Umhverfisráðuneyti
Fimmtudaginn 16. febrúar 1989

     Flm. (Kristín Halldórsdóttir):
    Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir till. til þál. um umhverfisráðuneyti sem er á þskj. 159 og hljóðar svo, með leyfi forseta:
    ,,Alþingi ályktar að stofnað verði sérstakt ráðuneyti umhverfismála sem fari með:
    a. rannsóknir og stjórn náttúruauðlinda,
    b. náttúruvernd,
    c. umhverfisfræðslu,
    d. skipulagsmál,
    e. mengunarvarnir og
    f. alþjóðleg samskipti um umhverfismál.
    Undir þetta ráðuneyti verði fluttar stofnanir eða deildir sem nú starfa á þessum sviðum undir stjórn ýmissa ráðuneyta. Stefnt skal að setningu löggjafar um yfirstjórn umhverfismála fyrir lok yfirstandandi þings.``
    Þessa tillögu flytja með mér hv. þingkonur Danfríður Skarphéðinsdóttir, Guðrún Agnarsdóttir, Kristín Einarsdóttir, Málmfríður Sigurðardóttir og Þórhildur Þorleifsdóttir.
    Ég vil í upphafi máls míns fagna því að hæstv. menntmrh. er viðstaddur, einn af fáum, en sakna fleiri ráðherra og þá sérstaklega hæstv. forsrh. og vildi beina þeirri fyrirspurn til hæstv. forseta hvort hann sé í húsinu og hvort hægt væri að gera honum viðvart um þessa umræðu því að það væri vissulega áhugavert að heyra hans álit á þessu máli. --- Ég beindi þeirri spurningu til hæstv. forseta hvort hæstv. forsrh. væri í húsinu og hvort hægt væri að gera honum aðvart um þessa umræðu svo að hann gæti fylgst með henni og látið álit sitt í ljósi. ( Forseti: Hæstv. forsrh. mun ekki vera í húsinu, en ég mun gera tilraun til þess að fá hann hingað.) Ég þakka fyrir það.
    Ég las hérna upp þær sem eru meðflytjendur þessarar tillögu, en raunin er sú að mestan heiðurinn af mótun tillögunnar og meðfylgjandi greinargerðar á hins vegar varaþingkona Kvennalistans, Sigrún Helgadóttir, sem er sérfróð um umhverfismál og sennilega betur að sér um þau málefni en flestir aðrir Íslendingar. Það ber því sérstaklega vel í veiði að hún situr nú á þinginu í stað hv. 12. þm. Reykv. Kristínar Einarsdóttur og því hæg heimatök að leita til hennar um ýmsar útskýringar sem hún er að sjálfsögðu færari um að veita en sú sem hér stendur og hefur ekki mikið annað við að styðjast en brjóstvit og einlægan áhuga náttúruunnandans.
    Ég hef lengi átt mér þann draum, sem ég tel fyllilega raunhæfan, að við Íslendingar getum verið fyrirmynd annarra þjóða um verndun náttúrunnar og leiðandi í sókn til betra mannlífs í sátt við umhverfið. Mér finnst við hafa til þess alla burði og aðstæður, en skilningur og vilji verður auðvitað að vera fyrir hendi og slík sókn verður að vera markviss og skipulögð til að skila árangri.
    Fyrir fimm árum eða nánar tiltekið 31. jan. 1984 svaraði hv. 1. þm. Vesturl. Alexander Stefánsson, sem þá var félmrh., fyrirspurn minni varðandi umhverfismál. Tilgangurinn með þeirri fyrirspurn var að ýta á eftir efndum fyrirheits þáv. ríkisstjórnar um flutning frv. um skipan umhverfismála í stjórnsýslunni.

