Kynferðisleg misnotkun á börnum
Mánudaginn 13. febrúar 1989

     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Hv. flm. leitaði ráða hjá mér áðan til hvaða nefndar skyldi vísa þessu máli og ég sagði honum að hann skyldi vísa því til hv. félmn. Við nánari athugun hef ég komist að því að eðlilegra muni vera að vísa málinu til hv. allshn. og þannig mun málið verða borið upp með samþykki hv. flm.