Þórhildur Þorleifsdóttir:
Virðulegur forseti. Það er ánægjuefni að nýtt frv. til þjóðminjalaga skuli nú liggja fyrir Alþingi að nýju í nýrri og vonandi bættri mynd. Það er ástæðulaust að rekja hér grein fyrir grein þær breytingar sem orðið hafa á frv. frá því í fyrra. Það gerði hv. þm. Guðrún Helgadóttir þannig að ekki verður um bætt. En ég verð þó að minnast aðeins á það hér að í nefndinni sem útbjó þetta frv. voru vissulega skiptar skoðanir um tilhögun mála og það voru líka skiptar skoðanir meðal fagfólks sem leitað var til. Eflaust má líta á þetta frv. eins og það liggur frammi hér núna sem málamiðlun. Ekki vil ég segja að það sé vont þess vegna, en vissulega teygðu margir sig býsna langt til þess að ná samkomulagi í þeim tilgangi að ný þjóðminjalög yrðu sett því að ég held að engum dyljist nauðsyn þess að svo verði gert sem fyrst eins og ástand er í þeim málum, bæði hvað varðar starfsemi safnsins og húsakost.
Reyndar verð ég að sumu leyti að taka undir orð síðasta ræðumanns, hv. þm. Alexanders Stefánssonar, um meiri aðskilnað fornleifarannsókna og annarrar þjóðminjavörslu, annað væri hræsni af minni hálfu því að við kvennalistakonur höfum nýverið lagt fram þáltill. um umhverfisráðuneyti þar sem við leggjum til að fornleifar, skráning og rannsóknir og flokkun, friðlýsing fastra fornleifa heyri undir umhverfisráðuneyti. Forsendan fyrir því að við leggjum það til er að sú vinna sem þarna þyrfti að fara fram er á margan hátt sambærileg við vinnu við skráningu á friðlýsingu náttúruminja og því kannski ekki óeðlilegt að þessi vinna tengist að meira marki en mundi gert ef þetta væri inni í þjóðminjalögum. En ég býst við að að svo komnu máli sé fullvel hægt að sætta sig við þetta frv. eins og það liggur frammi nú og ekkert sem segir að það standi að eilífu eða ekki megi gera breytingar þar á. Auk þess á þetta náttúrlega eftir að fara fyrir menntmn. þingsins og þar kunna að verða lagðar til breytingar og við áskiljum okkur auðvitað fullan rétt til þess að koma þar með brtt. ef við teljum þörf á. Þó styrkir þetta frv. stöðu fornminja- og fornleifarannsókna að miklum mun frá því sem áður var.
Það sem mestu máli skiptir þó varðandi lagasetningu sem þessa er ekki endilega alltaf það sem segir í lögunum heldur að síðan sé staðið þannig að fjárveitingum að hægt sé að vinna eftir lögunum og útfæra það sem þar er kveðið á um. Það þarf ekki að orðlengja það hvernig staðið hefur verið að --- ekki bara þjóðminjasafni heldur í raun flestri annarri menningarstarfsemi landsins, bæði hvað varðar ytri aðbúnað og innri starfsemi. Nefndi hv. þm. Guðrún Helgadóttir ágætt dæmi um það hér áður og er það raunar óskiljanlegur og misskilinn sparnaður að sjá svo í aurinn til viðhalds bygginga sem reistar hafa verið fyrir þjóðina að seinna þurfi að kosta til hundruðum milljóna króna til að koma þeim í starfhæft ástand og jafnvel loka þeim um langa hríð eins og nú stendur fyrir dyrum með Þjóðleikhús Íslendinga. Og mér skilst að ástand Þjóðminjasafnsins
hafi verið slíkt að þangað hafi varla verið hægt að bjóða fólki inn.
En það er líka önnur tilhneiging sem maður verður mikið var við í afstöðu opinberra aðila til menningarstarfsemi og það er það að þegar búið er að reisa hús, þá sé tryggð starfsemi sem á að fara fram innan þeirra veggja, en það er svo langt í frá. Sú skoðun hefur jafnvel ríkt að stofnanir eigi að vera einangraðar og standa fjarri lífsins glaumi í hljóðum virðuleik. Maður hefur það stundum á tilfinningunni að það sé ekkert allt of vel þegið að fólk sé of mikið að heimsækja þessar stofnanir eða skipta sér af því sem þar fer fram. Það er lítið gagn að þeim ef þær eru einungis geymslustofnanir um verðmæti, ef enginn kynnist þeim á lifandi nútímalegan hátt og þær þjóni þannig tilgangi sínum við að færa arfinn frá einni kynslóð til annarrar.
Það hefur kannski aldrei verið brýnna en nú að taka duglega á þessum málum því að ég held að í menningarmálum þjóðarinnar séum við komin á elleftu stund og það sé spurning hvort hægt sé að draga það öllu lengur að gera verulegt átak á öllum sviðum sem við verður komið til þess að vekja áhuga og auka þekkingu barna og unglinga í landinu á íslenskri menningu og íslenskri arfleifð. Þessi samkunda hér leiðir þessi mál allt of léttilega hjá sér hvað eftir annað. Hér kemst lítið annað að en efnahagsumræða efnahagsumræðunnar vegna og þar virðist allt bíta í skottið á sjálfu sér. Menn losna ekki út úr þeim vítahring og vantar markmið með þessari umræðu og er það kannski ástæðan fyrir því að svo er komið sem nú er að í rauninni er allt það sem getur flokkast undir verðmæti þessarar þjóðar látið liggja í láginni og er lítið sinnt. Það er til lítils að tala um efnilegt, heilbrigt og frjálsborið ungt fólk ef við stöndum þannig að uppeldi barna okkar og unglingauppfræðslu að þeir viti ekki hvaðan þeir eru komnir og hvað þeir geta tekið í arf ef þeim er veittur aðgangur að því með lifandi móti.
Ég vildi óska að þessi mál væru oftar hér til umræðu og það væru fleiri viðstaddir þegar þau eru til umræðu, en það er næstum því segin saga að það þynnist mjög hér á bekkjum þegar einhver ámóta mál koma til umræðu. Ég vil beina því til þeirra þingmanna sem hér sitja nú inni að koma þeim skilaboðum til félaga sinna sem ekki sitja hér inni nú að þeir ættu hugsanlega að vera
viðstaddir næst þegar eitthvað slíkt kemur til umræðu og hvort það ætti ekki að fara að ræða það innan allra flokka að gera bragarbót á í menningarmálum á Íslandi.