hún algjöra einangrun. Það er enginn sem hægt er að snúa sér til, ekki hægt að trúa neinum fyrir neinu, ekki hægt að biðja neinn um hjálp.
Ég ætla ekki að nefna nein dæmi máli mínu til stuðnings, en benda hins vegar þm. og öllum sem mál þetta bera fyrir brjósti á að fletta upp í nýútgefnum hæstaréttardómum merktum LIX,I, (59,1) á bls. 666 og lesa þar um mál nr. 339/1987, ákæruvaldið gegn X. Þar er um mál að ræða þar sem faðirinn hefur gerst brotlegur kynferðislega gagnvart tveim dætrum sínum og syni allt frá því að þau voru aðeins 5 og 6 ára og stundaði hann iðju sína í mörg ár áður en upp komst. Þessi faðir þarf á hjálp að halda engu síður en börnin. Sú hjálp er ekki fólgin í því að senda manninn inn á venjulega fangastofnun. Hann þarf á faglegri hjálp að halda, læknislegri.
Þá vil ég einnig benda áhugasömum þingheimi á að lesa bókina ,,Börnin svikin``
eftir Susan Forward og Craig Buck í ágætri þýðingu Guðbjargar Einarsdóttur sálfræðings, en þar er fjallað um þetta málefni frá öllum hliðum.
Ég vil einnig benda á athyglisverða grein í tímaritinu Mannlíf, útgefið í nóvember 1988. Þar er grein undir fyrirsögninni ,,Ég bíð þess aldrei bætur`` og fjallar hún um misnotkun stjúpföður á stjúpdóttur. Í lok þeirrar greinar segir viðmælandi eftirfarandi, með leyfi forseta:
,,Þegar þetta komst upp rétti hann mér 20 þús. kr. En peningar bæta ekki það sem stjúpi gerði mér. Hann eyðilagði líf mitt og ég fyrirgef honum það aldrei. Peningar bæta ekki líf sem hefur verið lagt í rúst.``
Það er einmitt þetta m.a. sem við erum að reyna að fá fram, þ.e. að til verði einhvers konar
stuðningshópar, athvörf þar sem endurhæfing fórnarlamba geti farið fram þannig að hægt sé að hjálpa fólki svo sem frekast er unnt, að laga líf þess fólks sem þá stundina er í rúst. Það er afar mikilvægt að fólk brenni ekki inni með reynslu sína og þjáist þar af leiðandi vegna hennar allt sitt líf, að allt þess líf mótist af þessari hörmulegu lífsreynslu.
Sem dæmi um það hvernig fórnarlamb lítur á sjálft sig var eitt slíkt spurt að því hvaða áhrif það héldi að sifjaspell hefði haft á sig. Svarið var á þessa leið: ,,Ímyndaðu þér ógeðslegasta kvikindi jarðar. Ég er enn þá ógeðslegri.`` Það er varla hægt að lýsa þessu betur.
Spurningin hlýtur að vera sú: Hvað höfum við gert til þess að reyna að spyrna við fótum, til þess að reyna að draga úr slíkum slysum? Því miður held ég að það sé næsta lítið. Ég álít að fyrirbyggjandi aðgerðum hafi ekki verið sinnt sem skyldi, en það eru náttúrlega þær aðgerðir sem eru mest aðkallandi. Má t.d. nefna að námsefni vantar algjörlega í grunnskólana. Það er þörf fyrir markvisst fræðsluefni til að fyrirbyggja ofbeldið. Eina fræðsluefnið sem ég veit um er bæklingur sem barnahópur Samtaka um kvennaathvarf gaf út og heitir ,,Þetta er líkami minn``, þar sem reynt er að kenna börnum að segja já eða nei eftir því hvort um er að ræða atlot eða áreitni.
Nauðsynlegt er að meðferð slíkra mála sé hraðað sem mest, að þau fái forgang í kerfinu. Að sama skapi er nauðsynlegt að heimilt sé að vitnisburður barna sé tekinn upp á vídeó og notaður í rétti þannig að þau þurfi ekki að mæta fyrir rétti og rifja þar upp atburði sem þau hafa reynt að gleyma. Þar sem þessu verður viðkomið á hikstalaust að beita þessari aðferð.
Þá má alveg varpa fram þeirri hugmynd hvort ekki sé orðið tímabært að setja á stofn sérstakan barnadómstól, dómstól er aðeins sinni málefnum barna.
Börnin og unglingarnir þurfa á stuðningshópum að halda engu síður en t.d. fórnarlömb nauðgana. Slíkir stuðningshópar þurfa að skiptast eftir aldurshópum þar sem það gefur auga leið að það er ekki sambærilegt hvort fórnarlamb er 5 ára eða 15 ára. Það þarf einnig að verða hugarfarsbreyting hjá þjóðinni því að fordómar og skilningsleysi hjálpa fórnarlömbum ekkert. Neyðarsími fyrir fórnarlömb sifjaspella ætti að vera til staðar þangað sem þau geta hringt og leitað ráða. Inn á spítalana vantar neyðardeild fyrir börn, sem lenda í slíku, á meðan þau eru að átta sig. Það þarf að spyrja börn mjög varlega og óbeint.
Eftir því sem mér hefur skilist hafa Norðmenn náð langt á þessari braut og fer vel á því að viðkomandi starfshópur leitaði eftir upplýsingum um það hvernig þeir taka á þessum málum.
Hæstv. forseti. Ég tel að til þess að gera sér grein fyrir stöðu þessara mála hérlendis sé nauðsynlegt að fá ýmsar upplýsingar frá opinberum aðilum eins og t.d. RLR, Rannsóknarlögreglu ríkisins, upplýsingar eins og t.d. hversu margar kærur hafa borist vegna sifskaparbrota á ákveðnu tímabili, hversu mörgum þeirra hafi lokið með dómi, hversu margar hafi verið dregnar til baka á sama tímabili og hvers vegna,
hversu margir einstaklingar hafi verið kærðir oftar en einu sinni eða tvisvar eða þrisvar o.s.frv., skipting afbrotanna milli þéttbýlis og dreifbýlis, skipting fórnarlamba milli kynja, fjöldi afbrota gagnvart samkyni. Hafa fórnarlömb leiðst áberandi meira út á braut ofneyslu áfengis eða lyfja en aðrir hópar? Hafa fórnarlömb beinlínis orðið geðveik, taugaveikluð, endað á hæli o.s.frv. umfram aðra hópa? Er sjálfsmorðstíðni hærri hjá þessum hópi ógæfufólks en öðrum hópum?
Hæstv. forseti. Svona er hægt að spyrja fjölmargra spurninga. En stærsta spurningin er samt þessi: Hvernig getum við komið í veg fyrir þessar hörmungar og hvernig er viðkomandi best komið til hjálpar, hvort heldur um er að ræða fórnarlambið eða afbrotamanninn, sjúklinginn?
Að lokinni umræðu mælist ég til að tillaga þessi verði send hv. félmn. til umfjöllunar.