Sparnaðarátak
Mánudaginn 13. febrúar 1989

     Flm. (Friðrik Sophusson):
    Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir undirtektir hans við þessa þáltill. og veit að þar er á vísan að róa í stuðningi við málefni á borð við þetta. Hæstv. ráðherra þekkir þessi mál öðrum hv. þm. og hæstv. ráðherrum betur og ég fagna því sem kom fram í hans máli að það skuli vera ætlan hæstv. ríkisstjórnar að auka virkni og samkeppni á fjármagnsmarkaðnum og það sé einn aðaltilgangurinn með þeim tillögum sem hæstv. ráðherra hefur gert, ekki síst á fjármagnsmarkaðnum utan bankastofnana.
    Ég sé ástæðu til þess, virðulegur forseti, að nefna þetta sérstaklega hér vegna þess að sumir hæstv. ráðherrar, þar á meðal hæstv. forsrh., hafa látið að því liggja að vestrænar aðferðir, leikaðferðir, í efnahagsmálum eigi ekki við hér á landi. Ég hef leyft mér að skilja hæstv. forsrh. á þann veg að hann telji að hér á landi ríki of mikil samkeppni, of mikið frelsi á fjármagnsmarkaðnum. Sá skilningur sem ég hef lagt í þetta mál er sá skilningur sem ég held að flestir hafi lagt í ræðu hans, stefnuræðu sem hann flutti hér fyrr á þessu þingi, nánar tiltekið um mánaðamótin október--nóvember.
    Hjá hæstv. viðskrh. ber þó meira á öðru. Hann bendir á að það eigi að auka samkeppnina og auka virknina. Það mundi sjálfsagt heita á máli sumra hv. þm. að auka frjálsræðið og frjálshyggjuna á þessu sviði og ég fagna því. Það er alveg ljóst að íslenski fjármagnsmarkaðurinn utan bankakerfisins er að slíta barnsskónum. Hann er að sjálfsögðu gallaður um margt eins og ávallt vill verða þegar um ný atriði er að tefla í íslensku efnahagslífi. Það versta hins vegar sem gæti komið fyrir er að menn hyrfu frá þessu ráði og hyrfu til þeirra stjórnunaraðferða sem ríktu hér áður og fyrrum þegar stjórnmálamenn tóku að sér að skammta fjármuni til þeirra verka sem þeir töldu að væru þjóðinni hentugust. Ég held hins vegar að í þjóðmálaumræðunni að undanförnu og þeirri umræðu sem hefur átt sér stað um fjármagnsmarkaðinn hafi menn smám saman áttað sig á því að við getum lært heilmikið af öðrum þjóðum, þjóðum sem eru okkur skyldar að menningu og uppbyggingu á þessu sviði og vil ég þá sérstaklega nefna þær þjóðir sem næstar okkur eru eins og t.d. Norðurlandaþjóðirnar, Bretland og Þýskaland. Ég veit að hæstv. forsrh. hefur sérstaklega kynnt sér þessi mál, bæði í Svíþjóð og Þýskalandi, og ég veit að hann hefur ýmislegt lært á undanförnum vikum og mánuðum sem hefur orðið til þess að hann hefur nýja sýn á þessu máli. Ég tel að ræða hæstv. viðskrh. sýni það að hæstv. ríkisstjórn hefur nú betri skilning en áður á því að nauðsynlegt er fyrir okkur að auka virkni og auka samkeppni á fjármagnsmarkaðnum og markmiðið hlýtur að vera að ná því jafnvægi sem við keppum að, ekki síst jafnvægi í viðskiptum við aðrar þjóðir. Þetta tel ég að hafi komið fram í þessum umræðum. Ég hlustaði á hæstv. forsrh. tala á fundi um daginn hér í næsta húsi og mér fannst þá eins í hans máli koma fram skilningur á þessum viðhorfum þar sem hann einkum og sér í lagi nefndi gagnrýnisraddir sem fram höfðu

komið í viðtölum við einstaka aðila og ekki síst í Þýskalandi, ef ég man rétt.
    Þeir sem hafa verið að brydda upp á nýjungum, þeir sem hafa verið að velta því fyrir sér hvort við getum með einhverjum hætti þróað fjármagnsmarkaðinn á Íslandi áfram, hafa einmitt litið til þessara landa og ekki ætlast til þess að frelsi væri meira hér á landi en einmitt í þeim löndum sem til að mynda sósíaldemókratar stjórna í kringum okkar. Skal ég þar nefna Noreg og Svíþjóð svo að ég nefni dæmi sem menn þekkja talsvert. Vænti ég þess að þessi orð hæstv. ráðherra megi skilja á þann veg að hæstv. ríkisstjórn hafi nú áttað sig á því að það ber ekki að hverfa frá því sem gert hefur verið á þessu sviði, heldur koma málum þannig fyrir að við getum lært af okkar nágrannaþjóðum og nota þær vestrænu aðferðir sem eru notaðar í kringum okkur og hafa leitt til besta árangurs og bestu lífskjara í heiminum. Ef þetta er niðurstaðan, ef þessi ályktun sem ég dreg af þessum umræðum er rétt, þá tel ég að full ástæða hafi verið til þess að efna til þessara umræðna og tek undir með hæstv. viðskrh. að þetta mál þurfi að komast til nefndar og fá þar þá meðferð sem eðlilegt er og væntanlega leiðir til þess að menn hafi betri skilning á nauðsyn innlends frjáls sparnaðar en ella.