Um þetta efni spunnust góðar umræður með þátttöku fulltrúa allra þingflokka utan eins, held ég að ég megi segja, og allir lýstu sérstökum áhuga á þessum málum og hve brýna nauðsyn bæri til að koma þeim í gott horf. Allir virtust á einu máli um nauðsyn samræmingar þar sem tvístrun þessara mála í hin ýmsu ráðuneyti væri til mikillar óþurftar og stæði þessum málaflokki fyrir þrifum. Þáv. hæstv. félmrh. lofaði stjfrv. á því þingi og ekki seinna en í mars, eins og hann orðaði það. Það leit þó aldrei dagsins ljós og sú bjartsýni sem fyllti hug minn við þessar ágætu umræður hér í Sþ. þennan dag fyrir rúmum fimm árum dofnaði smám saman og varð raunar að algerri svartsýni eftir því sem ég kynntist betur umfjöllun á þessu málefni. Það vantar reyndar ekki að um þau er töluvert fjallað og reyndar í vaxandi mæli hér á Alþingi og er skemmst að minnast umræðna á fyrri fundi hér í dag þar sem a.m.k. fjórar fyrirspurnir gáfu tilefni til mjög góðrar umræðu um umhverfismálefni. Það er vel, en væri nú óskandi að meiri athafnir fylgdu öllum þessum orðum.
    Nokkrar tillögur hafa verið samþykktar hér á síðustu árum um einstaka þætti umhverfismála, þar af þrjár að frumkvæði Kvennalistans. Hin fyrsta var samþykkt vorið 1986 þar sem samgrh. var falið að láta gera úttekt á ferðaþjónustu í landinu og gera tillögur til úrbóta, en tilgangurinn, eins og fram kom í greinargerðinni og umræðum, var fyrst og fremst sá að auðvelda fólki að ferðast um landið og skoða það og njóta þess án þess að vinna á því spjöll. En það er því miður mála sannast að þess hefur ekki verið gætt sem skyldi og margar af okkar dýrmætustu náttúruperlum eru beinlínis í hættu vegna óhóflegs ágangs ferðamanna. Nægir að nefna staði eins og Dimmuborgir, Landmannalaugar, Þórsmörk og jafnvel fleiri sem dæmi um það. Því miður hefur þessi ályktun aðeins verið framkvæmd að hálfu þrátt fyrir eftirrekstur.
    Á sl. ári var að frumkvæði Kvennalistans samþykkt ályktun sem fól ríkisstjórninni að undirbúa frv. til l. um framleiðslu, innflutning og notkun
einnota umbúða hér á landi, en afar brýnt er að fá löggjöf um þessi efni og raunar hefði verið best ef við hefðum vaknað í tíma og haft manndóm í okkur til að banna slíkar umbúðir sem óprýða og menga óspart og e.t.v. ættum við eftir sem áður að gera það. Því miður hefur þessi tillaga heldur ekki verið framkvæmd þrátt fyrir einróma samþykkt Alþingis.
    Loks er svo tillaga okkar um eflingu og samræmingu umhverfisfræðslu í skólum og á meðal almennings sem samþykkt var á Alþingi 20. des. sl. og því ekki tímabært að lofa eða lasta framkvæmd hennar, en ég vil sannarlega vænta þess að sú ályktun verði ekki látin rykfalla því fræðsla og þekking er vitanlega grunnurinn undir öllum framförum og úrbótum í umhverfismálum.
    Ég hef aðeins nefnt þær ályktanir Kvennalistans sem samþykktar hafa verið, en auk þess höfum við oft fjallað um umhverfismál eða eitthvað þeim tengt í umræðum. Við höfum gert fyrirspurnir og tillögur og

fleiri slíkar eiga eftir að líta dagsins ljós. Ýmsir þingmenn aðrir hafa sýnt þessum málaflokki verðugan áhuga þótt ég ætli ekki að nefna nein nöfn eða tíunda þeirra framlag, en það er umhugsunarefni að allur sá áhugi sem virðist fyrir hendi á þessum málum skuli ekki hafa nýst til meiri framfara á þessu sviði. Það skyldi þó aldrei vera að það hefði eitthvað með hin margræddu efnahagsmál að gera og það verðmætamat sem er ríkjandi í þjóðfélaginu.
