Guðmundur H. Garðarsson (frh.)
:
Virðulegur forseti. Það virðist vera erfitt að halda hæstv. ráðherrum Alþb. hér inni í deildinni. Þeir virðast hafa öðrum hnöppum að hneppa. Kannski það sé komið bréf frá framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins í sambandi við varaflugvöllinn og þeir séu að skoða það bréf. Það væri fróðlegt að spyrja hæstv. fjmrh. að því hvort þeir séu svo uppteknir að þýða bréfið af þýsku yfir á íslensku að þeir megi ekki vera að því að --- ja, ég er nú farinn að tala eins og bréfið sé komið.
En virðulegi forseti. Ég vildi fá það upplýst hvort hv. alþýðubandalagsráðherrar séu svo uppteknir í sambandi við varaflugvöllinn og einnig væri fróðlegt að vita hvort það væri komið bréf frá framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins í sambandi við framlög úr mannvirkjasjóði NATO til að byggja hér upp varaflugvöll. Eitthvað er það sem tefur hæstv. ráðherra Alþb. Það er greinilega mjög þýðingarmikið mál á ferðinni. Hv. þm. Skúli Alexandersson getur kannski upplýst mig um það. ( Forseti: Hæstv. fjmrh. var í deildinni rétt áðan og ég hef beðið hann að koma inn.) Það virðist vera mjög erfitt að fá hæstv. ráðherra Alþb. til að mæta í deildinni og það hefur hvarflað að mér hvort það hefur kannski komið bréf frá framkvæmdastjóra NATO. ( StG: Hann er mættur.) Ja, gott að hæstv. fjmrh. er kominn. Ég var með almennar vangaveltur um það hvort ástæðan fyrir því að hæstv. ráðherra Alþb. gætu ekki setið kyrrir í deildinni eða mætt gæti verið sú að það væri kannski komið bréf frá framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, Manfred Wörner, um að Atlantshafsbandalagið væri reiðubúið að leggja fram fé úr mannvirkjasjóði NATO í varnarflugvöll án skuldbindingar. Það væri fróðlegt að heyra hvort ráðherra gæti upplýst okkur um það. Alla vega eru hv. þm. og ráðherrar Alþb. svo uppteknir að þeir mega ekki vera að því að tala um þau frumvörp sem þeir leggja fram. Eitthvað mikið hlýtur að vera að gerast. ( Fjmrh.: Ég var að ná mér í grein eftir Þorstein Pálsson, leiðtoga Sjálfstfl.) Ég var að tala um hvort það væri komið bréf frá framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins varðandi afstöðu þess, hvort það gæti komið fé úr mannvirkjasjóði NATO til að byggja hér varaflugvöll án skuldbindingar. ( Fjmrh.: Hefurðu áhuga á að vita það?) Ja, það er aðalatriði að fá það staðfest að þetta bréf skuli vera komið. Ég vona að fjölmiðlamenn átti sig á því og snúi sér að ráðherrum Alþb. og spyrji hvort bréfið sé komið og þá hvaða vextir séu á þessum framlögum Atlantshafsbandalagsins. (Gripið fram í.) Kom það eitthvað illa við hæstv. ráðherra að ég skyldi minnast á þetta? ( Fjmrh.: Nei, nei.) Ráðherrann hlýtur að vera mjög upptekinn af öðru en því að sinna skyldum sínum hér. (Gripið fram í.) Ja, ef hæstv. ráðherra vill ræða hér um vestræna samvinnu er það velkomið. En það er ekki á dagskrá. Af tillitssemi við deildina og virðulegan forseta ætla ég ekki að ræða um það. En ég var að spyrja hæstv. ráðherra hvort það hefði komið bréf frá framkvæmdastjóra NATO um það
hvort mannvirkjasjóður Atlantshafsbandalagsins sé reiðubúinn til þess að leggja fé í varaflugvöll á Íslandi. (Gripið fram í.) Auðvitað verða þessir flugvellir, ef þeir verða mannvirki á borð við það sem kröfur eru gerðar til, varnarflugvellir ef á þarf að halda. ( Fjmrh.: Að sjálfsögðu.) Að sjálfsögðu, sagði hæstv. ráðherra. Hann skilur þýðingu varna. Auðvitað tekur hann undir það. ( Fjmrh.: Eins og aðrir flugvellir.) Það er gott. Já, eins og aðrir flugvellir.
Ég vil nú, virðulegi forseti, fá að snúa mér að efni þess sem ég ætla að ræða hérna. En það er greinilega mjög erfitt fyrir hæstv. fjmrh. að einbeita sér að því sem ég ætla að fara að tala um. ( Fjmrh.: Þú ert ekki byrjaður.) Ég var að víkja að fjármálum þjóðarinnar. Ég var að víkja að því hvernig menn ætluðu að reyna að byggja hér upp varaflugvöllinn og alþjóðaflugvöllinn. Það snertir það mál sem við erum að fjalla um hér, peninga- og bankakerfi, fjármál. ( Fjmrh.: Já, auðvitað.) Já, auðvitað er það rétt.
Virðulegi forseti. Ég lýsi ánægju minni yfir því að hæstv. fjmrh. skuli vera mættur. Ég skil það vel að hann sé mjög upptekinn þegar svona stórmál eru á ferðinni. Ég ætla ekki að ítreka mínar spurningar sem ég var með áðan, en ég gat um það í upphafi minnar ræðu, sem ég varð að gera hlé á vegna þess að ráðherrarnir voru ekki mættir, að það væri mjög þýðingarmikið að gera sér grein fyrir því að í samþykkt ríkisstjórnarinnar um peninga- og vaxtamál væru miklar mótsagnir og þversagnir. Í upphafi þessarar samþykktar er gert ráð fyrir því, sem og kemur fram í þeim frumvörpum sem við erum að fjalla um, bæði þessu og öðrum í tengslum við efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar, að þrengja mjög að samkeppnisaðstöðu innlendra íslenskra banka og fjármálastofnana með handafli og alls konar aðgerðum bæði á grundvelli laga og reglugerða á sama tíma og það segir í niðurlagi samþykktar ríkistjórnarinnar um peninga- og vaxtamál að það eigi að opna landið fyrir þeim ég vil segja straumum, sem nú eru í Vestur-Evrópu á sviði fjármála og peningamála, m.a. með þeim hætti að á sama tíma sem það á að binda hendur innlendra aðila, sérstaklega innlendra einkafyrirtækja, banka og fjármálafyrirtækja, á að hleypa hér inn erlendum aðilum sem eiga að keppa við hina innlendu aðila sem búa við þvinganir og skerðingu á sínu frelsi til samkeppni.
