Egill Jónsson:
Virðulegi forseti. Stjórnmálin hér á landi hafa sannarlega skýrst á síðustu dögum. Það er vissulega fróðlegt að bera saman þau viðhorf sem íslenska þjóðin stendur frammi fyrir nú og það sem sagt var fyrir 4--5 mánuðum. Ég mætti kannski minna á orð hæstv. forsrh. sem ég hygg að hann hafi viðhaft við blaðamann í september sl. þegar hann var spurður hvort þolinmæði hans gagnvart aðgerðum þáv. ríkisstjórnar væri á þrotum. Hæstv. forsrh. svaraði og sagði að þolinmæði sín væri þrotin fyrir löngu.
Þegar þessi orð voru töluð var að sjálfsögðu þegar orðið ljóst að Alþfl. og Framsfl. höfðu náð samkomulagi um það að rjúfa fyrrv. ríkisstjórn og stefna að myndun ríkisstjórnar sem hefði þá samsetningu sem nú er. Þegar að því kom að ríkisstjórnin segði frá sínum fyrstu aðgerðum og viðfangsefnum og öll þjóðin var þar vitni að lýsti hæstv. forsrh. því yfir að það væri meginviðfangsefni ríkisstjórnarinnar að fá hjól atvinnulífsins til þess að snúast. Forustumenn Framsfl. höfðu legið undir mikilli gagnrýni frá framsóknarfólki vítt um land um aðgerðarleysi fyrrv. ríkisstjórnar einmitt í atvinnumálum og þá sérstaklega að því er varðaði afkomu sjávarútvegsins. Það hlaut því að verða hlustað á það hver yrðu fyrstu viðfangsefni nýrrar ríkisstjórnar, þeirrar sem formaður Framsfl. stýrði. Og það duldist engum að þar átti meginviðfangsefnið að verða það að koma hjólum atvinnulífsins í gang.
Jafnframt tilkynnti hæstv. forsrh. það að auðvitað yrði ekki náð þar skarplegum rekstrargrundvelli öðruvísi en að gengi íslensku krónunnar yrði breytt og er þar eins og stundum áður um það að ræða að forsrh. hefur ekki getað staðið við orð sín vegna þess að hann hefur ekki haft stuðning fyrir því hjá samstarfsflokkunum. Síðan þessi orð voru töluð eru liðnir rúmir fjórir mánuðir og núna upp á síðkastið, í löngu jólaleyfi þingmanna eins og það er kallað, hafði hæstv. forsrh. orð á því að ríkisstjórnin hefði ætlað sér að taka umþóttunartíma í fjóra til fimm mánuði, eins og hann orðaði það, til þess að gera málin upp og koma með þær ráðstafanir sem dygðu og skýra með þeim hætti stefnu ríkisstjórnarinnar. Og það er einmitt það sem hefur verið gert. Ríkisstjórnin hefur gefið út tilkynningu um stefnu sína og framtíðaráform og íslenska þjóðin, ekki einungis við hér á Alþingi heldur þjóðin öll, hefur orðið vitni að því að þar er nánast ekkert nýtt að finna. Stefna ríkisstjórnarinnar er aðgerðarleysi eins og reyndar hefur verið lýst hér með glöggum hætti af síðasta hv. ræðumanni.
Það hefur vakið nokkra eftirtekt við þessa umræðu --- reyndar lá fyrir áður en hún hófst að það ætti fyrst og fremst að verða forsrh. sem talaði og þær fréttir bárust reyndar að það hefði orðið samkomulag um það innan stjórnarflokkanna að hann einn hefði orð fyrir ríkisstjórninni. Af einhverjum ástæðum hafa mál samt skipast þannig að hæstv. sjútvrh. fékk undanþágu og fékk að tala. Það kom reyndar þar fram með afar glöggum hætti hvað þessar svokölluðu efnahagsráðstafanir eru afar tilviljunarkenndar og
haldlitlar. Það verður ekki komist hjá því, m.a. út frá þeim ummælum sem hæstv. sjútvrh. viðhafði hér þar sem hann talaði um það að menn hefðu verið sérstaklega bjartsýnir á árinu 1986 og árinu 1987, að minna alveg sérstaklega á boðskap Framsfl. þá. Ég var m.a. vitni að því á framboðsfundum á Austurlandi og raunar var sá boðskapur fluttur hringinn í kringum landið. Þá sögðu forustumenn Framsfl. að stjórn þeirra á fiskveiðimálum hefði leitt til þess að tekjur af sjávarútvegi hefðu aukist um 500 millj. dollara á fjórum árum. Og það er vissulega ekki ástæða til að undrast þótt við slíkan boðskap verði menn bjartsýnir eins og raunin varð og hæstv. sjútvrh. sagði hér frá.
Nú held ég hins vegar að ástæða væri til þess fyrir Framsfl. að fara að reikna upp aftur því að frá því að þessi orð voru töluð hefur jafnt og þétt verið að ganga af sjávarútveginum. Aflaheimildir hafa verið minnkaðar ár frá ári og rekstrarskilyrði hans með öðrum hætti þrengd.
