Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson):
Virðulegi forseti. Ég vildi fyrst segja alveg skýrt að það er alls ekki gert ráð fyrir því að Verðlagsstofnun frekar en aðrar stofnanir ríkisins verði undanþegin þeim sérstöku sparnaðarráðstöfunum sem fjmrn. hefur ákveðið í framhaldi af samþykktum fjárlögum. Það gefur auga leið að þar verður eitt yfir alla að ganga. En hitt er annað mál að það er samkomulag milli mín og fjmrh. að það verði sérstaklega veitt fé til þessa samstarfs við verkalýðs- og neytendafélögin. Ég tek undir það, sem hér kom fram, að það er ákaflega mikilvægt að það verði vel rækt. Það er sannarlega mitt áhugamál að úr því verði. ( EgJ: Hvaðan á að taka þá peninga?) Úr ríkissjóði, hv. þm. Þarna verða menn að halda því aðgreindu að það er óhjákvæmilegt að ráðstafanir eins og lýst hefur verið um sérstakar sparnaðaraðgerðir og umræða hefur farið fram um allmikil þurfa að eiga við um allar stofnanir. Eins þær þar sem verið er að bæta við fé. Þær eru ekki undan því þegnar heldur eiga þær að nota það fé sem þannig er við bætt til þeirra sérstöku verkefna sem það er ætlað.
Að öðru leyti tel ég ekki ástæðu til að hafa mörg orð um það sem kom fram í ræðu hv. 2. þm. Norðurl. e. Það er kannski ástæða til að rifja upp að á verðstöðvunartímanum hefur verðlag hækkað um nálægt 4% þessa fimm mánuði. Einungis fjórðunginn af því er hægt að rekja beint til skattbreytinga. Annað kemur eftir öðrum leiðum. Þetta hefur nýlega komið fram í sundurgreiningu á þessum verðbreytingum. En það er sjálfsagt að verða við þeirri ósk þingmannsins að útvega sundurliðun Hagstofunnar á þeim verðbreytingum sem orðið hafa á þessu tímabili.
Sannleikurinn er sá að verðstöðvunin hefur tekist vonum framar. Það er að vísu rétt að það reyndist óhjákvæmilegt og að nokkru leyti ófyrirséð hversu mikið þurfti þar að gera til að útvega fé til ríkisins. Hjá því varð ekki komist og stjórnin er að því meiri að hafa horfst í augu við það og lagt á skatta eins og þurfti til að rísa undir útgjöldunum. Það má deila um allar skattbreytingar og verður jafnan gert, var gert í þetta sinn og auðvitað eru missmíðir einhverjar á þeim eins og gengur. En kjarninn í málinu er samt sá að verðstöðvunin tókst vonum framar og einmitt þess vegna er mikilvægt að umþóttunin að henni lokinni verði þannig að ekki sé vakinn upp verðbólgudraugurinn á ný.