Egill Jónsson:
Herra forseti. Ég fagna því að hæstv. landbrh. skyldi taka þátt í þessari umræðu og það er mjög mikilvægt að hann skuli hafa staðfest skilning minn í þessum efnum. Það er þó tvennt alveg sérstaklega sem ég vildi taka fram og reyndar vakti nokkra undrun mína að hæstv. landbrh. talar um að hann vonist til þess að það sé hægt að komast að samkomulagi við bændur um afhendingu þessa fjár. Við hverja ætlar hann að semja um það? Það eru eitthvað milli 4 og 5 þús. manns í bændastéttinni og það er hverjum og einum þessara manna ákveðinn réttur í jarðræktarlögunum. Það eru engin samtök, hvorki Búnaðarfélagið né Stéttarsambandið, sem geta sett sig í einhverja samningsstöðu við bændur landsins um þá greiðslu sem nú er áfallin. Það er annað hvað verður sett inn í næstu jarðræktarlög. Það er bara annað mál. Auðvitað er ekki hægt að fara að öðru en því sem gildir hverju sinni og hér hefur verið ákveðið að það eigi ekki að inna þessa greiðslu af hendi. Allt samningstal um þessi efni eru þess vegna slaufur einar saman, hreinar slaufur.
Hitt atriðið sem ég undirstrika alveg sérstaklega í þessum efnum er að landbrh. segir að yfirlýsingar hans standi enn þá. Það er að því leyti rétt að þær standa meðan ekki er búið að samþykkja lánsfjárlögin, það er hárrétt, en þegar búið er að samþykkja lánsfjárlög standa þær ekki lengur. Hér er, með leyfi forseta, sagt með alveg skýrum hætti gagnvart jarðræktarlögunum: ,,Skal framlag ríkissjóðs til jarðabóta eigi fara fram úr 100 millj. kr. á árinu 1989.`` Það er hvergi nokkurs staðar minnst á að það eigi að taka mið af yfirlýsingum landbrh. í þessum efnum. Það er kveðið skýrt á um að þær eigi ekki að hafa að nokkrum sköpuðum hlut. Í 24. gr. segir um framlög til búfjárræktar: ,,Skal framlag ríkissjóðs vegna búfjárræktarstyrkja falla niður á árinu 1989.`` Menn geta hver og einn borið þessar lagagreinar saman við yfirlýsingar sem voru gefnar áður en þessi afgreiðsla fer fram.
Það sem kom hins vegar fram, og ég skal ekkert draga það undan, í máli hæstv. landbrh., þó að það væri sett fram af gætni, var að það væri hægt að setja inn ákvæði, setja lög sem kvæðu á um annað á árinu. Auðvitað er það hægt. En til hvers er þá verið að setja þetta? Því í ósköpunum er þá verið að setja inn þessar greinar ef menn ætla sér að ganga frá þessum málum með löggjöf? Liggur það kannski ekki alveg ljóst fyrir hvort sú löggjöf næst fram á Alþingi? Ef svo er ekki, þ.e. ef hæstv. landbrh. hefur það ekki í hendinni að koma þeirri löggjöf fram, sjá allir að hverju er stefnt hér og hver er niðurstaðan og hvað mikið hald er í þeim yfirlýsingum sem hann hefur gefið. Það liggur alveg ljóst fyrir.
Efnislega ætla ég ekki að tala um jarðræktarlögin hér, en ég vil hins vegar minna hæstv. landbrh. á að þau eru ekki orðin gömul. Þau eru frá árinu 1987. Þá var farið mjög vandlega yfir jarðræktarlögin og þeim var einmitt breytt með tilliti til breyttra aðstæðna. Ég man ekki betur en t.d. það ákvæði sem hann talaði
hér sérstaklega um, skjólbeltaræktun, sé í jarðræktarlögunum, stuðningur við skjólbeltaræktun, a.m.k. í skógræktarlögunum. Þar er ekki nein nýjung á ferð. Auk þess sem í þeim efnum hafa verið á síðustu árum, m.a. á síðustu fjárlögum, gerðar ráðstafanir til að efla ræktun skóga í hefðbundnum landbúnaði.
Ég dreg ekki í efa vilja hæstv. landbrh. og það var því víðs fjarri að ég væri að óska eftir því að hann tæki þátt í þessari umræðu vegna þess að ég hefði einhverja sérstaka þörf fyrir að koma á hann höggi, það er víðs fjarri því, en það er mikilvægt að hann hefur staðfest það sem ég sagði áðan í fyrri ræðu minni. Hann ræddi að vísu ekki um siðferðisþáttinn í þessum málum. Ég mótmæli því að skerðingar á jarðræktarlögum og búfjárræktarlögum séu sama eðlis og aðrar hliðstæðar ákvarðanir vegna þess að það er búið að stofna til útgjaldanna áður en tekin er ákvörðun um að skerða. Það er grundvallaratriði að menn átti sig á því. Ákvörðun um að greiða ekki jarðabótastyrk er ákvörðun um að afhenda ekki það fjármagn sem menn voru í góðri trú um að eiga rétt á þegar þeir unnu framkvæmdina og þegar þeir stofnuðu til hennar. Það er alveg grundvallarmunur á því hvort ríkisstjórnin breytir lögunum eða hvort hún gengur á þann rétt sem hefur gilt og ákvarðanir manna byggðust á á sl. ári.
En hér höfum við sem sagt fengið staðfestingu á því hvernig þessi mál standa og nú ættu menn, ef mönnum er alvara með að það eigi að nást fram endurskoðun á þessum lögum á þessu ári og ef menn í einlægni ætla að vinna að lausn þessa máls í bærilegri sátt, að manna sig upp og kippa þessum tveimur greinum í burtu.