Forseti (Óli Þ. Guðbjartsson):
Ástæðan fyrir þessu er ein, fyrst og fremst beiðni flm. og ég get enn fremur upplýst að ætlunin er að taka í framhaldi af þessu fyrir sjöunda dagskrármálið þannig að væntanlega gefst hér tækifæri á fundinum til að mæla fyrir báðum þessum frv. Hins vegar er gert ráð fyrir að umræðu um hvorugt málanna ljúki og að síðan verði í framhaldi af því tekið fyrir fyrsta dagskrármálið, frv. til laga um efnahagsaðgerðir, á þessum fundi.