Það kemur fram í niðurlagi samþykktar ríkisstjórnarinnar um peninga- og vaxtamál, sem ég hef tíundað hér áður og þurft að gera, því miður, í fjarveru hæstv. fjmrh. en skal endurtaka, að á sama tíma sem verið er að takmarka samkeppni og frelsi innlendra aðila á að innleiða það sem þeir kalla aukna samkeppni með því að hleypa erlendum bönkum inn í landið. Ég legg áherslu á að ég er fylgjandi samkeppni, en auðvitað verða þá allir aðilar að hafa sama rétt og sömu stöðu, ekki hvað síst innlendir aðilar gagnvart erlendum, og þá er mjög þýðingarmikið að menn hafi í huga þegar fjallað er um þetta að hinir erlendu aðilar, sem hugsanlega kæmu inn í íslenska bankastarfsemi, búa við allt
önnur skilyrði en íslenskir bankar munu gera ef þau frumvörp verða samþykkt sem ríkisstjórnin hefur lagt fram. Þess vegna er mjög þýðingarmikið að menn geri sér grein fyrir því og þekki bakgrunninn, á hvaða grundvelli hin erlendu fyrirtæki starfa, á sama tíma sem verið er að takmarka og skerða rekstrargrundvöll íslensku fyrirtækjanna. Staðreyndin er nefnilega sú að í niðurlagi þessarar samþykktar segir á þessa leið og í því felst raunverulega að það er verið að skapa erlendum aðilum allt aðrar aðstæður á Íslandi en hinum innlendu, með leyfi forseta:
,,Á næstu missirum verði reglur um fjármagnshreyfingar og viðskipti með fjármálaþjónustu milli Íslands og annarra landa mótaðar á grundvelli tillagna ráðherranefndar Norðurlandanna um efnahagsáætlun Norðurlanda 1989--1992.``
Síðan segir í umræddri samþykkt ríkisstjórnarinnar sem hæstv. ráðherrar Alþb. hafa tekið þátt í að samþykkja:
,,Ríkisstjórnin leggur áherslu á að búa íslenska bankakerfið undir þær breytingar`` --- ég endurtek: ,,undir þær breytingar sem munu fylgja sameinuðum fjármagnsmarkaði Evrópu m.a. með því að auka hagkvæmni þess þannig að það geti staðist samkeppni við erlenda banka hvað varðar vaxtamun, tryggingar o.fl. Í framhaldi af því verður kannað hvort heimila megi viðurkenndum erlendum bönkum starfsemi hér á landi.``
Í þessu felst ákveðin stefnuyfirlýsing, stefnumörkun alveg ótvíræð. Það er ótvíræð stefnuyfirlýsing um að það eigi að aðlaga íslenskt peninga- og bankakerfi þeim breytingum sem nú eru að eiga sér stað í Vestur-Evrópu og m.a. vísað til efnahagsáætlunar Norðurlanda. Ég er sannfærður um að hv. þm. og jafnvel sumir hæstv. ráðherrar hafa ekki hugmynd um hvað felst í efnahagsáætlun Norðurlandanna. En ég efast ekki um að hæstv. fjmrh. viti hvað hann var að gera.
En það er út af fyrir sig fróðlegt að Alþb. skuli hafa samþykkt þessa stefnumörkun því að í henni felst það sem við mundum hafa kallað, sjálfstæðismenn, hámark frjálshyggjunnar. En ég vil taka fram að þó að Sjálfstfl. sé flokkur samkeppninnar hefur hann farið mjög varlega í að marka svona ákveðna afstöðu um að hleypa erlendum fjármálafyrirtækjum inn í landið og ekki hvað síst þegar maður hefur í huga að það er verið að þrengja að þeim íslensku fyrirtækjum sem hafa stundað þessa starfsemi á undanförnum áratugum.
Einnig mætti bæta því við að það hefur verið háttur íslenskra stjórnmálamanna, því miður, að takmarka athafnafrelsi þeirra aðila, sem eiga kannski yfir hvað mestu fjármagni að ráða á íslenskum peningamarkaði, sem eru aðilar vinnumarkaðarins með sínum lífeyrissjóðum. Allt of margir íslenskir stjórnmálamenn hafa talið að þeir gætu gengið á skítugum skónum ofan í samninga verkalýðshreyfingarinnar og aðila vinnumarkaðarins bæði í þeim efnum sem öðrum. En það er orðið tímabært að rifja það upp að á sama tíma sem verið er að tala um að hleypa hér inn erlendum aðilum
skuli Íslendingar ekki sjálfir mega ráða því hvernig þeir ráðstafa sínu eigin fé.
Forseti. Þar sem ég fullyrði að þetta mál hefur ekki verið nægilega kynnt, hvorki fyrir þingheimi í meðferð þessa máls né í fylgiskjölum, tel ég nauðsynlegt fyrir hv. alþm. sem og þjóðina að gera sér grein fyrir því hvað ríkisstjórnin var raunverulega að ákveða með þeirri stefnumörkun þar sem segir að það eigi að fara að samræma íslenska fjármálapólitík tillögum ráðherranefndar Norðurlandanna um efnahagsáætlun Norðurlanda og einnig að núverandi ríkisstjórn hyggst búa bankakerfið undir þær breytingar sem fylgja sameinuðum fjármagnsmarkaði Evrópu og er þá ekki lítið sagt.
