Meðlög
Fimmtudaginn 16. febrúar 1989

     Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir):
    Hæstv. forseti. Hv. þm. Geir H. Haarde hefur beint til mín ákveðinni fsp. um hvort ég hafi í hyggju að beita mér fyrir breytingum á lögboðinni fjárhæð meðlaga þannig að þau endurspegli betur raunverulegan kostnað við framfærslu barna. Mér er ljúft að svara þessari fsp. þó, eins og fram kom í máli fyrirspyrjanda, að ákvörðun um meðlagsgreiðslur falli ekki undir mitt embætti sem félmrh. heldur fellur þetta mál undir verksvið heilbr.- og trmrh.
    Í almannatryggingalögunum nr. 67/1971 er kveðið á um hver meðlög skuli vera. Skv. 73. gr. laganna skulu meðlög vera innan marka fjárhæðar sem ákveðin er í 14. gr. laganna, þ.e. þau miðast við upphæð barnalífeyris. Í 70. gr. almannatryggingalaganna er kveðið á um að verði breyting á vikukaupi í almennri verkamannavinnu skuli ráðherra, þ.e. heilbr.- og trmrh., þá innan sex mánaða breyta upphæðum bóta samkvæmt lögum og það eigi eins við um bætur skv. 73. gr., en eins og ég hef tekið fram heyrir fjárhæð meðlaga undir heilbr.- og trmrh.
    Í stjórnarsáttmála er kveðið á um að endurskoðun laga um almannatryggingar verði lokið á árinu 1989. Meðlagið er nú 5865 kr. á mánuði með einu barni og hækkaði síðast í júlí úr 5332 kr. í þessar 5865 kr.
    Ég vil segja það sem mína skoðun að hér er vissulega ekki um háar fjárhæðir að ræða og hlýtur þetta að koma til sérstakrar athugunar við endurskoðun almannatryggingalaganna. Á hinn bóginn tel ég þó rétt að taka fram, þannig að það sjónarmið komi einnig fram í þessari umræðu, að þó upphæðirnar séu ekki háar eru þær oft þungar fyrir þá meðlagsgreiðendur sem þurfa að inna þær af hendi, sérstaklega þegar um er að ræða meðlagsgreiðslur með fleiri en einu barni og meðlagsgreiðandinn hefur e.t.v. fyrir öðru heimili að sjá. Ég tel rétt, þó ég taki ekkert sérstaklega undir þessa skoðun, að þetta sjónarmið komi líka inn í þessa umræðu.
    Eins og nú er fylgja hækkanirnar á meðlögunum breytingu á kaupi, en ég tel rétt að kanna sérstaklega hvort ekki væri réttara að miða meðlagsgreiðslurnar við framfærslukostnað og tengdust þær þá vísitölu framfærslukostnaðar. Þetta er mitt persónulega mat. Ekki hefur verið fjallað um þetta enn í ríkisstjórninni þar sem heildarendurskoðun almannatryggingalaganna fer nú fram á vegum heilbrmrn., en ég mun taka þetta mál sérstaklega upp við hæstv. heilbr.- og trmrh.