Guðmundur Ágústsson:
Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að hafa mörg orð um þetta frv., en mig langar að spyrja hæstv. viðskrh. hvernig hann telji 2. gr. þessa frv. koma út gagnvart, eigum við að segja ,,gráa`` og ,,svarta markaðnum``, en í 2. gr. segir: ,,Bankaráð fjallar einnig um vexti af skuldabréfum sem bankinn gefur út og þá vexti sem bankinn áskilur sér við kaup á viðskiptavíxlum og viðskiptaskuldabréfum. Við umfjöllun um vexti eða kaupgengi viðskiptavíxla og viðskiptaskuldabréfa skal bankaráð gæta þess að ávöxtunarkrafa bankans sé sambærileg við ávöxtun almennra útlána bankans í hliðstæðum áhættuflokkum.``
Ástæða þess að ég stíg hérna upp og geri þessa sérstöku grein að umtalsefni er sá ótti minn, hafi ég skilið þetta rétt, að þarna eigi að vera sambærilegir vextir á viðskiptakröfum ef hagnaður bankans á að vera sambærilegur á viðskiptakröfum og svo almennum útlánum. Ef þetta er réttur skilningur, þá er ég hræddur um að mikið af viðskiptum fari yfir á aðra markaði og þá þennan svokallaða ,,gráa markað`` og jafnvel þennan ,,svarta markað`` sem er nú alltaf fyrir hendi en hefur að vísu minnkað töluvert. En ef þær breytingar sem ríkisstjórnin boðar nú ná fram, þá býst ég við að hann stækki þegar allt er komið í framkvæmd. Ég ætlaði einnig að spyrja hvaða áhrif hæstv. viðskrh. telji að þetta komi til með að hafa á peningastreymi til bankanna og til fjármagnsmarkaðanna o.s.frv.
Þetta er það eina sem ég vildi gera hér sérstaklega að umtalsefni.
Um aðrar greinar vil ég frekar ræða í nefnd þegar málið kemur þar fyrir, en ég get lýst því hér yfir að ég get tekið undir 1. gr. og 3. gr. frv. Varðandi 5. gr. er það rétt, eins og hæstv. viðskrh. lýsti, að það hefur verið spurning innan bankakerfisins hvernig eigi að túlka þessa 65% reglu og mér sýnist að þarna sé verið að taka viss tvímæli af.