Halldór Blöndal:
Hæstv. forseti. Hæstv. iðnrh. hefur skýrt frá því í ræðu að ríkisstjórnin hafi beitt sér fyrir sérstökum aðgerðum stjórnvalda í þágu útflutningsgreina sem m.a. lýsa sér í því að gefin hefur verið út almenn tilkynning um breytta framkvæmd á lögum um ráðstafanir ríkisfjármála og lánsfjármála. Vil ég óska eftir því að áður en umræðum um lánsfjárlög verður haldið áfram fái deildarmenn þau plögg, yfirlýsingar, reglugerðarbreytingar eða annað það úr viðkomandi ráðuneyti sem varðar yfirlýsingu hæstv. viðskrh. Það er auðvitað með öllu óþolandi að ráðherrar séu með einhvern feluleik í þessum málum, komi hingað upp í þingdeildir og þykist vera að gera eitthvað þegar þeir hafa sjálfir staðið fyrir því að fella þingmál um sama efni fyrr á þessu þingi. Ég held þess vegna að það sé nauðsynlegt fyrir þingdeildina að fá þau gögn sem þetta sérstaka mál varðar til þess að einstakir þingmenn geti glöggvað sig á því hvernig málið er vaxið og hvernig lögformlega að því er staðið. Ég veit að hæstv. forseti mun verða við þessari beiðni. Ég vek athygli á því að það var ráðherra ríkisstjórnarinnar sem dró þessar sérstöku aðgerðir ríkisstjórnarinnar inn í umræðurnar, sérstakar aðgerðir sem ég hef ekki fyrr heyrt um en nauðsynlegt er að fá frekari upplýsingar um.