Lokun sendiráða
Fimmtudaginn 16. febrúar 1989

     Fyrirspyrjandi (Geir H. Haarde):
    Virðulegi forseti. Hæstv. utanrrh. lýsti því yfir í sjónvarpsviðtali í fyrrakvöld að í ráðuneyti hans væri unnið að margháttuðum sparnaði í útgjöldum og mig minnir að hann hafi nefnt töluna 10--12 millj. sem yrði reynt að spara á þessu ári. Það má því segja að fsp. þá sem ég hef lagt fram beri upp á ágætan tíma því að mér leikur hugur á að fá vitneskju um það, virðulegi forseti, hvort ráðherrann hyggist ná einhverju af þessum sparnaði með því að loka eða gera breytingar á starfsemi einhverra sendiráða erlendis. Fyrirspurnin er svohljóðandi, með leyfi forseta:
    ,,Hyggst utanríkisráðherra beita sér fyrir því að einhverjum sendiráðum Íslands erlendis verði lokað í sparnaðarskyni? Ef svo er, þá hverjum?