Alexander Stefánsson:
Herra forseti. Ég vil vekja athygli á því að þetta frv., eins og hér hefur raunar komið fram, var lagt fram á hv. Alþingi í nóvember. Rétt fyrir jólahlé lagði ég áherslu á að þetta mál kæmi til umræðu hér inni á hv. Alþingi, en eftir tilmælum frá forseta Nd. um þau umsvif sem hér voru síðustu daga fyrir jól féllst ég á það að umræðu um þetta mál yrði frestað fram yfir áramót en í trausti þess að það yrði með fyrstu þingmálum þingmanna sem hér kæmu fram í hv. deild, enda var komið að því miðað við númeraskrá, þetta er 133. mál, og ég treysti á það að við það yrði staðið. Undanfarna daga hér á hv. Alþingi hafa ekki verið þingmannnafrv. á dagskrá heldur eingöngu stjórnarfrv., en þegar ég sá dagskrána í morgun sá ég að búið var að taka þingmannafrv. inn sem er 188. mál Nd. en þetta frv. skilið eftir, þá gerði ég athugasemd við forseta deildarinnar um það að ef taka ætti 188. mál á dagskrá, þá yrði þetta mál að koma inn. Ég gerði kröfu til þess. Og ég tel að það séu eðlileg viðbrögð frá okkur sem flytjum þetta frv., þar sem við féllumst á að bíða með að mæla fyrir því vegna anna í þinginu rétt fyrir jólin, að þá hefðum við sama rétt og aðrir þingmenn a.m.k., þó að við víkjum fyrir stjórnarfrv., og yrðum ekki settir aftur fyrir önnur þingmannafrv. Það er ástæðan fyrir því að ég lagði áherslu á það að þetta frv. kæmi í þessari röð hér. Hins vegar hef ég engar kröfur um það að það megi ekki víkja fyrir stjórnarfrv. eins og önnur þingmannafrv., eins og meðhöndlunin er, en ég tel að við eigum rétt á því, sama rétt og aðrir, að þau lagafrv. sem þingmenn flytja hafi sama rétt og önnur frv. og verði tekin í þeirri röð sem þau hafa verið lögð fram. Það hefur alltaf verið venja hér á Alþingi nema samkomulag sé um annað. Þess vegna er þetta hér inni á dagskrá.