Landnýtingaráætlun
Fimmtudaginn 16. febrúar 1989

     Jón Helgason:
    Hæstv. forseti. Í framhaldi af svari hæstv. menntmrh. vildi ég aðeins undirstrika að þó að gert sé ráð fyrir því í skýrslu nefndarinnar, sem hann gat um að hefði unnið að framkvæmd þáltill., að Skipulag ríkisins taki við næsta skrefi, þá er þessi skýrsla og niðurstöður hennar tiltæk öllum ráðuneytunum og til afnota þær margvíslegu upplýsingar sem þar koma fram. Ég vildi sérstaklega geta þess að landbrn. fór þegar í stað að nýta sér þær upplýsingar og er þar af ýmsu að taka.
    Ég get minnst á að við skerðingu á kvóta í sauðfjárrækt, sem ákveðinn var samkvæmt reglugerð haustið 1986, var tekið tillit til landkosta þannig að á þeim svæðum þar sem Landgræðsla ríkisins taldi mesta þörf á að hlífa gróðri fyrir beit var skerðingin mest. Þetta var síðan bætt upp með auknum kvóta við mjólkurframleiðslu í næstu reglugerð.
    Í öðru lagi beitti ég mér fyrir því að Skógræktarfélagi Reykjavíkur voru boðnar tvær ríkisjarðir austur í Mýrdal til afnota til skógræktar og þar munu nokkur hundruð manns hafa óskað eftir því að fá reiti á vegum félagsins til þess að planta þar skógi. Ýmislegt fleira hefur verið gert til að undirstrika að land væri falt og aðgengilegt fyrir þá í þéttbýli sem vildu þess njóta og hlynna að gróðri.
    Þannig væri sem sagt lengi hægt að telja, en ég vildi aðeins undirstrika þann árangur sem þegar hefur orðið af starfi nefndarinnar þó ekki sé lengra komið.