Breytingar á dagskrá
Þriðjudaginn 14. febrúar 1989

     Matthías Á. Mathiesen:
    Herra forseti. Eins og forseti sameinaðs þings gerði athugasemdir við þá eru hér í dag á borðum þingmanna tvær dagskrár þar sem sú síðari hefur fengið viðbót, þar á meðal það mál sem nú skal taka til umræðu. Þess vegna þykir mér ástæða til þess að vekja athygli á því að það frv. sem hér verður nú til umræðu er 133. mál þingsins og eftir því sem ég hef kynnt mér þá var þetta frv. lagt fram hér á Alþingi 28. nóv. og hefur aldrei verið á dagskrá þessarar hv. deildar frá því að það var lagt fram. Nú hefur það a.m.k. verið venja svo langt sem ég man að ný frv., sem lögð eru fram á þingi, séu á dagskrá fyrsta fundar eftir að þau hafa verið lögð fram til þess að staðfesta að umræða muni fara fram um viðkomandi frv. Það verður svo að sjálfsögðu að vera háð tíma deildarinnar hvernig staðið er að umræðum en gjarnan hefur það verið svo að mál hafa fengið tíma til þess að 1. umr. væri lokið og þau komist til nefndar til þess að þar fengist tækifæri til þess að skoða þau og þingmenn tækifæri til þess að leita upplýsinga, fá greinargerðir, til þess að hægt sé að fjalla um málið.
    Frv. sem hér er lagt fram 28. nóv. er fyrst til umræðu nú þegar komið er fram í miðjan febrúar, og það mun ekki eiga að ljúka umræðu hér í dag. Ég spyr: Hverjum dettur í hug að þessu máli verði lokið og það verði hægt að fá afgreiðslu á því áður en þessu þingi lýkur? Ekki með þessu háttalagi. Ekki með þessu fyrirkomulagi sem hér er.
    Ég er ansi hræddur um það að eins og dagskránni var fyrst útbýtt á því dagskrárskjali sem liggur fyrir, þá sé ekkert mál annað en frumvörp ríkisstjórnarinnar eftir því sem þau hafa komið inn, jafnvel má búast við því að frv., sem verður flutt á morgun, af því það er ríkisstjórnarfrumvarp, sé sett á dagskrána í dag, svona til öryggis. Ég vil vekja athygli á því að Alþingi er ekki eingöngu einhver afgreiðslustofnun fyrir ríkisstjórn. Afgreiðsla alþingismanna er að sjálfsögðu á þeirri löggjöf sem setja skal og þeir sem hér hafa rétt til að koma með, annars vegar ríkisstjórn, hins vegar alþingismenn. Alþingi er nú einu sinni stofnun þingmanna þannig að mér sýnist að hér sé farið þannig að að frv. þingmanna, það sem þeir vilja koma hér fram með, sé ekki tekið hér á dagskrá. Mér er ljóst og mér er kunnugt um það að sjötta mál á dagskrá er hér vegna þess að 1. flm. fannst vera kominn tími til þess að hann fengi tækifæri til að tala fyrir þessu máli. Ég vil í góðri vinsemd vekja athygli á þessu við forseta deildarinnar, það er að vísu fyrri varaforseti sem situr í forsetastól nú, en þingmenn óska gjarnan eftir því að fá tækifæri til að koma sínum málum að. Það er enginn að tala um það að þau fái endanlega afgreiðslu og það er enginn sem talar um að það eigi að verða til þess að tefja eitthvað sem ríkisstjórnin telur að þurfi að ganga fram, heldur verða þessir hlutir að gerast með þeim hætti að menn séu hér sem þingmenn til þess að gegna sínum störfum.