Egill Jónsson:
Herra forseti. Ég kem ekki auga á hæstv. landbrh. enn þá. ( Forseti: Hann var í deildinni áðan og mun væntanlega hafa farið í Nd. En ég hef óskað eftir því að hann komi.) Já, herra forseti. Ég veit að hæstv. landbrh. telur það ekki eftir sér að sitja hér nokkra stund meðan ég skýri þær brtt. sem ég hef lagt fram og lýsi aðeins viðhorfum mínum til þeirra mála. Það kemur af sjálfu sér að hæstv. fjmrh. er í deildinni svo ég þarf ekki sérstaklega að óska eftir hans nærveru.
Eins og deildarþingmönnum er væntanlega ljóst var æðimikill ágreiningur milli manna við fjárlagagerð um greiðslur til bænda vegna jarðræktar og búfjárræktarmálanna. Það er raunar ekki í fyrsta skiptið. Fjarri er mér að dylja að sams konar ágreiningur var uppi fyrir einu ári síðan og þá í fleiri efnum og þá vannst að vissu leyti varnarsigur í þessum efnum þó að á ógæfuhliðina hafi sigið síðan.
Það sem er hins vegar nokkurt undrunarefni eru þær þrætur sem eru út af jarðræktarlögunum og þeim fjárveitingum sem ganga eða hafa gengið til landbúnaðarins þeirra vegna. Það vill svo til að þær greiðslur hafa farið lækkandi ár frá ári og án þess að ég hafi kannað það alveg nákvæmlega núna hygg ég að þær séu helmingi lægri en þær voru fyrir fjórum árum. Ég vildi gjarnan auglýsa eftir einhverjum fjárlagalið sem hefur gengið saman með svipuðum hætti. Samt hafa menn alltaf hér á Alþingi í umræðunni verið að tala um sjálfvirkni og eyðslu í þessum efnum.
Það gagnstæða liggur fyrir og er reyndar sönnun þess hvernig bændur landsins hafa samið sig að breyttum háttum í landbúnaði. Þetta vildi ég undirstrika m.a. vegna þess að hversu miklu hitamáli er búið að gera þetta mál og blása það á þann veg út.
Ég geri ekki ráð fyrir að ég hafi sömu skoðanir og hæstv. landbrh. og ýmsir aðrir um gildi þessara lagaheimilda, en það er hins vegar létt verk að sanna að þær hafa leitt til mikilla umbóta í þessum efnum og lækkaðs vöruverðs. Í því sambandi er kannski vert sérstaklega að minna á að fyrir liggur úttekt á því hversu mikið opinbert fjármagn, lán úr Stofnlánadeild landbúnaðarins og framlög samkvæmt sérlögum landbúnaðarins hefur farið til uppbyggingar í hefðbundnum landbúnaði. Þær niðurstöður sýna með ótvíræðum hætti að aðeins einn þriðji hluti af því fjármagni sem hefur farið til að byggja upp landbúnaðinn hefur komið annars staðar frá en frá bændunum sjálfum.
Þetta er að sjálfsögðu grundvallaratriði og gerir m.a. að verkum núna hvað staða landbúnaðarins er að mörgu leyti sterk sem byggir einmitt á góðri eiginfjárstöðu þessarar greinar. Ef svo litið er aftur á hvað mikið af fjármagnskostnaði gengur inn í verðlagningu á landbúnaðarvörum sjá menn að það er að sjálfsögðu ekki í nokkru einasta samræmi við þau verðmæti sem í þeirri grein liggja þannig að hér er um stórkostlega þjóðhagslega mikilvæga niðurstöðu að ræða.
Hins vegar er svo það, sem skiptir máli í sambandi
við þá umræðu sem fram fer um þessi mál og eftir á að fara fram, hvort menn telja ekki lengur þörf fyrir umbætur í landbúnaði. Það er gífurlega mikil spurning.
Ég ætla ekki að þreyta hæstv. landbrh. á því að tala um þau efni núna, það verða kannski tök á að fjalla um þá þætti málefnalega síðar á þessum vetri, en það er hins vegar allt of víðtæk skoðun að það sé ekki orðin lengur þörf fyrir umbætur í landbúnaði. Það er einmitt af þessari ástæðu sem jarðræktarlögin og búfjárræktarlögin þurfa að sæta svo harðri meðferð sem raun ber vitni um.