Ég hef ekki orðið var við það á hinu háa Alþingi að menn hafi rætt mikið um þessi mál og enn minna kemur frá ríkisstjórninni um bakgrunn, forsögu og raunveruleikann í þessum efnum. Ætla ég því, með leyfi forseta, að fjalla nokkuð um það þingmönnum til fróðleiks og einnig til að gera hv. þm. grein fyrir því hvað er raunverulega á ferðinni.
Það er alkunnugt að Evrópubandalagslöndin tólf hafa það að markmiði að stofna til þess sem kallast frjálst flæði vöru, þjónustu, fjármagns og vinnuafls og hafa sett sér það sem meginmarkmið að þetta frelsi verði komið á árið 1992 á grundvelli svokallaðs innri markaðar. Áfangar að þessu markmiði innan Evrópubandalagsins hafa byggst í fyrsta lagi á Rómarsáttmálanum sjálfum, sem er frá 1957, en þar er fjallað mjög ítarlega um markmiðið í sambandi við fjármagn og fjármagnshreyfingar, útgáfu svonefndrar hvítbókar sem er bók um ákvarðanir og samþykktir Evrópubandalagslandanna árið 1985 og felur í sér
hvernig framkvæma á svokallaðan innri markað, hvernig á að fella niður öll landamæri milli þessara ríkja m.a. á þeim sviðum sem ég gat um áðan, á sviði vöru, þjónustu, fjármagns og vinnuafls samhliða því sem allt eftirlit fellur niður á landamærum milli ríkja Evrópubandalagsins. Sem sagt: markmiðið í Evrópubandalaginu er að það ríki innan bandalagsins algert viðskiptafrelsi árið 1992.
Þau ríki sem standa utan Evrópubandalagsins, þar á meðal Norðurlöndin og EFTA-ríkin, hafa að sjálfsögðu fylgst náið með þessari þróun og hafa í gegnum árin þurft að gera samninga um það með hvaða hætti þessi lönd hafa getað nálgast sjónarmið Evrópubandalagsins án þess að ganga inn í bandalagið og einnig hvernig þau þurfa að haga sínum málum vegna breyttra viðhorfa í samkeppninni við Evrópubandalagslöndin og einnig vegna aðgerða Evrópubandalagslandanna.
Í stuttu máli sagt er það grundvallarstefna Evrópubandalagsins að það verði vaxandi samræming á efnahagsstefnu aðildarlandanna og reyndar í meira eða minna mæli að samræma peningamálakerfið og peningamálastjórn þannig að um eina stjórn og eina stefnu sé að ræða árið 1992.
Frjálsræði í fjármagnshreyfingum er einn af hornsteinum stefnu EB. Öll EFTA-löndin hafa lýst sig reiðubúin að fylgja þessari stefnu og einkum hefur
mikil viðhorfsbreyting átt sér stað á Norðurlöndum í þessa veru á þessum síðustu missirum. Af umræddri samþykkt ríkisstjórnarinnar um peninga- og vaxtamál virðist benda til þess að núverandi ríkisstjórn hafi horfið frá þeirri stefnu sem fyrri ríkisstjórnir höfðu um að Íslendingar undirrituðu öll slík plögg, alla slíka stefnumörkun, hvort sem var í tengslum við aðild okkar að EFTA eða á Norðurlöndunum, með fyrirvara. Sem sagt: Núv. ríkisstjórn með alþýðubandalagsmenn innanborðs hefur fallist á að EFTA-löndin og þar á meðal Ísland séu reiðubúin að fylgja þeirri stefnu sem Evrópubandalagið er að móta og þar með Norðurlöndin og mun ég víkja að því á eftir.
Fjármagnsþjónusta á vegum erlendra aðila hefur verið margvíslegum takmörkum háð í EFTA-löndunum, ekki síst og reyndar einkanlega á Norðurlöndum. En nú verður ekki annað séð en að Norðurlöndin og þar með Ísland samkvæmt títtnefndri samþykkt ríkisstjórnarinnar séu reiðubúin að auka mjög frjálsræði á þessu sviði og um það snýst þessi umræða. Ég vil fá skýr svör við því frá hæstv. fjmrh. hvort Alþb. hafi tekið þátt í þessari stefnu með þeim hætti sem kemur fram í samþykkt ríkisstjórnarinnar og þeim forsendum sem hún byggist á.
Svo ég víki nokkrum orðum að viðhorfum EFTA-landanna til þessara mála, þá er gert ráð fyrir því í stofnsáttmála EFTA að efnahagsaðgerðir hvers aðildarríkis hafi áhrif á hag hinna og því beri EFTA-löndunum öllum að haga stjórn efnahagsmála sinna og fjármálum með þeim hætti sem stuðlar að því að markmið samtakanna náist. Þar af leiðandi og vegna þess að Norðurlöndin hafa verið mjög virkir þátttakendur í EFTA, þ.e. Noregur, Svíþjóð, Finnland og Ísland og hér áður fyrr Danmörk, hafa Norðurlöndin reynt að eiga með sér mjög náið samstarf á ýmsum sviðum efnahags- og peningamála.
