Breytingar á dagskrá
Þriðjudaginn 14. febrúar 1989

     Kristín Halldórsdóttir:
    Ég vildi aðeins, herra forseti, inna eftir því hvers vegna sjötta mál á dagskrá, frv. um búminjasafn, er skotið inn í áður boðaða dagskrá, hvers vegna það er tekið nú fyrir og þá á undan ýmsum öðrum dagskrármálum, m.a. fyrsta máli á dagskrá sem er 8. mál þingsins og hefur nú lengi beðið afgreiðslu.