Breytingar á dagskrá
Þriðjudaginn 14. febrúar 1989

     Kristinn Pétursson:
    Hæstv. forseti. Ég vil að gefnu tilefni mótmæla því að verið sé að hringla með dagskrá þingsins fram og aftur eins og menn séu hálfdáleiddar hænur sem bara snúast í eintóma hringi. Það er ekki hægt að boða dagskrá þannig að menn undirbúi sig og skipuleggi sinn tíma --- það er nógu léleg nýting á vinnutíma alþm. þó það sé ekki verið að hringla með dagskrána aftur á bak og áfram, bæði í gær og eins í dag og ég mótmæli því harðlega.