Fyrirspyrjandi (Geir H. Haarde):
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. félmrh. fyrir hennar greiðu svör í þessu máli, sem kannski strangt tekið heyrir ekki alveg undir hana nema óbeint þá, og ég fagna því að hún skuli taka því eins og raun ber vitni. Ég held að það sé ljóst og það þekkja auðvitað margir að sú fjárhæð sem nefnd var í svari ráðherra, 5865 kr., hrekkur ekki langt til framfærslu barna. Gagnsjónarmiðið er svo það, sem ráðherrann vakti athygli á, að greiðsla meðlaga, ekki síst ef um er að ræða fleiri en eitt eða tvö börn, getur verið greiðanda þeirra þung í skauti. Ég tel hins vegar að það sjónarmið sé víkjandi í þessu máli. Ég tel að það sjónarmið sem fyrst og fremst ber að hafa í huga sé hvað framfærandi barnsins þarf að leggja í mikinn kostnað við framfærslu þess og að báðir foreldrarnir, þó svo að þeir búi ekki saman, bera þar jafna ábyrgð.
Nú koma að vísu aðrir hlutir inn í þessa mynd eins og barnabætur til einstæðra foreldra, sem eru helmingi meiri en til annarra, og hugsanlega fleiri greiðslur úr almannatryggingakerfinu. Hins vegar vita flestir að framfærslubyrði einstæðra mæðra, eða einstæðra feðra eftir atvikum, er oft svo þung að jafnvel foreldrar viðkomandi verða að koma þar til skjalanna, jafnvel þó að um það séu mörg dæmi að greiðendur meðlaga greiði sjálfviljugir hærri fjárhæðir til framfærslu barna sinna en áskilið er í lögum og er það vitaskuld jákvætt.
Ég skal ekki lengja þetta frekar, virðulegi forseti. Ég vona að félmrh. taki þetta mál upp, eins og hún hefur gefið fyrirheit um, í tengslum við endurskoðun almannatryggingalaganna og það verði þá litið á þetta mál frá grunni en ekki eingöngu með hliðsjón af því hvernig kauplag í landinu hefur hækkað heldur verður að endurskoða þennan grunn sjálfstætt með tilliti til þeirra fjölmörgu sjónarmiða sem ég hef rétt gripið hér á.