Lánsfjárlög 1989
Föstudaginn 17. febrúar 1989

     Egill Jónsson:
    Herra forseti. Það kom skýrt fram við atkvæðagreiðslu um lánsfjárlögin hver hugur þingdeildarinnar stæði til 23.--24. gr. frv., einmitt þeirra greina sem ég hef gert tillögur um að yrðu felldar niður, og ég er þakklátur fyrir þann mikla stuðning sem þar kom fram. En með því að afstaða deildarinnar liggur fyrir sé ég ekki ástæðu til þess að brtt. mínar gangi til atkvæða.