Menntamálaráðherra (Svavar Gestsson):
Virðulegi forseti. Það er aðeins út af nokkrum vinsamlegum ábendingum frá hv. 1. þm. Suðurl.
Ég fagna því að sjálfsögðu að Sjálfstfl. hefur öðlast brennandi áhuga á þeim málaflokki sem hér hefur verið ræddur í dag --- (Gripið fram í.) Já, það er spánnýtt að hann sinni þessu af svona miklum krafti. --- undir einum fimm dagskrárliðum því þetta er ekki sá fyrsti. Það er búinn að standa hér yfir fundur síðan kl. 10 í morgun. Ég fagna því og þakka fyrir þá yfirlýsingu sem áhugamaður um þennan málaflokk.
Ég vil einnig segja það í tilefni af orðum hv. 1. þm. Suðurl. áðan að það er auðvitað fullkomið samræmi í því sem við erum að gera, annars vegar menntmrh. og hins vegar fjmrh., í þessu efni. Til þess að unnt sé að sækja fram til nýrra verkefna, m.a. í stjórnkerfinu, m.a. í náttúruvernd, verður að gæta aðhaldssemi á öðrum sviðum. Það er augljóst mál. En ég endurtek það sem ég sagði áðan. Ef á að ráða við þau verkefni sem lögbundin eru samkvæmt náttúruverndarlögunum verður að leggja þarna fram aukið fé frá því sem nú er. Ef menn ekki vilja gera það skal Alþingi ákveða að breyta náttúruverndarlögunum og fækka þeim skyldum sem þar er kveðið á um eða setja sér þá gullvægu reglu að setja sér ekki önnur lög en þau sem peningar eru til fyrir.