Lánsfjárlög 1989
Föstudaginn 17. febrúar 1989

     Frsm. minni hl. fjh.- og viðskn. (Halldór Blöndal):
    Hæstv. forseti. Við höfðum gert samkomulag um það að umræðan gæti orðið í dag og þá hafði maður reiknað með því að fundurinn gæti gengið fyrir sig með eðlilegum hætti. Af þeim sökum að ég hafði staðið að því samkomulagi féllst ég á að ljúka ræðu minni í dag án þess að þeir ráðherrar væru við sem mér þótti eðlilegt að væru við þessa umræðu. En nú er komið í ljós að hv. 4. þm. Austurl. kom að máli við hæstv. forseta í gær og lét í ljós óskir um að hæstv. landbrh. yrði viðstaddur umræðuna í dag varðandi þá þætti sem snerta embætti hans. Ef einstökum ráðherrum þykir ekki meira liggja við en svo að þeir geti verið fjarverandi þessa umræðu þó að óskir komi fram um hið gagnstæða get ég ekki séð annað en ríkisstjórnin hafi af sinni hálfu rofið það samkomulag sem gert var við stjórnarandstöðuna um að þetta mál yrði afgreitt frá Ed. í dag. Ég vil því óska eftir að þessari umræðu verði slegið á frest til þess að hv. 4. þm. Austurl. geti flutt sína ræðu. Við getum tekið verðlagsmálin fyrir nú og séð til hvort landbrh. sýnir sig, en það var samkomulag um að ljúka þeirri umræðu í dag.