Árið 1985 var samþykkt á þingi Norðurlandaráðs efnahagsáætlun fyrir Norðurlöndin fyrir tímabilið 1985--1988. Meginmarkmiðið áætlunarinnar var að styrkja efnahagslíf á Norðurlöndum og stuðla að því með því að ryðja úr vegi viðskiptahindrunum að löndin verði einn sameiginlegur markaður. Fjármálaráðherrar landanna, ég bið hv. þm. að taka eftir þessu, samþykktu í nóvember 1988 aðra áætlun fyrir tímabilið 1989--1992 og verður hún lögð fram á þingi Norðurlandaráðs í febrúar 1989, þ.e. í þessum mánuði. Meginmarkmið þessarar áætlunar eru svipuð og hinnar fyrri, þ.e. að styrkja efnahagslíf á Norðurlöndum og renna stoðum undir velferðarríkið, ryðja úr vegi viðskiptahindrunum á milli landanna og efla þannig sameiginlegan heimamarkað þeirra, jafnframt því, ég bið hv. þm. að taka eftir þessu, að undirbúa Norðurlöndin undir aukna samkeppni í kjölfar innri markaðar EB árið 1992, þar á meðal vegna breytinga á fjármagnsmarkaði. Það virðist samræmast vel samþykkt núv. ríkisstjórnar um að nú eigi að móta stefnu Íslands á sviði fjármálaþjónustu á grundvelli tillagna ráðherranefndar Norðurlanda um efnahagsáætlun Norðurlanda þannig að ríkisstjórnin virðist vera komin vel á veg með að þróa íslenskt
peninga- og bankakerfi hvað stefnumörkun áhrærir því sem tíðkast í nágrannaríkjunum á sama tíma sem hún gerir allt sem unnt er til að gera íslenskum fyrirtækjum á þessu sviði erfitt fyrir. ( Viðskrh.: Fjarstæða.) Það er ekki fjarstæða, virðulegi viðskiptaráðherra. Það er ekki fjarstæða. Það kemur greinilega fram í plöggum sem hafa fylgt þessum tillögum hæstv. ríkisstjórnar að það er ein grundvallarstefnuaðgerð ríkisstjórnarinnar að gera einkabönkum og íslenskum einkafyrirtækjum erfitt fyrir á sama tíma sem það á að styrkja stöðu ríkisbankanna. Þetta er viðurkennt í skjali sem ríkisstjórnin hefur látið frá sér fara. ( Viðskrh.: Seðlabankinn.) Hæstv. ráðherra segir já, að Seðlabankinn eigi að gera það. ( Viðskrh.: Nei, skjalið.) Skjalið er frá Seðlabankanum. En hvernig skyldi þetta verða til? Er það ekki yfirlýst stefna hæstv. fjmrh. að ef Seðlabankinn hlýði ekki efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar skuli Seðlabankinn fara að vara sig og þeir sem þar starfa,
vægt til orða tekið? Það skýtur því skökku við að hæstv. bankamálaráðherra er að skjóta sér á bak við Seðlabankann vegna þess að það er staðreynd að núv. ríkisstjórn ætlast til þess, og það má segja út af fyrir sig að það sé ekki óeðlilegt, að Seðlabankinn taki tillit til efnahagsstefnu ríkisstjórnar. Hins vegar á auðvitað Seðlabankinn að vera sem sjálfstæðastur, ég tek undir það, en það er hann því miður ekki á meðan núverandi stjórnarsamstarf er og ég veit að hæstv. viðskrh. harmar það eins og ég að Seðlabankinn skuli ekki vera sjálfstæðari gagnvart þessari ríkisstjórn.
En snúum okkur, virðulegi forseti, að Evrópubandalaginu og því hvernig Norðurlöndin hyggjast aðlaga sig þeirri þróun sem er að eiga sér stað í sambandi við fjármagnshreyfingar og sameiginlegan markað Evrópubandalagsins. Í samþykkt ríkisstjórnarinnar er lögð alveg sérstök áhersla á að búa íslenska bankakerfið undir þær breytingar sem munu fylgja sameinuðum fjármagnsmarkaði Evrópu. Þetta er stóra málið. Þetta er það mál sem þessi umræða mun snúast um, ekki bara á Íslandi heldur líka í Vestur-Evrópu, á næstu árum því það eru fjármálin, það er fjármagnsmarkaður Evrópu sem kemur til með að ráða úrslitum um það hvort það markmið næst hjá Evrópubandalaginu að mynda þann innri markað 1992 sem að er stefnt. Við skulum þess vegna líta á um hvað við erum að tala og hvernig þetta tengist allt, Ísland, Norðurlöndin, EFTA, Evrópubandalagið og núv. hæstv. ríkisstjórn og stefnubreyting Alþb. gagnvart því umhverfi sem við Íslendingar lifum í. Ég tek það fram sem sjálfstæðismaður að ég fagna því að sjálfsögðu ef Alþb. vill nálgast Evrópu með þeim hætti sem kemur fram á þessu plaggi, en þá er líka nauðsynlegt að fá það skýrt og skorinort fram hér í orðum og framsögn hæstv. ráðherra Alþb.
Það er nefnilega ekki hægt að slíta þetta allt í sundur og segja: Nei, við ætlum svo, hvað sem öllu líður í því sem við segjum, að slíta Ísland úr tengslum. Við ætlum að haga þessu eins og okkur
hentar í það og það skiptið. --- Það er ekki framkvæmanlegt, hæstv. fjmrh. Það er nefnilega ákveðið samhengi í hlutunum og gerist þannig að það tekur langan tíma að ákveða og framkvæma og þegar maður er einu sinni búinn að taka ákvörðun og taka stefnu sem þessa verður að standa við hana. Það þýðir ekkert að hætta og segja: Nei, nú hentar mér ekki lengur að taka þátt í þessu.
Samhengið er: Ísland, Norðurlöndin, EFTA, Evrópubandalagið. Og ræðum svo um fjármálaþátt þessara mála. Það hefur ekki verið gert mikið á hinu háa Alþingi. Hér hafa menn verið að leika sér að því að tala um blýanta og ómerkilega hluti sem auðvitað á ekki að ræða á þingi. (Gripið fram í.) Ég talaði um blýanta. Ég talaði ekkert um hvernig þeir eru notaðir. (Gripið fram í.) Hér eru menn að tala um daginn og veginn. En þegar talað er um þetta mál er verið að tala um raunveruleikann. Þá erum við að tala um það hver verður staða Íslands í þeirri þróun sem fram undan er og ég vil taka fram að ég efast ekki um að bæði hæstv. ráðherra Alþb. sem og aðrir hæstv. ráðherrar og við öll viljum auðvitað gæta stöðu Íslands sem best.
