Útvarpslög
Miðvikudaginn 15. febrúar 1989

     Flm. (Ingi Björn Albertsson):
    Herra forseti. Það er ekki neinu við þetta að bæta í raun og veru öðru en því að ég þakka þeim þingmönnum sem hér hafa komið upp og tekið undir þetta mál fyrir þeirra mjög svo jákvæða málflutning og segi í lokin að ég vona að hv. þingnefnd, sem þetta mál fær til umfjöllunar, hraði því sem frekast er unnt þannig að það geti orðið að lögum sem allra fyrst.