Það var líka athyglisvert að hæstv. sjútvrh. tók í raun undir það sem kom fram í ræðu formanns Sjálfstfl. þar sem hann impraði á því hvort ekki væri þörf og ástæða til að fara að líta nánar á hvernig fram gengi með stjórn fiskveiða. Það hlýtur að vera áhyggjuefni að núna ár frá ári þurfi að draga úr veiðiheimildum undir því kerfi sem átti að rækta upp miðin umhverfis landið og þannig að bæta í búi íslensks sjávarútvegs frá ári til árs í stað þess að þar dregst nú allt saman. Þetta er vissulega mikið áhyggjuefni. Það er þó ekki síður ástæða til að líta á það sérstaklega undir þeirri efnahagsstefnu sem nú er fylgt hvernig komið er fyrir bátaflotanum, alveg sérstaklega. Nú hygg ég að þar hafi þó verið tekið mið af þeirri stefnu sem fylgt hefur verið, þ.e. að frekar hafi dregið þar úr en að skipastóllinn hafi aukist. Nú liggur það fyrir að hvergi í sjávarútveginum er eins bágborið og hjá bátaflotanum þar sem tap er talið vera 13--14%. Og hver skyldi nú vera ástæðan? Auðvitað kemur þar að sjálfsögðu til, eins og ég hef þegar rætt, samdráttur í afla og þá sérstaklega hversu vertíðarfiskurinn er lakari en áður hefur verið. Auðvitað blandast inn í þetta það mikla og gegndarlausa smáfiskadráp sem átt hefur sér stað á síðustu árum. En það verður líka að horfa til þess að hagur bátaflotans hefur
ekki batnað um eins og hálfs árs skeið, nema reyndar varð smávægileg fiskverðshækkun fyrir tæpu ári síðan, vegna þess að hann hefur ekki notið þeirra gengisbreytinga, ekki þeirra verðhækkana sem hafa orðið vegna gengisbreytinga á sl. ári. Það er m.a. af þeirri ástæðu sem menn keppast nú við að flytja fiskinn beint á erlendan markað, annaðhvort með því að sigla og selja eða með því að landa í gáma og flytja hann þannig úr landi. Vinnslan hefur ekki rekstrargrundvöll og veiðiskipin sem skipta við hana eru þess vegna að sjálfsögðu í sérflokki að því er varðar það hvað þau eru verr sett en þegar hægt er að koma framleiðslunni á markað erlendis. Þetta hefur skýrst afar mikið í þessari umræðu og m.a. vegna þeirrar ræðu sem hæstv. sjútvrh. flutti hér við upphaf
þessarar umræðu.
Ég tek hér sérstaklega undir það sem kom hér fram í ræðu hv. síðasta ræðumanns, hvernig þessi efnahagsstefna leikur landsbyggðina alveg sérstaklega. Þar er svo komið að nálega ekkert atvinnufyrirtæki getur borið sig eða starfað með eðlilegum hætti og það sem er kannski allra alvarlegast í þeim efnum að bátaflotinn sem nærir atvinnulífið þar er nú verr settur en nokkur önnur grein í sjávarútveginum. Þetta er það sem er hættulegast við stefnu þessarar ríkisstjórnar.
Í þessari svokölluðu tilkynningu ríkisstjórnarinnar er ofurlítið minnst á landbúnað. Ég er reyndar sannfærður um að á bak við þá punkta sem þar eru fram settir liggur ekki nokkur einasta hugsun. En þegar hæstv. forsrh. er að tala núna um að taka eigi upp samninga við landbúnaðinn um ný framleiðslumarkmið verður ekki komist hjá því að spyrjast fyrir um hvað ríkisstjórnin hafi þar sérstaklega að markmiði. Það er útilokað annað, fyrst á annað borð er þó minnst á landbúnaðinn, að spurt sé með skýrum hætti hvað sé miðað við í þeim efnum.
Ég hef áður lýst því hér úr þessum stól hvernig landbúnaðurinn er leikinn núna af hæstv. ríkisstjórn og fyrir því eru engin dæmi það ég veit til. Ég minni á sérstaklega í þeim efnum hvernig þarfasta löggjöf landbúnaðarins er leikin, bæði jarðræktarlögin og búfjárræktarlögin og raunar margt af sama toga spunnið. Það má vera að Framsfl. þykist geta gert sig nokkuð góðan þar sem hann er búinn að koma þar meginábyrgðinni yfir til Alþb.
Virðulegi forseti. Ég legg sérstaka áherslu á það við þessar umræður að það skýrist hér síðar hvað er átt við með þessum orðum. Nú var það svo, svo að ég vitni enn einu sinni í ummæli hæstv. forsrh. sem hann viðhafði á sl. sumri, að hann gat þess sérstaklega að framsóknarráðherrarnir mundu ekki sitja í ríkisstjórn með buxurnar niðrum sig, eins og hann orðaði það. Hafi þær einhvern tíma verið neðarlega á ráðherrum Framsfl. eru þær það um þessar mundir og ég held að ástæða væri til þess að þeir færu að hyggja að því að hysja eitthvað upp um sig. Víst er um það að sú tilkynning ríkisstjórnarinnar sem hér hefur verið fjallað um ber þessi ekki merki að svo muni verða.