En við skulum samt gera okkur grein fyrir því þegar við erum að fjalla um þetta og þegar við erum að gera samþykktir og taka afstöðu hér á þingi hvers við erum raunverulega að taka afstöðu til. Ríkisstjórnin er búin að taka afstöðu til þessa. Það á að takmarka samkeppnisaðstöðu innlendra aðila, styrkja stöðu ríkisbankanna, þrengja stöðu einkabankanna. Það er liður í því að glíma við hinn svokallaða gráa markað. Ég er ekki trúaður á þessa leið. Ég hefði frekar, hefði ég verið í hæstv. ríkisstjórn, látið lífeyrissjóðina fá frelsi til að fara með allt sitt fjármagn inn í bankakerfið. Þá hefðu vextirnir lækkað. Það munar um minna en það ef það sem sparað er, hvorki meira né minna en 10% af vinnulaunum sérhvers vinnandi manns í landinu, allt það fjármagn hefði komið inn á íslenskan peningamarkað í samkeppni við aðra peninga. Þá hefðu vextir lækkað. En með þeim lagaþvingunum og öðrum þeim aðgerðum sem nú er stefnt að gerist það því miður ekki. Lífeyrissjóðakerfið, sem er með ca. 70 milljarða af sparnaði Íslendinga á sama tíma sem allur sparnaður í bankakerfinu er 80--90 milljarðar, býr við lagaþvinganir hvað varðar ráðstöfun fjármuna sinna.. Svo tala menn um samkeppni og frelsi. Þeir beita bara ekki réttum aðferðum til að framkalla samkeppnina. Fyrst á að gefa sínum eigin þegnum frelsi, síðan skulum við skoða hvort við hleypum erlendum aðilum að til að keppa við okkur. Þess vegna er mjög þýðingarmikið að þegar maður er að skoða samþykkt ríkisstjórnarinnar í peningavaxtamálum, sem felur í sér að ríkisstjórnin vill fara inn á þær brautir sem ráðherranefnd Norðurlanda hefur farið inn á og á sama tíma sem ríkisstjórnin markar þá stefnu að það eigi að fylgja stefnu um sameinaðan fjármagnsmarkað í Evrópu, að gera sér grein fyrir því hvernig þessi fjármagnsmarkaður er.
Í Evrópubandalaginu eru fjármagnshreyfingar
óheftar. Þetta er einn af hornsteinunum í áformum bandalagsins um að skapa það sem þeir kalla óskiptan heimamarkað. En hinir eru óheft vöru- og þjónustuviðskipti og réttur til atvinnuþátttöku í hvaða landi bandalagsins sem er. Afnámi á höftum fyrir fjármagnshreyfingar er samkvæmt hvítbókinni frá framkvæmdastjórn Evrópubandalagsins til ráðherraráðsins í júní 1985 ætlað að þjóna þrennu:
1. Stór sameiginlegur markaður fyrir vöru, þjónustu og vinnuafl kallar á sameiginlegan markað fyrir fjármagn svo einstaklingar og fyrirtæki hafi aðgang að eins hagkvæmri fjármálaþjónustu og kostur er, en takmarkanir á fjármagnshreyfingum koma í veg fyrir það. Þessu hefur hæstv. ríkisstjórn gert sér grein fyrir, alla vega hæstv. banka- og viðskrh. Þess vegna hefur honum greinilega tekist að koma þessu ákvæði inn í samþykkt ríkisstjórnarinnar.
2. Í sambandi við Evrópubandalagið krefst sameiginlegur markaður fyrir vöru- og þjónustuviðskipti stöðugleika í gengis- og vaxtamálum. Það er væntanlega líka stefna núv. ríkisstjórnar að koma á stöðugleika í vaxtamálum. Öll viljum við lækka vextina, það er grundvallaratriði, og við viljum auðvitað sem mestan stöðugleika í gengismálum. Með því skapast skilyrði til að draga úr takmörkun á fjármagnshreyfingum sem hvetur að sínu leyti til samræmdrar efnahagsstefnu hvort sem það er í Evrópubandalaginu eða innan EFTA sem Ísland er aðili að.
3. Í sambandi við grundvallarstefnu Evrópubandalagsins má nefna að um leið og skil á milli fjármagnsmarkaða í aðildarríkjunum eru afnumin skapast forsendur til að nýta ,,sparifé innan EB`` sem best.
Í Rómarsáttmálanum eru ákvæði um afnám á takmörkunum á fjármagnshreyfingum á milli landi og á sjöunda áratugnum var nokkur þróun í þá átt, m.a. á sviði beinna fjárfestinga og skammtíma- og langtímalána vegna vöruviðskipta. Hæstv. bankaráðherra hrósar sér af því að hafa náð nokkru fram í sambandi við erlend viðskipti hvað varðar skammtíma vöruviðskiptalán og taldi það í ræðu, er hann flutti nýlega, sem er rétt, vera skref í átt til að nálgast sjónarmið Evrópubandalagsins.
Í Rómarsáttmálanum eru ákvæði sem heimila aðildarríkjunum að setja hömlur á fjármagnshreyfingar við tilteknar aðstæður og mörg aðildarríkjanna beittu þessu ákvæði á áttunda áratugnum, en nú er að verða breyting á þessu. Í hvítbókinni svonefndu, sem er mjög þýðingarmikið plagg í sambandi við þessi mál, frá 1985 er m.a. gert ráð fyrir að koma á fullu frjálsræði í fjármagnshreyfingum jafnframt því sem réttur til að veita fjármálaþjónustu verði rýmkaður og peningakerfi Evrópu styrkt. Það er stefna núv. ríkisstjórnar að skapa viðurkenndum erlendum bönkum heimildir til að starfa hér á landi. Þetta virðist vera nokkuð í takt við það sem Evrópuríkin eru að gera.
Hjá Evrópubandalaginu er gert ráð fyrir því að til þess að algjört frelsi komist á verði þessum hömlum á fjármagnshreyfingum aflétt í tveimur skrefum til
viðbótar við það sem þegar hefur verið gert.
Í ályktun ráðherraráðs, sem var samþykkt í nóvember 1986, er kveðið á um heimildir til lánveitinga í tengslum við öll venjuleg viðskipti, kaup á hluta- og verðbréfum og heimild til að bjóða verðbréf fyrirtækis í einu landi til sölu á markaði í öðru landi. Um helmingur af aðildarríkjum Evrópubandalagsins hafði þegar samþykkt reglur sem uppfylla þessi ákvæði, en hinum löndunum hefur verið gefinn mislangur frestur, þó ekki lengri en til ársins 1992, til að samþykkja þær.
