Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson):
Virðulegur forseti. Það mál sem vakin er athygli á með þessari þáltill. er eitt af þeim stóru málum sem íslensk iðnfyrirtæki sérstaklega hafa um nokkuð langa hríð vakið athygli á. Það er hins vegar á ýmsan hátt mjög flókið að búa til ákveðnar reglur eða festa í sessi vinnubrögð sem tryggja að komið sé í veg fyrir innflutning á vörum sem í reynd eru fluttar inn í landið á slíkum fölsuðum pappírum. Við höfum bundið okkur í ýmsar alþjóðlegar skuldbindingar í okkar samningum sem heimila framleiðendum í þeim bandalagsríkjum og aðildarríkjum slíkra samninga innflutning til landsins. Þarna kunna að stangast á annars vegar þær reglur um verslunarfrelsi sem við höfum skuldbundið okkur til að fylgja og svo hins vegar hagsmunir framleiðenda í landinu sérstaklega. Ég er hins vegar alveg reiðubúinn að láta skoða þetta mál mjög rækilega og verði það vilji þingsins að setja upp nefnd af því tagi sem hér er flutt tillaga um mun ég reyna að tryggja við skipun nefndarinnar og við störf hennar að hún geti skilað mjög ítarlegu og efnismiklu áliti um málið svo að hægt sé að byggja á því einhverjar aðgerðir. Ég teldi hins vegar æskilegt að sú nefnd sem fær þessa tillögu til umfjöllunar kannaði með viðræðum bæði við fulltrúa ráðuneyta og fulltrúa hagsmunaaðila í verslun og framleiðslu með hvaða hætti sé hægt að tryggja að slík nefndarstörf skili raunverulegum árangri. Ég held að það mundi ekki þjóna þeim tilgangi sem liggur á bak við tillöguna að nefndarstarfið leiddi ekki til ákveðinnar og skýrrar niðurstöðu. Ég mælist þess vegna til þess að að því verði hugað í störfum nefndarinnar, en er reiðubúinn að leggja því gott lið, sé það vilji Alþingis að þessi athugun fari fram, að hún takist á eðlilegum tíma. Hvort það eru þau tímamörk sem flm. hefur í huga treysti ég mér ekki til að dæma um á þessu stigi.