Þorv. Garðar Kristjánsson:
    Hæstv. forseti. Við höldum nú áfram umræðunni um tilkynningu hæstv. forsrh. um efnahagsmál. Margs er að gæta í þessari umræðu og m.a. megum við ekki missa sjónar á góðærinu. Meiri sjávarafli barst á land á síðasta ári en nokkru sinni fyrr. Verðlag sjávarafurða var með allra besta móti. Olíuverðið var lágt. Viðskiptakjörin voru góð. Samt, já samt mótast umræða dagsins í dag ekki af þessum staðreyndum heldur af allt öðru. Umræðan mótast af gífurlegum erfiðleikum og vá sem er fyrir dyrum í efnahagsmálum þjóðarinnar. Og þessu er ekki um að kenna ytri ástæður sem okkur eru ósjálfráðar eða við höfum ekki vald á sjálfir. Þetta stafar af ástæðum sem við höfum í hendi okkar að ráða bót á. Við búum við vandræðaástand fyrir eigin aðgerðir. M.ö.o.: Þetta er sjálfskaparvíti og sjálfskaparvítin eru verst.
    Hver er ástæðan fyrir því hvernig komið er nú fyrir okkur? Hverjar eru orsakir vandans? Við vitum að orsakirnar eru margslungnar, en við vitum líka að í hnotskurn er vandinn sá að við lifum um efni fram. Þjóðarútgjöldin eru meiri en þjóðartekjurnar. Neitar einhver þessu í dag? Ég held ekki. Það er erfitt að neita staðreyndum. En þá verða menn að draga réttar ályktanir af staðreyndum. Það verður að ráðast gegn orsökum vandans. Í dag stöndum við frammi fyrir þeim kalda veruleika að í bráð er ekki annað ráð til að komast út úr erfiðleikunum og forða vá en að draga saman þjóðarútgjöldin. Það er ekki annar vegur en niðurfærsluleið í einu eða öðru formi.
    Til að tapa ekki áttum í moldviðri efnahagsmálanna í dag er ekki lítils um vert að missa ekki sjónar af þeirri vegferð sem skilað hefur okkur í það öngstræti þar sem við stöndum nú. Refilstígarnir eru margir en hinn breiði vegur til glötunar hefur legið um víðar lendur gengismálanna. Það hefur ekki farið fram hjá neinum. Allir tala um gengið. Það er orðið eins með gengið og veðrið, allir tala um það, en enginn gerir neitt í því. Annars eru gengismálin kapítuli út af fyrir sig. Í fáu hefur sú þjóðarárátta okkar Íslendinga betur lýst sér, að vaða ýmist í ökkla eða eyra.
    Sú var tíðin að gengislækkanir voru gerðar nánast eftir pöntun. Óraunhæfir samningar um kjör og fiskverð voru gerðir og síðan kom gengislækkun til að kjarasamningarnir mættu verða raunhæfir og standast í bili. Þetta var olían á verðbólgubálið. Við svo búið mátti ekki standa. Þessu varð að linna.
    Þá kom til hin svokallaða fastgengisstefna sem lofsungin hefur verið hin síðari ár. Var þá farið úr einum öfgunum í aðrar. Nú skyldi genginu haldið föstu hvað sem tautaði um verðlag innan lands og markaðsástand erlendis. En fastgengisstefnan er hjóm eitt og frómar óskir nema fylgt sé efnahagsstefnu sem skapar skilyrði fyrir stöðugu verðlagi, stöðugu gengi. Án þess eru flytjendur fagnaðarerindisins um fastgengisstefnuna miklir óþurftarmenn.
    Og hverjar eru svo afleiðingarnar af fastgengisstefnunni eins og hún hefur verið í framkvæmd? Við þekkjum það allir þingmenn. Staðreyndirnar blasa við öllum: Sjávarútvegurinn á

vonarvöl og samkeppnisiðnaðurinn líka og efnahagskerfið í heild í mestu erfiðleikum. Atvinnuöryggi brostið, atvinnuleysisvofan komin á kreik, samdráttur úti á landsbyggðinni, þensla á höfuðborgarsvæðinu, byggðajafnvægi raskað, gegndarlaus viðskiptahalli við útlönd og ógnvænleg erlend skuldasöfnun.