Annað skrefið var stigið í júní 1988 þegar önnur ályktun á þessu sviði var samþykkt. Hún tekur gildi árið 1990. Með gildistöku hennar verður síðustu hindrunum fyrir fjármagnshreyfingar á milli aðildarríkja EB rutt úr vegi. Þessar reglur snerta einkum lánveitingar ótengdra viðskipta með vöru og þjónustu, markað fyrir ýmiss konar skammtímaskuldbindingar svo og bankareikninga. Áform um breytingar í þessum efnum snerta aðildarríkin mismikið eins og ég gat um áðan, en Spánn og Írland fá frest til ársloka 1990 til að fullnægja ákvæðum tilskipunarinnar og Grikkland og Portúgal fá frest til ársloka 1992.
Í fyrrgreindri ályktun Evrópubandalagsins er lögð áhersla á að afnám hafta á fjármagnshreyfingum gildi ekki einungis fyrir aðildarríki EB. Ég bið hv. þm. að taka vel eftir að í ályktuninni er lögð áhersla á að afnám hafta á fjármagnshreyfingum gildi ekki einungis fyrir aðildarríki EB heldur einnig gagnvart ríkjum utan EB. Hins vegar eru ekki öll aðildarríki EB sammála þessu viðhorfi og benda á að ríki utan EB búa ekki við sömu lög, reglur og uppbyggingu efnahagsstarfsemi og aðildarríkin. Það geti því haft í för með sér óæskilegar efnahagsafleiðingar að afnema takmarkanir á fjármagnshreyfingum á milli ríkja þeirra og aðildarríkja EB. Þess vegna er aðildarríkjum Efnahagsbandalagsins heimilt samkvæmt þessari ályktun að krefjast gagnkvæmra heimilda frá ríkjum utan bandalagsins þegar kemur að reglum um stofnun fyrirtækja og heimildum til að veita fjármálaþjónustu rétt til starfsemi og heimild til að bjóða verðbréf á fjármagnsmarkaði.
Þetta eru grundvallaratriðin í stefnu Efnahagsbandalagsins í sambandi við frjálsan fjármagnsmarkað. Eins og ég gat um áðan, virðulegur forseti, hefur þetta haft mikil áhrif á þau ríki sem standa utan Efnahagsbandalagsins og sérstaklega þau ríki sem eru innan EFTA og Norðurlöndin.
Þessi umræða hefur haft svo djúpstæð áhrif að jafnvel uppi á Íslandi hefur vinstri ríkisstjórn talið nauðsynlegt að taka þetta upp sem lið í stefnumörkun sinni og um það snýst þessi umræða. Ég vil m.a., virðulegi forseti, leggja áherslu á að fá skýr svör við því frá hæstv. fjmrh. hvort Alþb. standi að baki
þessari samþykkt ríkisstjórnarinnar með eða án fyrirvara.
Ég vil þá víkja nokkrum orðum að EFTA-ríkjunum og þeim viðhorfum sem ríkja hjá EFTA í sambandi við þessi mál vegna þess að Ísland er aðili að EFTA.
Ég vek athygli á því að innan EFTA eru nú þau ríki sem hafa lagt áherslu á að þurfa ekki að tengjast Evrópubandalaginu of nánum böndum og nefni ég þar sérstaklega Finnland, einnig Svíþjóð og að sjálfsögðu Noreg og Ísland. Þetta er mjög þýðingarmikið að hv. þm. hafi í huga vegna þess að við tökum þátt í þeirri umræðu sem fer fram innan EFTA og ég geri ráð fyrir að hæstv. ráðherrar búist við því að einstaka hv. þm. alla vega leggi á sig þá vinnu að kynna sér þessi mál til hlítar og að við getum rætt þetta faglega. Ég tel þess vegna rétt að inn í þessa umræðu komi hver séu viðhorf aðildarríkja EFTA eins og þau koma mér fyrir sjónir og eins og ég hef getað aflað mér upplýsinga um í sambandi við þessi mál.
Aðildarríki EFTA eiga mikil viðskipti við Evrópubandalagið og í sumum þeirra, þar á meðal Íslandi, er mjög stór hlutur innflutnings og útflutnings viðskipti við EB. Ef ég man rétt munu um 55% af öllum útflutningi Íslendinga fara til Evrópubandalagslandanna og 56% ef ég man rétt árið 1987 af innflutningi okkar komu frá Evrópubandalagsríkjunum. Það er því ljóst að það skiptir EFTA-löndin verulegu máli hvort það bætir samkeppnisskilyrði fyrirtækja sem er að gerast í sambandi við Evrópubandalagið og einnig hefur það mikil áhrif á stöðu þeirra fyrirtækja sem eru í EFTA hvaða áhrif aðgangur að stærri og hagkvæmari fjármagnsmarkaði hefur fyrir fyrirtæki innan EFTA sem og í Evrópubandalaginu. En jafnframt hljóta EFTA-löndin að hafa í huga þau áhrif sem afnám hafta á fjármagnshreyfingum hafa á möguleika stjórnvalda til að framfylgja sjálfstæðri stefnu í efnahagsmálum.
Á vegum EFTA hefur verið unnið mikið að þessum málum, m.a. á vegum ráðgjafarnefndar EFTA sem skipuð er fulltrúum úr atvinnulífinu í aðildarríkjum EFTA. Þar starfar sérstakur vinnuhópur um fjármagnshreyfingar. Athuganir þessa vinnuhóps beinast einkum að þeim áhrifum sem afnám á takmörkun á fjármagnshreyfingu gæti haft á starfsskilyrði fyrirtækja í aðildarríkjum EFTA og á hvern hátt hagsmunir neytenda í þessum löndum verða tryggðir sem best.
Efnahagsnefnd EFTA hefur einnig fjallað um fjármagnshreyfingar og vorið 1988 setti hún á laggirnar vinnuhóp sem á að kanna núverandi reglur í aðildarríkjum EFTA um fjármagnshreyfingar á milli landa og meta hagræn áhrif af afnámi takmarkana. Íslendingar taka þátt í starfsemi ráðgjafarnefndarinnar og efnahagsnefndarinnar og vinnuhópum á þeirra vegum.