Ég minntist á það áðan að jarðræktarlögin, sú löggjöf, hefðu verið bændum landsins mikilvæg. Hún var sett árið 1923 af einhverjum allra fremstu búnaðarfrömuðum sem uppi hafa verið og hún hefur verið virt þar til á þessu ári. Það var í fyrsta sinn í fyrra sem voru settar inn heimildir fyrir því að virða ekki þessa löggjöf og nú hefur verið gengið fetinu lengra í þeim efnum því að svo vill til að á fjárlögum fyrir yfirstandandi ár er einungis fjárveiting svo að segja nákvæmlega, ég held að það verði kannski 2 millj. eftir, til að greiða fyrir framkvæmdir sem voru unnar á árinu 1987.
Nú er þetta á margan hátt afar bagalegt og m.a. vegna þess að ýmsar ákvarðanir eru lögbundnar. T.d. er á grundvelli jarðræktarlaganna gengið frá verksamningum, sem auðvitað eru tímasettir, og við þessa verksamninga er ekki hægt að standa. Ég held að það séu afar fá dæmi þess að þannig sé gengið frá fjárlögum og lánsfjárlögum að það séu beinlínis teknar ákvarðanir um að virða ekki samningsrétt. Menn geta eðlilega haft og hafa ýmsar meiningar um jarðræktarlögin og ég ætlast ekki til þess að menn séu þar allir á sama máli og ég, fjarri því, og ég veit að svo er ekki. En menn ættu þó að vera nokkurn veginn sammála um siðferðisþáttinn í þessum málum, að menn virði landslög og að menn virði hefðir í mannlegum viðskiptum. Sá þáttur þessa máls á ekki að fara og getur ekki farið eftir því hvað mikinn áhuga menn hafa fyrir landbúnaðarmálum nema þá því aðeins að menn telji að það sé hægt að hafa aðra framkomu gagnvart bændum og bændastéttinni almennt en almennt gerist í þjóðfélaginu, að það þurfi ekki eins trúverðuga framkomu gagnvart því fólki og
öðru fólki í landinu. Í þeim efnum held ég að nokkuð sé óhætt að fullyrða að bændur landsins óska ekki eftir neinum forréttindum en a.m.k. svipaðri framkomu siðferðislega séð og gildir í almennum mannlegum viðskiptum í landinu.
Eins og ég gat um áðan var þetta mál ágreiningsefni við fjárlagagerð og m.a. í meiri hlutanum. Svo vill til að sú umræða sem fram fór við fjárlagagerðina staðfestir þessi orð mín. Þar segir svo, með leyfi hæstv. forseta, í ræðu formanns fjvn. og frsm. þar sem hann fjallar um afgreiðslu þessa máls og yfirlýsingu landbrh.: ,,Í tengslum við endurskoðun og afgreiðslu nefndra lagabreytinga er ætlunin að ganga frá uppgjöri á skuldum vegna þegar tilkominna framkvæmda samkvæmt gildandi jarðræktar- og
búfjárræktarlögum og leita samkomulags um greiðslu þeirra á tilteknu tímabili.``
Það fer að sjálfsögðu ekki á milli mála hver ætlun ríkisstjórnarinnar var í þessum efnum. --- Ég get, virðulegi forseti, dokað við á meðan hér fer fram ríkisstjórnarfundur. (Gripið fram í.) Ekki er hægt að sjá á verkum þeirra að það fari sérstaklega fyrir því. --- Það kemur vel fram í ræðu Alexanders Stefánssonar að Framsfl. hefur verið nokkuð mikið niðri fyrir í þessum efnum. Hann segir að þar hafi landbrh. gefið yfirlýsingu að hans kröfu um greiðslur vegna jarðræktar- og búfjárræktarlaga. Hér segir, með leyfi forseta:
,,Formaður fjvn. las í sinni ræðu yfirlýsingu sem núv. landbrh. gaf að kröfu meiri hl. fjvn. um meðferð á þessum mikilvægu málum, þ.e. jarðræktarstyrkjunum og búfjárræktarlögunum, þar sem fram kemur að hæstv. ráðherra lýsir því yfir og þá um leið í umboði ríkisstjórnarinnar að hann muni leggja fram ný lagafrv. um þessi mál á þessu þingi og jafnhliða þeim muni verða gerðar ráðstafanir til þess að staðið verði við þær greiðslur sem bændur eiga rétt á samkvæmt gildandi jarðræktarlögum og verði gengið frá þeim málum á þessu ári.``
