Jón Kristjánsson:
Herra forseti. Ég þarf í rauninni ekki að hafa mörg orð um þetta mál. Ég kvaddi mér aðeins hljóðs til að taka eindregið undir þetta frv. og styð efni þess. Ég held að það sé nauðsynlegt að bregðast við nýrri tækni í útsendingum og nýjum háttum. Beinar útsendingar hafa færst mjög í vöxt með aukinni samkeppni útvarpsstöðva og alls konar símhringingar í þessar stöðvar sem verður til þess að það er ekki nein ritstjórn á því, ef svo má að orði komast, hvað er birt og hvað ekki. Menn geta í rauninni talað um hvað sem er á öldum ljósvakans. Þetta er ekki við hæfi og útvarpsstöðvar verða að taka upp, ef svo má að orði komast, ritstjórn á því efni sem birt er eins og gert er á blöðunum. Þó auðvitað megi alltaf deila um hvort sú ritstjórn er góð eða slæm hafa menn þó alltaf á blöðunum tækifæri til þess að meta hvað menn birta þar og hvað ekki.
Ég tek eindregið undir efni þessa frv. og mun styðja að það fái hér þinglega meðferð og verði samþykkt í hv. Alþingi.