Júlíus Sólnes:
Virðulegi forseti. Hér er hreyft mjög merkilegu máli og það rifjar upp í mínum huga umræðu sem við áttum utan dagskrár í Ed. í fyrra að frumkvæði 1. flm. þessarar till., hv. þm. Skúla Alexanderssonar. En það er alveg hárrétt, sem hefur komið fram í þeim umræðum sem hér hafa farið fram, að það hlýtur að vera eitthvað að í rekstri trygginga, bifreiðatrygginga sérstaklega. Það er ekki hægt að taka það sem gilda skýringu að við ökum svona illa, Íslendingar, að árekstrar og tjón á bílum sé miklu, miklu meira en nokkurs staðar annars staðar. Má vera að það sé eitthvað til í því að við keyrum meira á en t.d. frændur okkar og nágrannar á hinum Norðurlöndunum --- kann að vera að það geti stafað af því að hér eru akstursskilyrði oft mun erfiðari á veturna en í þeim löndum --- en ég held að það eitt sér geti ekki nægt til þess að skýra það af hverju bifreiðatryggingar eru margfalt dýrari á Íslandi en nánast nokkurs staðar annars staðar í allri Evrópu.
Ég leyfði mér áðan í umræðum að vitna örlítið til ferðar sem ég fór til höfuðstöðva Efnahagsbandalagsins í Brussel. Ég get ekki annað en rifjað upp að í þeim umræðum kom m.a. fram að sem liður í þeim frjálsu fjármagnsflutningum sem nú er stefnt að innan ríkja Evrópubandalagsins er m.a. að tryggingastarfsemi verði gefin frjáls. Það þýðir nánast að íbúi í Kaupmannahöfn, sem ekki er ánægður með bifreiðatryggingar og þau iðgjöld sem tryggingafyrirtæki í Danmörku bjóða upp á, getur þá bara ákveðið að skipta við t.d. tryggingafyrirtæki í Róm ef það býður betri kjör. Kannski eigum við Íslendingar eftir að reyna þetta einnig. Ef okkur líkar ekki við Samvinnutryggingar, svo ég nefni fyrirtæki hér, eða Brunabótafélagið eða hvaða önnur tryggingafyrirtæki sem hér starfa, þá getum við einfaldlega samið við eitthvert tryggingafyrirtæki í Róm um að það selji okkur tryggingar á miklu hagstæðara verði. Kannski er þetta sú framtíð sem við eigum eftir að standa frammi fyrir, hver veit.
En ég held hins vegar að það sé orðið algjörlega nauðsynlegt og löngu tímabært að taka af fullri alvöru á þessum málum og rannsaka ofan í kjölinn hvernig stendur á því að iðgjöld bifreiðatrygginga eru svo gífurlega há eins og raun ber vitni og styð þessa tillögu heils hugar.