Þetta eru orð þessara tveggja forustumanna ríkisstjórnarinnar í fjvn., formanns og varaformanns. Nú er það mál út af fyrir sig hvað það þjónar miklum tilgangi eða til hvers það er sérstaklega tilgreint að þetta uppgjör eigi að fara fram samhliða breytingum á búfjárræktarlögunum vegna þess að þau lög eru í gildi og þau hafa verið lögð til grundvallar við framkvæmd verka og þar af leiðandi er það allt annað mál en hitt, hvort menn kunna að gera breytingar á slíkum lögum. Það stendur í valdi hverrar ríkisstjórnar og það er vitanlega ekkert um það að segja. Meiri hlutinn ræður í þeim efnum eins og öðrum. En það er jafnóeðlilegt að skilyrða þessar breytingar eða skilyrða áfallnar greiðslur við breytingar á lögunum. En jafnvel þó þessu sé hvoru tveggja sleppt skiptir hitt enn meiru máli, og það er raunar aðalatriði málsins eins og það snýr við núna, að með þeirri afgreiðslu sem hér er að stefnt í lánsfjárlögum eru þessar heimildir dregnar til baka.
Í 23. gr. frv. til lánsfjárlaga segir, með leyfi forseta: ,,Þrátt fyrir ákvæði 10. gr. laga nr. 56/1987, jarðræktarlaga, skal framlag ríkissjóðs til jarðabóta eigi fara fram úr 100 millj. kr. á árinu 1989.``
Heimildin er sem sagt einungis bundin við að greiða upp það sem út af stóð vegna framkvæmda ársins 1987 og yfirlýsingarnar sem formaður og varaformaður fjvn. voru þannig að hafa eftir hæstv. landbrh. eru að engu gerðar. 23. gr. segir með alveg skýrum hætti að það eigi alls ekki að greiða meira, heimildirnar ná ekki lengra en að greiða þær 100 millj. sem eru á fjárlögum --- og vona ég að hæstv. fjmrh. heyri líka mitt mál. 24. gr. felur sams konar ákvörðun í sér. Þar segir, með leyfi hæstv. forseta: ,,Þrátt fyrir ákvæði laga nr. 31/1973 um framlög til búfjárræktar skal framlag ríkissjóðs vegna búfjárræktarstyrkja falla niður á árinu 1989.``
Það er sem sagt með ákaflega skýrum hætti tekið aftur sem var verið að hafa eftir hæstv. landbrh. við fjárlagagerðina. Orð hans eru að þessu leyti gerð marklaus.
Svo er rétt til viðbótar við þetta að hæstv. fjmrh. hefur efnt til nokkurs samráðs við fjvn. Alþingis sem ég held að öllum þeim sem þar hafa komið nærri hafi þótt til fyrirmyndar. Þar hefur m.a. verið fjallað um ýmsan tvískinnung sem hefur komið fram við afgreiðslu fjárlaga og aukafjárveitingar og annað slíkt --- og hefur það verið málefnaleg umræða --- sem mér hefur virst að hæstv. fjmrh. hafi sérstakan áhuga að leggja af og fjárveitinganefndarmenn. Þess vegna sætir það mikilli furðu að á sama tíma og menn eru að ræða saman á þeim nótum skuli vera efnt til jafnmikils tvískinnungs og hér er staðfestur.
Þetta vildi ég leggja áherslu á og það er af þessari ástæðu sem ég legg fram tillögur um að fella þessar tvær greinar niður. Þeir sem hafa treyst á orð og yfirlýsingar hæstv. landbrh. við fjárlagagerð hafa þar með eignast aftur vonina um að það næðist einhver árangur á grundvelli þeirra markmiða sem landbrh. hefur þannig sett fram. Það getur ekki gerst með því að hafa þessar tvær greinar, 23. og 24. gr., í þessu frv. og þess vegna legg ég til að þær verði felldar niður.