Það er þess vegna að sumu leyti skiljanlegt að núv. ríkisstjórn skuli hafa tekið þessa afstöðu sem er mjög stefnumarkandi svo ekki sé meira sagt, mjög stefnumarkandi, en hlýtur að gera þær kröfur til hæstv. ríkisstjórnar að Íslendingar hafi sama rétt, sömu stöðu í þeirri samkeppni sem verið er að innleiða á sviði fjármagnsmarkaðar.
Ég vil þá víkja nokkrum orðum að því sem lýtur að Norðurlöndunum, en það er vettvangur þar sem við
Íslendingar komum einnig töluvert mikið við sögu. Einnig hefur hæstv. ríkisstjórn lýst því yfir að á næstu missirum verði reglur um fjármagnshreyfingar og viðskipti með fjármálaþjónustu á milli Íslands og annarra landa mótaðar á grundvelli tillagna ráðherranefndar Norðurlanda um efnahagsáætlun Norðurlanda. Það er grundvallaratriði að skilja hvað í þessu felst. Það er grundvallaratriði að hv. þm. geri sér grein fyrir hvað felst í þessari efnahagsáætlun og það er ekki lítið atriði. Ég vona að hæstv. fjmrh. og banka- og viðskiptamálaráðherra, sem hér koma á eftir, staðfesti að það sem ég segi hér á eftir sé í stórum dráttum rétt varðandi þessi atriði.
Kem ég þá raunverulega að meginatriðum þessa máls og afstöðu ríkisstjórnarinnar.
Við gerð efnahagsáætlunar fyrir Norðurlöndin fyrir árin 1989--1992 lagði vinnuhópur sem átti að kanna þessi mál til að dregið yrði úr takmörkunum á fjármagnshreyfingum til og frá Norðurlöndunum, þ.e. að það yrði opnað þarna meira fyrir frjálsum fjármagnshreyfingum, sérstaklega frá Evrópubandalagslöndunum. Þessi hópur komst að þeirri niðurstöðu að slíkt væri hagkvæmt fyrir löndin því að það opnaði fyrirtækjum leið að stærri fjármagnsmarkaði, auk þess sem þau losnuðu við ýmsan skriffinnskukostnað. Bent var á af hálfu vinnuhópsins að afnám hafta á fjármagnshreyfingum gæti auðveldað samstarf norrænna fyrirtækja og þar með greitt fyrir viðskiptum milli Norðurlandanna.
Hvar er nú hæstv. viðskrh. og bankamálaráðherra sem hefur setið í bankaráði Norræna fjárfestingarbankans sem hefur átt mikinn hlut að því að færa mikið fjármagn í íslenskt atvinnulíf, m.a. í samnorræn verkefni á sviði fiskeldis? Hvernig væri að hæstv. ráðherra væri hér líka? Við hv. þm. sitjum og hlýðum á mál ráðherranna þegar þeir flytja framsögur fyrir sínum frumvörpum og það er algert lágmark að þessir ráðherrar, ég segi þessir, ég segi ekki hæstvirtir, þeir eiga ekki þá virðingu skilið ef þeir geta ekki sýnt okkur þá virðingu að hlýða á mál okkar, séu viðstaddir þegar verið að tala um þessi mál. ( Forseti: Eins og hv. ræðumanni er kunnugt eru búin að vera á dagskrá hjá báðum deildum
frumvörp sem hæstv. viðskrh. flytur og þarf að mæla fyrir. Í samráði m.a. við hv. ræðumann gerði ég ráð fyrir því að umræðu í deildinni yrði lokið um kl. 4 og þá mundi hann geta mælt fyrir málum í Nd. Ég veit ekki hvort hann er þegar farinn til þess eða ekki.) Já, ég tek til greina athugasemd virðulegs forseta. Ég segi ekki að ég láti það nægja að hafa hæstv. fjmrh. Það er meira en láta sér nægja það. Það er ágætt. Við skulum þá lofa hæstv. viðskrh. og bankamálaráðherra að vera í hv. Nd. og tala fyrir frv. þar.
Það fer best á því að tala sérstaklega við hæstv. fjmrh. um þennan þátt vegna þess að eins og segir í þessari ályktun ætlar núv. hæstv. ríkisstjórn að leggja áherslu á að Íslendingar samræmist sjónarmiðum Norðurlandanna í sambandi við tillögur ráðherranefndar um efnahagsáætlun 1989--1992. Þetta er veigamikill þáttur í þeirri efnahagsáætlun sem
ráðherrarnir ætla að leggja fyrir Norðurlandaráðsþing sem verður síðar í þessum mánuði. Þetta er sá hluti sem lýtur að fjármagnsmarkaðnum og mér finnst mjög athyglisvert að Alþb. skuli hafa samþykkt að það vilji nálgast þessi sjónarmið og taka þátt í að tengja Ísland með þessum hætti erlendu fjármagni svo sem kemur fram í þessum tillögum og hugmyndum um efnahagsáætlun Norðurlandanna fyrir 1989--1992.
Í þessu plaggi og hugmyndum vinnuhópsins fyrir tillögum um efnahagsáætlun Norðurlanda er bent á að þetta sé líklegt til að auðvelda fjárfestingu í hlutabréfum á milli Norðurlanda og víðar og það sé þýðingarmikið með tilliti til nálægðar og þeirrar þekkingar sem íbúar Norðurlanda hafa á aðstæðum hvors annars. Þessar niðurstöður vinnuhópsins --- ég undirstrika: þessar niðurstöður vinnuhópsins urðu hluti af efnahagsáætlun fyrir Norðurlöndin 1989--1992 sem fjármálaráðherrar landanna samþykktu eftir því sem ég best veit í nóvember 1988. Í efnahagsáætluninni er lagt til að löndin skuli fyrir árslok 1992 aflétta hömlum á eftirfarandi fjármagnshreyfingum og les ég upp úr áætluninni, með leyfi forseta:
,,1. Kaupum á skráðum jafnt sem óskráðum hlutabréfum í útlöndum, þar með talin kaup á hlutdeildarbréfum í hlutabréfasjóðum.