    Eitt af því sem stendur úrbótum í þessum málum fyrir þrifum er skortur á samræmdri löggjöf og samræmdri yfirstjórn umhverfismála og um það eru mjög margir sammála. Í meira en áratug hefur hver atrennan af annarri verið gerð í þá veru að samræma og skipuleggja stjórn umhverfismála, en allt komið fyrir ekki. Margir hv. þm. og margir sem hér eru inni þekkja þessa sögu. Hún er m.a. rakin í greinargerð á þskj. 431, en þar er að finna frv., eitt af mörgum sem samin hafa verið, um samræmda stjórn umhverfismála. Þetta frv. var samið fyrir síðustu ríkisstjórn en varð ekki flutt áður en upp úr því samstarfi sauð. Þetta frv. er nú flutt af sjö þingmönnum Sjálfstfl., örlítið breytt frá því sem unnið var fyrir ríkisstjórnina en þó í mjög litlu og sem sjá má ef menn bera saman þessi tvö þingmál, þ.e. þetta frv. og þáltill. sem kvennalistaþingkonur flytja, ber þar talsvert á milli. Við fáum vonandi tækifæri bráðlega til að ræða það frv. og ætla ég ekki að verja naumum tíma í það núna, en í greinargerð með þessu frv. kemur m.a. fram að alls hafa verið samin a.m.k. fjögur heildstæð frumvörp um yfirstjórn umhverfismála, en aðeins tvö þeirra verið lögð fram á Alþingi og annað þeirra reyndar oftar en einu sinni.
    Auk þess hafa verið fluttar nokkrar þáltill. um stjórn umhverfismála, mismunandi rækilega útfærðar, og allan þennan tíma, þ.e. síðustu 10--15 árin, hafa stjórnmálaflokkar og ríkisstjórnir lofað öllu fögru um aðgerðir. Ástæðan fyrir því að hvorki gengur né rekur í þessu efni er sú að skoðanir eru skiptar um framkvæmd málsins og skrefin eru svo feikilega misstór sem menn eru tilbúnir að stíga. Reyndar er það okkar skoðun, sem flytjum þessa tillögu, að tregðan sé ekki fyrst og fremst hjá stjórnmálamönnum heldur í kerfinu sjálfu. Umhverfismál falla að einhverju leyti undir flestöll ráðuneytin og enda þótt flestir viðurkenni óhagræði þess er tregðulögmálið ótrúlega seigt og virkt. Sem dæmi má nefna mengunarmál.
    Nú er unnið að mengunarvörnum hjá mengunarvarnadeild Hollustuverndar ríkisins, Geislavörnum ríkisins og eiturefnanefnd sem heyra undir heilbrmrn., hjá Siglingamálastofnun sem heyrir undir samgrn. og þau heyra einnig undir utanrrn. sem hefur með að gera mengun frá hernum. Þegar sett voru lög um varnir gegn mengun sjávar árið 1986, ég held að ég muni það rétt, reyndum við kvennalistakonur að sannfæra þingheim um gildi þess að nýta það tækifæri til að samræma stjórnun mengunarvarna og færa undir einn hatt, þ.e. mengunarvarnadeild Hollustuverndar, og bentum á það

sem fyrsta skref í átt til þeirrar samræmingar í stjórn umhverfismála sem koma skyldi. Á það vildi þingheimur því miður ekki fallast svo að enn eru varnir gegn mengun sjávar hjá Siglingamálastofnun.
    Það má benda á að ef herinn skyldi menga vatn á einhverri heiðinni okkar og mengunin bærist þaðan út í á og áfram út í sjó kynni það að koma til kasta a.m.k. þriggja ráðuneyta, þ.e. utanrrn., heilbrmrn. og samgrn. Það er eitthvert vit í þessu eða hitt þó heldur. En svona er þetta með íhaldssemina. Hún ríður ekki við einteyming.
