Þorsteinn Pálsson:
    Þó að svo sé ástatt um þessa ríkisstjórn að hæstv. fjmrh. móti afstöðu hennar í öllum veigamestu atriðum efnahags-, fjármála- og atvinnumála kynni auðvitað svo að fara að aðrir hæstv. ráðherrar gætu svarað fyrir hæstv. ríkisstjórn í þessu falli þannig að athuga mætti hvort aðrir ráðherrar, sem þá kynnu að vera staddir í Alþingishúsinu, gætu svarað fyrir hæstv. ríkisstjórn.