Norrænn þróunarsjóður
Þriðjudaginn 14. febrúar 1989

     Margrét Frímannsdóttir:
    Virðulegi forseti. 3. nóv. 1988 var undirritaður samningur á milli Íslands, Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar um stofnun norræns þróunarsjóðs. Frv. þessa efnis var lagt fram í hv. Ed. og vísað eftir umræður til hv. fjh.- og viðskn. Nefndin hefur fjallað um frv. og skilað nál. á þskj. 451 sem ég mæli fyrir í fjarveru formanns nefndarinnar.
    Nefndin varð sammála um að leggja til að frv. yrði samþykkt. Undir nál. skrifa allir nefndarmenn, hv. þm. Júlíus Sólnes þó með fyrirvara. Hv. þm. Danfríður Skarphéðinsdóttir sat fund nefndarinnar og er samþykk áliti hennar.