    Og hvað nú um ríkisstjórnina? Þegar erfiðleika ber að höndum er jafnan mest um vert hvernig við er brugðist. Þróunin í þessa mánuði síðan ríkisstjórnin kom til valda ber þess glöggt merki. Í stað þess að draga úr ríkisútgjöldunum er þenslunni haldið áfram og hún gerð möguleg með stórauknum sköttum. Í stað þess að rétta af viðskiptahallann er hann aukinn. Í stað þess að koma rekstrargrundvelli undir útflutningsgreinarnar er rekstrarstaðan veikt. Í stað þess að bæta eiginfjárstöðu fyrirtækjanna er eigið fé urið upp. Í stað þess að lækka skuldir fyrirtækja með traustum rekstrargrundvelli er með opinberum sjóðum bjástrað við að skapa fyrirtækjum á barmi gjaldþrots möguleika á að þyngja skuldabyrðina.
    Lengi má telja upp það sem ekki horfir til úrbóta, heldur er vottur um ranga stefnu. En auðvitað kennir margra grasa í umræðunni um hinn mikla vanda sem við stöndum frammi fyrir. Ýmsar nýtilegar hugdettur og tillögur geta að vísu komið frá ríkisstjórninni, en slíkar tillögur eiga það yfirleitt sammerkt að þær eru fremur um aukaatriði en aðalatriði. Þær eru líka oft og tíðum í engu samhengi eða samræmi við eitt eða annað. En þar er ríkisstjórninni vorkunn því að hún hefur enga raunhæfa heildarstefnu í efnahagsmálunum til að miða eitt eða annað við. Vottur þessa er einmitt ræða hæstv. forsrh. í þessum umræðum. Þar ægir öllu saman, nýtilegu og fánýtu, og enginn munur er gerður á aðalatriðum og aukaatriðum, skammtímaráðstöfunum og langtímaráðstöfunum, en upp úr stendur 2,5% gengislækkun. Framhaldi umræðunnar um gengislækkun er borgið. Þetta er hvorki fugl né fiskur.
    Það er þráttað fram og aftur um gengislækkun, með eða á móti gengislækkun. Það er lóðið. Klippt eða skorið, sögðu kerlingarnar og allir vita hvernig fór fyrir þeim. Aðalatriði í gengismálunum er að skapa skilyrði með markvissri efnahagsstefnu fyrir stöðugu gengi, jákvæðum viðskiptajöfnuði og tryggja
rekstrargrundvöll útflutningsatvinnuveganna og samkeppnisgreinanna. Ríkisstjórnin leggur ekki áherslu á þetta meginviðfangsefni, en ríkisstjórnin leggur áherslu á að hún sé á móti gengislækkun. Samt getur ríkisstjórnin ekki breytt þeim staðreyndum þegar gengið er fallið. Staðreyndir verður fyrr eða síðar að viðurkenna. Spurningin er aðeins með hverjum hætti við verður brugðist.
    Ríkisstjórnin hefur valið þann kostinn að lagfæra gengið lítillega hverju sinni, eins og hæstv. forsrh. komst að orði í yfirlýsingu sinni. Ríkisstjórnin fylgir ekki efnahagsstefnu sem skapar skilyrði fyrir stöðugu gengi. Á sama tíma og hástemmdar yfirlýsingar glymja við eyrum um fast gengi og andstöðu við gengislækkun leiðir efnahagsstefna ríkisstjórnarinnar ekki til stöðugleika gengisins, heldur til stöðugleika í

gengislækkunum án þess að tryggja viðunandi viðskiptajöfnuð, án þess að tryggja rekstrargrundvöll útflutningsatvinnuveganna og samkeppnisgreinanna.
    Þetta er boðskapurinn sem er að finna í tilkynningu þeirri um efnahagsmál sem hæstv. forsrh. hefur flutt okkur og við nú ræðum.
    Margt er harla kynlegt sem fram hefur komið í máli hæstv. forsrh. Stundum bregður hann á eins konar látbragðaleik. Af ýmsu er að taka. Hæstv. forsrh. segir: Ég vil ekki nýja kollsteypu með mikilli gengislækkun. Sér er nú hver yfirlýsingin. Hver vill nýja kollsteypu? Kemur nokkrum manni með óbrenglaða dómgreind slíkt í hug? Spurningin er ekki um gengislækkun sem gengur beint út í verðlagið og leiðir von bráðar til nýrrar gengislækkunar. Spurningin er um gengislækkun samhliða efnahagsstefnu sem leiðir til stöðugleika gengisins. Getum við hæstv. forsrh. ekki rætt málið á þessum grundvelli?