2. Sams konar fjárfestingu erlendra aðila í innlendum hlutabréfum.
3. Kaupum á fasteignum í útlöndum.
4. Erlendum lántökum innlendra fyrirtækja til lengri tíma en eins árs.
5. Lánveitingum til skemmri tíma en eins árs í gjaldmiðli heimalandsins eða einhverjum öðrum gjaldmiðli í tengslum við innflutning og útflutning.
6. Lánveitingum innlendra viðskiptabanka til útlendinga í erlendum gjaldmiðli.
7. Inneignum innlendra fyrirtækja á bankareikningum erlendis í takmarkaðan tíma eftir að kröfur þeirra á hendur erlendum viðskiptavinum hafa verið greiddar.``
Ég segi nú ekkert annað en það, virðulegi forseti, að mér þykir Alþb. og hæstv. ráðherrar Alþb. aldeilis vera reiðubúnir til að opna Ísland fyrir erlendu fjármagni ef hæstv. fjmrh. hefur skrifað undir þetta sem tillögur fjmrh. sem verða lagðar fyrir Norðurlandaráðsþing í þessum mánuði. Ég hef ekki orðið var við það og kannast ekki við það að hæstv. fjmrh. Íslands hafi gert neinn fyrirvara við þessar tillögur, en vonandi mun hæstv. ráðherra koma upp á eftir og gera hér grein fyrir því hvort hann hefur samþykkt þessa áætlun eða ekki eða að hún skuli lögð fyrir Norðurlandaráð.
Á sínum tíma settu íslenskir fjármálaráðherrar fyrirvara við flest þau atriði í samstarfi og samvinnu Norðurlandanna er lutu að opnum fjármagnsmarkaði á Norðurlöndum. Þá munu fjármálaráðherrar Norðurlandanna einnig hafa samþykkt að fyrir 1990 verði ákveðið hvort fleiri fjármagnshreyfingum skuli bætt á áðurnefndan lista. Í efnahagsáætluninni er ekki tilgreint hverjar þær geti verið, en af skýrslu vinnuhópsins má ráða, ég endurtek: má ráða, að þar
sé um að ræða fjármagnshreyfingar eins og í fyrsta lagi kaup útlendinga á innlendum skuldabréfum, í öðru lagi kaup landsmanna á erlendum skuldabréfum og inneign landsmanna í banka erlendis, í þriðja lagi skammtíma lántökur og lánveitingar innlendra fyrirtækja erlendis og í fjórða lagi lántökur einstaklinga og heimila erlendis.
Þetta, virðulegi forseti, felst í stórum dráttum í hugmyndum og tillögum fjmrh. Norðurlandanna sem vísað er til í samþykkt ríkisstjórnar Íslands um peninga- og vaxtalán sem gerð var í síðustu viku. Þetta er, virðulegi forseti, bakgrunnurinn á bak við þá setningu í samþykkt ríkisstjórnarinnar þar sem segir að á næstu missirum verði reglur um fjármagnshreyfingar og viðskipti með fjármálaþjónustu milli Íslands og annarra landa mótaðar á grundvelli tillagna ráðherranefndar Norðurlanda um efnahagsáætlun Norðurlanda 1989--1992. Þetta eru efnisatriðin á bak við þessa einu setningu. Þessi setning lætur ekki mikið yfir sér í þessu plaggi, en hún opnar allt málið og það þýðir ekkert að standa hér upp og segja: Við munum haga okkur eftir því sem okkur hentar í það og það skiptið. --- Hér hefur hæstv. ríkisstjórn samþykkt stefnumörkun sem byggist á ákveðnum forsendum og ég hef hér frá greint. Ég óska því eftir því, virðulegur forseti, að hæstv. fjmrh. lýsi því yfir fyrir hönd Alþb. að ráðherrar Alþb. í ríkisstjórninni hafi í umboði Alþb. tekið þessa stefnu, ákveðið þetta í
samráði við sinn flokk, vegna þess að ef ég kann stefnu Alþb. rétt utan að er hvergi að finna í stefnuskrá Alþb. neitt í þessa veru. Ég hlýt því að álykta að annaðhvort er þetta plagg ríkisstjórnarinnar dautt og ómerkt eða að hæstv. ráðherrar Alþb. hafi tekið sér það vald að ákveða fyrir hönd síns flokks stefnumörkun sem þeir hafa ekki heimild til.
Virðulegi forseti. Ég skal ekki lengja þessa umræðu mikið meira en komið er, en ég ítreka og vek athygli á því að á sama tíma sem núv. hæstv. ríkisstjórn er að þrengja hag íslenskra einkafyrirtækja á sviði banka- og fjármála á íslenskum markaði er þessi ríkisstjórn að samþykkja að opna leið fyrir erlenda aðila, banka og fjármálastofnanir, til að koma með fjármagn inn í landið. Það er sem sagt stefna ríkisstjórnarinnar að íslenskir aðilar skuli ekki fá að starfa á sama grundvelli og erlendar fjármálastofnanir sem ég vísa til, þ.e. á grundvelli frelsis og samkeppni, heldur skuli íslenskar fjármálastofnanir þvingaðar niður með lögum og reglugerðum á sama tíma sem erlendir bankar og fjármálastofnanir mega koma inn í landið með fjármagn til að keppa við innlenda aðila. Erlendir bankar og erlendar fjármálastofnanir búa við allt annað frelsi og allt önnur skilyrði en íslenskir bankar. Ég ætla ekki að ræða um stærð íslenskra banka eða fjármálastofnana samanborið við erlendar fjármálastofnanir. Það liggur svo í augum uppi að það er ekki um samkeppni að ræða ef menn vilja fara út í þá umræðu. Hinir erlendu aðilar eru svo miklu stærri, sterkari og voldugri og hafa svo miklu betri aðstöðu til undirboða í hverju sem er sem lýtur að
peninga- og fjármálamarkaði að ég hlýt að gera þær kröfur til hæstv. ríkisstjórnar að íslenskir aðilar njóti sama réttar og hinir erlendu samkvæmt því sem ríkisstjórnin ætlast greinilega fyrir.