    Ég á örlítið mál eftir, en ég skal stytta það mjög og vera þá þeim mun gagnorðari síðar, ef forseti leyfir. ( Forseti: Það er sjálfsagt og ég vil benda þingmanninum á að hann má tala tvisvar.) Það er nefnilega það. Ég var eiginlega ekki búin að átta mig á hvað ég var margorð og verð þá væntanlega að hlíta úrskurði forseta. ( Forseti: Þingmaðurinn má ljúka máli sínu.) Takk fyrir. Ég skal reyna að vera mjög stuttorð.
    En við kvennalistakonur höfum alveg frá upphafi verið þeirrar skoðunar að það sé nauðsynlegt að stofna sérstakt ráðuneyti umhverfismála og sú skoðun hefur margsinnis komið fram í umræðum á Alþingi og var m.a. einn af áherslupunktunum í þeim stjórnarmyndunarviðræðum sem við tókum þátt í eftir
síðustu kosningar. Sú ríkisstjórn sem nú situr hefur sem hinar fyrri haft góð orð um nauðsyn þess að samræma yfirstjórn umhverfismála og e.t.v. er hún eitthvað ögn líklegri til að standa við þau orð en hinar fyrri ef henni endist líf og heilsa og þess vegna hefði ég einmitt svo gjarnan viljað hafa hér fleiri hæstv. ráðherra viðstadda til að heyra þeirra álit á þessu máli. Ég þekki nokkuð álit hæstv. menntmrh., sem sýnir þá virðingu að vera viðstaddur umræðuna, en það hefði verið mjög áhugavert að fá frekara innlegg frá ráðherrum annarra flokka sem standa að þessari ríkisstjórn.
    En allt um það þótti okkur nú tímabært að birta á þingskjali útfærðar hugmyndir okkar um skipan umhverfismála og þær er að finna á þskj. 159. Tillagan sjálf er ekki ýkja orðmörg, en greinargerðin er ítarleg og upplýsandi um það hvernig við hugsum okkur framkvæmd þessara mála.
    Ég vil aðeins að lokum, án þess að reyna um of á þolinmæði hæstv. forseta, nefna það að okkur til mikillar ánægju hefur þessi tillaga, sem reyndar hefur legið fyrir síðan í fyrri hluta desember, þegar vakið töluverð viðbrögð og yfirleitt mjög jákvæð. Við höfum fengið nokkrar ábendingar um breytingar sem við viljum gjarnan taka til greina, en þær varða fyrst og fremst það sem fram kemur í greinargerðinni og skipta sannarlega máli við setningu löggjafar sem við leggjum til að verði fyrir lok yfirstandandi þings. Það eru einkum tvö atriði. Í fyrsta lagi að Náttúrufræðistofnun heyri öll undir umhverfisráðuneyti, bæði rannsóknarstarfsemi og safnið en ekki aðeins rannsóknarstarfsemi eins og gert er ráð fyrir í greinargerðinni, og í öðru lagi viljum við skíra jarðefna- og orkudeild upp á nýtt og gera hana að jarð-, veður- og orkudeild og láta Veðurstofu Íslands

með allri sinni starfsemi heyra undir þá deild. Við gerum okkur auðvitað ljóst að hér er um miklar breytingar á stjórnsýslunni að ræða sem kallar á enn frekari uppstokkun. T.d. eru hugmyndir um það í okkar röðum að sameina atvinnumálaráðuneytin þrjú í eitt atvinnumálaráðuneyti sem væri að mörgu leyti eðlileg skipan, en við teljum nauðsynlegt að stíga þetta skref í nýskipan umhverfismála af fullri dirfsku.
    Um frekari skýringar vísa ég þá til hv. 12. þm. Reykv. Sigrúnar Helgadóttur, en að lokinni þessari umræðu legg ég til að till. verði vísað til 2. umr. og hv. allshn.