Seðlabanki Íslands
Þriðjudaginn 14. febrúar 1989

     Halldór Blöndal:
    Herra forseti. Ekki ætla ég að fara að metast við hæstv. viðskrh. um að ég viti meira en hann um sjávarútveg. Það dettur mér ekki í hug. Hitt verð ég að segja að mér finnst hin mikla vitneskja viðskrh. nýtast illa. Hann ber höfuðábyrgð á því hvernig komið er fyrir sjávarútveginum. Og það er satt að segja meira en lítil ósvífni að gefa það hér í skyn, eins og yfirlýsingar hæstv. sjútvrh. hafa gengið, að það sé eitthvert sérstakt markmið að skapa sjávarútveginum þolanleg rekstrarskilyrði. Það liggur alveg ljóst fyrir að bæði forsrh. og sjútvrh. hafa lýst því yfir að gengi krónunnar sé of hátt fyrir sjávarútveginn og það liggur líka alveg ljóst fyrir að innan ríkisstjórnarinnar er ágreiningur um það atriði.
    Nú getur vel verið að hæstv. viðskrh. sé sömu skoðunar og þeir og hann telji gengið vera of hátt. Það væri fróðlegt að fá svar hæstv. viðskrh. um það. Telur hæstv. viðskrh. gengi íslensku krónunnar of hátt eins og þeir hafa sagt hæstv. sjútvrh. og hæstv. forsrh.? Er það svo? Eða er það kannski hæstv. viðskrh. sem nú, eins og þegar ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar var við völd hér á landi, stendur á móti því að gengi krónunnar sé skráð þolanlega þannig að útflutningsatvinnuvegirnir standi undir sér, þannig að viðskiptahalli verði ekki óbærilegur í landinu?
    Ég vil í öðru lagi segja að það er ósmekklegt af hæstv. viðskrh., nú þegar svo er liðið á fund og þingmenn Kvennalista hafa orðið að bregða sé frá, sem þó hafa verið hér við umræðurnar, að snúa svo út úr þeim hugmyndum, sem þær eru raunar höfundar að í sambandi við hlutafjársjóð, að segja að hugmyndir ríkisstjórnarinnar nú séu þær sömu og Kvennalistinn lagði til grundvallar sínum hugmyndum um hlutafjársjóðinn. Þetta er mjög ósvífin rangfærsla þegar fyrir liggur að þingmenn Kvennalistans hafa farið til fjölmiðla sérstaklega til að leiðrétta þennan misskilning. Hugmyndin á bak við hlutafjársjóð viðskrh. er sú að Byggðasjóður, að Fiskveiðasjóður, jafnvel Iðnlánasjóður, ég skal ekki segja, a.m.k. þessi svokallaði Atvinnutryggingarsjóður, eigi að breyta lánum til fiskvinnslufyrirtækja og útgerðar í hlutabréf þannig að þar á að koma fram þvinguð hlutafjáreign þessara opinberu sjóða í ýmsum fiskvinnslu- og útgerðarfyrirtækjum. Skýringin er sú að þannig hefur verið staðið að sjávarútveginum að eigið fé er að brenna upp í þessum fyrirtækjum. Hæstv. forsrh. hefur margsinnis lýst því yfir að á sl. ári hafi önnur hver króna í sjávarútvegsfyrirtækjum brunnið upp og hæstv. forsrh. hefur jafnframt lýst því yfir að hallinn á sjávarútveginum haldi áfram.
    Ég skal svo ekki orðlengja þetta frekar, en það var óhjákvæmilegt fyrir mig að leiðrétta það sem hæstv. viðskrh. sagði um hlutabréfasjóðinn, það sem hann sagði gegn betri vitund og í krafti þess að fulltrúar Kvennalistans voru ekki hér inni til að leiðrétta þessar rangfærslur.