    Hæstv. forsrh. segir: Ég vil ekki gengislækkun nema allir leggi sitt af mörkum til útflutningsgreinanna, ekki bara launþegar. Ég hef gott hjartalag. Spurningin er ekki um gengislækkun til þess að níðast á launþegum. Spurningin er um gengislækkun samhliða efnahagsstefnu þar sem allir leggja sitt af mörkum til að skapa atvinnulífinu rekstrargrundvöll og launþegum atvinnuöryggi. Getum við hæstv. forsrh. ekki rætt á þessum grundvelli?
    Þannig má ýmislegt rekja frekar sem fram hefur komið í máli hæstv. forsrh.
    Tilkynning hæstv. forsrh. um efnahagsmál sem við nú ræðum er mikil vonbrigði. Ég ætla að þau vonbrigði séu ekki bundin við stjórnarandstöðuna. Það eru vonbrigði hjá ábyrgum hugsandi mönnum hvar í flokki sem þeir standa, svo mikið er nú í húfi, svo miklu varðar að bægja frá þeirri miklu vá sem þjóðin stendur nú frammi fyrir.
    Tilkynningin boðar ekki þau ráð sem nú þarf til að duga. Tilkynningin boðar þjóðinni vegferð um helslóðir. Það er boðað áframhald þeirrar röngu gengisstefnu sem er orsök fyrir hinum gífurlega viðskiptahalla og ógnvekjandi erlendri skuldasöfnun sem við stöndum frammi fyrir. Það á ekki að hverfa af rangri braut, heldur halda sem horfir og stefna þannig fjárhagslegu fullveldi þjóðarinnar í bráðan voða.
    Það er boðað áframhald þeirrar röngu gengisstefnu sem er orsökin fyrir því að undirstöðuatvinnuvegur þjóðarinnar og samkeppnisgreinarnar hafa ekki rekstrargrundvöll. Það á ekki að leiðrétta gengi til þess að hægt sé að vinna sig út úr erfiðleikunum. Það á með rangri gengisstefnu að halda áfram að vinna sig inn í erfiðleikana.
    Það er ekki boðað að ráðast skuli gegn undirrót vandans í efnahagsmálum þjóðarinnar. Þjóðarútgjöldin verða áfram meiri en þjóðartekjurnar. Hæstv. forsrh. er samt óspar á að lýsa yfir að hann vilji samdrátt í ríkisútgjöldum, hann hafi alla tíð verið með niðurfærsluleiðinni. Getur því hæstv. forsrh. með sanni sagt: Það góða sem ég vil gjöri ég ekki og það illa sem ég ekki vil gjöri ég.

    Það skal ekki dregið í efa að góður vilji standi á bak við tilkynningu forsrh. um efnahagsmálin. En illt er það hlutskipti hæstv. ráðherra að vera í svo slæmum félagsskap að geta fremur komið því fram sem miður fer en því sem til heilla horfir og verður þá tilkynning forsrh. að skoðast í því ljósi.
    Ég var á dögunum vestur á fjörðum í kjördæmi mínu. Það eru engin tíðindi út af fyrir sig. En um þessar mundir kemur maður alltaf hugsandi úr slíkum ferðum vegna ástandsins sem þar ríkir. Þar er almennur kvíði og ótti vegna ástandsins í atvinnulífinu og framtíðarhorfa. Frystihúsin eru rekin með tapi, útgerðin rekin með tapi og yfirþyrmandi erfiðleikar í rækjuvinnslunni. Áhrifin skila sér svo í rekstrarerfiðleikum í iðnaðar- og þjónustufyrirtækjum. Rekstrarstöðvanir og gjaldþrot eru þegar fyrir hendi hjá sumum og blasa við öðrum. Frystihúsin má greina í þrjá flokka. Í einum flokknum eru þau sem kastað hefur verið í glatkistuna, sem ekki eru hæf til meðferðar hjá Atvinnutryggingarsjóði. Í öðrum flokknum eru þau fyrirtæki sem eiga að hljóta náð hjá Atvinnutryggingarsjóðnum. Og í þriðja flokknum eru svo þau sem ekki hafa enn sótt um aðstoð frá Atvinnutryggingarsjóði. En öll eiga frystihúsin sammerkt í því að það er rekstrartap á þeim öllum, aðeins misjafnlega langt komið á vegferðinni til rekstrarstöðvunar og gjaldþrota.
    Forsvarsmenn fyrirtækjanna horfa upp á eignir sínar brenna upp og lífsstarf
sitt hrynja í rústir. Fólkið óttast framtíð einstakra byggðarlaga og að því verði allar bjargir bannaðar þegar atvinnuöryggið brestur. Efst er í huga margra að forða sér sem fyrst frá átthögum sínum og óðulum, leiðin liggur suður.
