Kynferðisleg misnotkun á börnum
Mánudaginn 13. febrúar 1989

     Salome Þorkelsdóttir:
    Hæstv. forseti. Hér er til umræðu viðkvæmt mál. Eins og fram hefur komið hefur orðið hér mikil umræða um kynferðisafbrot gagnvart börnum undanfarin ár og það ekki að ástæðulausu. Mörg þessara afbrota eru svo gróf og eðli þeirra slíkt að þau hljóta að setja mark sitt óafmáanlega á þá sem fyrir þeim verða og aðstandendur þeirra.
    Ef halda á uppi réttarríki hér á landi er nauðsynlegt að virðing ríki fyrir lögum og reglum en hætt er við að sú virðing þverri þegar í ljós kemur að t.d. sami maður kemst upp með að brjóta af sér gagnvart börnum áratugum saman eins og dæmin hafa sannað. Það verður að bregðast strax við afbrotum af þessu tagi, rannsaka þau til hlítar og ljúka allri meðferð þeirra á sem skemmstum tíma. Skjót málsmeðferð er sérstaklega nauðsynleg þegar börn eiga hlut að máli, en auðvitað á það við um öll mál sama eðlis. Börnin þurfa á öllu sínu að halda til að þroskast og komast til vits og ára. Eigi þau hins vegar um lengri tíma stöðugt yfir höfði sér upprifjun á þeim voðaatburði sem hratt þeim úr öruggri og áhyggjulausri barnæsku yfir í kvalafulla veröld er næsta víst að sá þroski verði ekki áfallalaus.
    Eins og hér kom fram í máli hv. 8. þm. Reykv. flutti ég á síðasta þingi frv. sem varðaði breytingu á lögum um meðferð opinberra mála, þ.e. um brot sem falla undir XXI. og XXII. kafla hegningarlaga um sifskaparbrot og skírlífisbrot, að þau fái sérstakan forgang fram yfir önnur hegningarlagabrot hvað varðar rannsókn og meðferð. Og góðu heilli þá varð þetta frv. að lögum. Hins vegar lagði ég fram fsp. þar sem óskað var skriflegs svars. Þessi fsp. var nokkuð ítarleg, hún var í fimm liðum og fjallaði um sams konar efni og hér er reyndar verið að fjalla um og vildi ég, með leyfi hæstv. forseta, leyfa mér að renna yfir þessa fsp. og þær skýringar sem komu fram í skriflegu svari hæstv. ráðherra þar sem það varpar nokkru ljósi á stöðu þessara mála eins og hún hefur verið fram að þessu. En fsp. hljóðaði svona:
,,1. Hve margar kærur hafa verið lagðar fram í kynferðisafbrotamálum gagnvart börnum á tímabilinu 1. jan. 1950 til 1. nóv. 1987?
    2. Hve margir einstaklingar hafa verið kærðir og hve oft hver þeirra?
    3. Hve langur tími hefur liðið frá kæru þar til dómur hefur gengið?
    4. Hve margar kærur bíða afgreiðslu nú og hvenær voru þær lagðar fram?
    5. Hvaða dóm hafa sakborningar fengið í hverju einstöku máli?``
    Í skriflegu svari hæstv. ráðherra kemur fram í greinargerð, með leyfi forseta:
    ,,Skýrslur um fjölda kærðra brota í einstökum kæruflokkum eru ekki til hér á landi. Á árinu 1976 var tekin upp samræmd kæruskrá við embætti sýslumanna og bæjarfógeta og frá stofnun Rannsóknarlögreglu ríkisins hefur verið færð kæruskrá. Upp úr þessum gögnum hefur ekki verið unnið og þar sem skrár þessar eru ekki tölvuunnar verður það ekki

gert án þess að upplýsingar hvers árs fyrir sig verði handunnar en það er mjög mikil og tímafrek vinna. Auk þess eru kynferðisafbrot gegn börnum ekki flokkur í kæruskrám heldur falla þau undir safnheitið kynferðisafbrot. Af þessu leiðir að auk þess að skoða kæruskrár yrði að fletta upp á hverju einstöku máli til að kanna hvort afbrotið beindist gegn börnum.
    Ráðuneytið hafði því eigi í höndum umbeðnar upplýsingar og eftirgrennslan hjá lögreglustjóraembættum leiddi í ljós að eigi væri unnt að afla þeirra án verulegrar fyrirhafnar. Því var gripið til þess ráðs að biðja um yfirlit fyrir skemmra tímabil og fylgir það hér á eftir. Jafnframt var ákveðið að koma gerð og úrvinnslu afbrotaskýrslna í betra horf í framtíðinni og nú er unnið að því verkefni. Upplýsingar fylgja um kærur fyrir tímabilið 1984--1987 frá flestum lögsagnarumdæmum, en frá Rannsóknarlögreglu ríkisins fylgir yfirlit yfir árið 1987. Í tilefni af þeim kærum sem bárust voru 11 mál send til ákvörðunar ríkissaksóknara.``
    Ég ætla síðan ekki að fara að lesa upp þessa lista sem komu fram. Ég vil leyfa mér að vísa, ef hv. alþm. hafa áhuga á, á þetta svar sem er 85. mál 110. löggjafarþings. En mér fannst ástæða til að koma með þetta innlegg inn í þessa umræðu því að hún varpar nokkuð skýru ljósi á hvaða meðferð þessi mál hafa fengið í dómskerfinu. Ég vil taka undir það sem hér hefur verið sagt að þetta er alvarlegt og viðkvæmt mál sem hér er um að ræða og það er brýn þörf á að þessi mál séu tekin til umfjöllunar ekki síst með forvarnarstarfið í huga.
    Ég get svo bætt því við að ég hef nú þegar lagt fram fsp. þar sem ég óska eftir að hæstv. dómsmrh. upplýsi um hvað líður úrvinnslu þeirra skýrslna og gagna sem getið er um í þessu skriflega svari.