Umhverfisráðuneyti
Fimmtudaginn 16. febrúar 1989

     Sólveig Pétursdóttir:
    Hæstv. forseti. Mig langar til að gera örfáar athugasemdir út af því máli sem hér liggur fyrir. Ég tel að þessi umræða um umhverfismál sé mjög þörf á hinu háa Alþingi og þakka hv. fulltrúum Kvennalistans og hæstv. menntmrh. fyrir þeirra framlag áðan. Það var t.d. mjög athyglisvert að heyra að fjármagn til umhverfismála sé jafnmikið og útflutningsbætur á landbúnaðarafurðum. Hv. 12. þm. Reykv. flutti mjög málefnalega ræðu áðan.
    En vegna þess að hv. 10. þm. Reykn. var hér með athugasemdir um frv. sjálfstæðismanna sem liggur fyrir deildinni langar mig til að geta þess nokkuð hver grundvöllur liggur að baki, en það kemur m.a. fram í grg., með leyfi virðulegs forseta, þar sem er vitnað í álit nefndar, að með hliðsjón af því hve umhverfismál eru víðtækur málaflokkur sé á þessu stigi ekki hægt að ganga lengra í átt til samræmingar og tilfærslu málaflokka milli ráðuneyta miðað við núverandi skipan mála í Stjórnarráði Íslands. Nefndin lítur svo á að með frv. því sem hér er lagt fram sé stigið fyrsta skrefið í þá átt að flytja málaflokkinn í heild sinni í eitt ráðuneyti. Slík tilfærsla tengist óhjákvæmilega endurskoðun laga um Stjórnarráð Íslands og nýrri verkaskiptingu ráðuneyta.
    Það kom enn fremur skýrt fram í tali hæstv. menntmrh. áðan að það hefur verið nokkur tregða á hinu háa Alþingi og hjá ráðuneytum í sambandi við þessi mál. Þar sem hann nefndi sérstaklega sínar aðgerðir í þessu máli má geta þess hér að fyrir hartnær áratug var hafist handa um könnun á nýskipun og yfirstjórn umhverfismála í Stjórnarráði Íslands. Þar var stigið mjög stórt skref. Það var reyndar í mars 1975 sem Geir Hallgrímsson þáv. forsrh. skipaði níu manna nefnd undir formennsku Gunnars G. Schram til að vinna að heildarlöggjöf um stjórn umhverfismála. Sú nefnd samdi frv. til laga um umhverfismál sem þáv. félmrh. lagði fyrir Alþingi vorið 1978 og fleiri frv. hafa verið lögð fram.
    Þess vegna skil ég ekki alveg þessar athugasemdir hjá hæstv. menntmrh. þegar hann var að tala um eitthvert lið hér í ræðustól sem væri alltaf að tala um ríkisbáknið og langar til að spyrja hann hvað hann eigi þar við.
    Enn fremur langaði mig til að spyrja hv. 10. þm. Reykn. hvað hún átti við þegar hún sagði að sú ríkisstjórn sem nú væri hér við lýði væri ögn líklegri til að standa við fyrirheit í umhverfismálum en sú fyrri. Það má kannski hafa í huga að fyrri ríkisstjórn hafi ekki unnist tími til að vinna að öllum þeim góðu málum sem hún ætlaði sér þar sem upp úr samstarfi slitnaði mjög svo skyndilega.
    Hæstv. menntmrh. sagði það beint út áðan að frv. sem þessu verði ekki komið í framkvæmd nema við stjórnarskipti. Við verðum þá að vona að stjórnarskipti verði fljótlega til þess að hægt verði að vinna betur að umhverfisvernd.