    Þannig er ástandið í mínu kjördæmi um þessar mundir. En ég veit að það er ekki einsdæmi. Slíkt ástand er að meira eða minna leyti úti um landsbyggðina þar sem byggðin á allt undir sjávarútveginum. Og það fer ekki milli mála að orsök þessa er að undirstöðuatvinnuvegi þjóðarinnar er ekki búinn rekstrargrundvöllur. Það er von að undrun, kvíði og ótti einkenni almenningsálitið um þessar mundir.
    Hæstv. forsrh. sagði í ræðu sinni í umræðu þessari að á síðasta ári hafi eigið fé í sjávarútvegi lækkað um helming. Það minnkaði úr 26 milljörðum í 13 milljarða. Ég ætla að slík eignaupptaka sé með eindæmum. Það er ekki nema von að spurt sé um hvort þetta sé leiðin til þjóðnýtingar og vekur slíkt að vonum til umhugsunar um þjóðnýtingu sjávarútvegsins.
    Mér kemur þá til hugar sagan um valdatöku kommúnista í Tékkóslóvakíu árið 1948. Þykir nú ýmsum kannski langt til jafnað. Má svo vera, en þó. Kommúnistar hafa ekki komist til valda nema með byltingu eða með hernaðarinnrás í viðkomandi ríki. Að vísu má segja að ein undantekning sé frá þessu. Það var í Tékkóslóvakíu. Það land hafði sérstöðu í hópi þeirra landa sem kommúnistar hafa komist til valda í. Það var háþróað lýðræðisríki. Í Tékkóslóvakíu var búið við þingræði eins og hér á landi og í öðrum

lýðræðisríkjum. Kommúnistar komust þar til valda eftir lýðræðislegar þingkosningar. Þeir náðu að vísu ekki meiri hluta á þingi en þar var einnig til staðar jafnaðarmannaflokkur. Foringi jafnaðarmanna, Fierlinger, tók upp samvinnu við Gottwald, foringja kommúnista, sem var voldugasti ráðherra í ríkisstjórninni, líkt og hæstv. fjmrh. Ólafur Ragnar í okkar ríkisstjórn nú. Það er í annála fært að Fierlinger hafi alls ekki verið kommúnisti, hann hafi verið jafnaðarmaður. Í raun og sannleika var hann þeirra Jón Baldvin, hæstv. utanrrh. En saman stóðu þeir Fierlinger og Gottwald á rauðu ljósi og tryggðu þannig valdatöku kommúnista í Tékkóslóvakíu.
    Ekki voru allir ánægðir með þetta þar í landi. Það voru bundnar vonir við ráðherrann Masaryk sem var hvorki jafnaðarmaður eða kommúnisti en vinsælasti stjórnmálamaður landsins. En honum var kastað út úr ríkisstjórninni, kastað með handafli út um glugga stjórnarráðsbyggingarinnar þar sem hann lét lífið samstundis. Ég geri raunar ekki ráð fyrir að slík ósköp eigi eftir að henda vinsælasta stjórnmálamanninn hér á landi, Steingrím Hermannsson, hæstv. forsrh. En fyrr má rota en dauðrota.
    Það var spurningin um þjóðnýtingu sjávarútvegsins sem kom mér til að víkja að valdatöku kommúnista í Tékkóslóvakíu. Það hefur nefnilega lengi verið athyglisvert hvernig menn báru sig að þar í landi við að þjóðnýta atvinnuvegina. Það voru engar hástemmdar yfirlýsingar eða lagaboð um þjóðnýtingu. Það var boðað að einkareksturinn skyldi halda áfram eins og ekkert hefði í skorist. En böggull fylgdi skammrifi. Stjórnvöld sáu einfaldlega um að fyrirtækin hefðu ekki rekstrargrundvöll. Þegar kvartað var undan því voru stjórnvöld öll af vilja gerð til að veita lán úr opinberum sjóðum til að forða greiðsluerfiðleikum og rekstrarstöðvun. Þannig var hægt að lengja hengingarólina eftir þörfum þar til svo var komið að eigendur fyrirtækjanna voru þeirri stundu fegnastir þegar ríkið tók kaleikinn frá þeim, tók sjálft við rekstrinum, þjóðnýtti fyrirtækin.
    Hæstv. forseti. Það er spurt nú: Er verið að þjóðnýta sjávarútveginn hér á landi? Er nema von að spurt sé?