Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson):
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frv. til l. um norrænan þróunarsjóð sem er á þskj. 273. Þetta frv. er komið frá Ed. og var þar mælt fyrir því 4. jan. sl. Þetta frv. er flutt í framhaldi af þáltill. sem samþykkt var í Sþ. fyrir síðustu jól um heimild fyrir ríkisstjórnina að fullgilda Norðurlandasamning frá 3. nóv. 1988 um stofnun norræns þróunarsjóðs. Markmiðið með stofnun þessa sjóðs er að örva félagslegar og efnahagslegar framfarir í þróunarlöndum. Sjóðurinn skal einbeita sér að fátækustu löndunum og veita lán sem eru með líkum kjörum og Alþjóðaframfarastofnunin IDA, sem er systurstofnun Alþjóðabankans í Washington, veitir fátækum ríkjum.
Þessi lán IDA eru til langs tíma og vaxtalaus að kalla. Þau voru lengst af frá árinu 1961, þegar IDA hóf sína starfsemi, til 50 ára og vaxtalaus en þó með allt að 0,5% lántökugjaldi. Nú eru þess lán yfirleitt til 35 eða 40 ára, veitt eingöngu tekjulægstu löndunum og án vaxta, yfirleitt afborgunarlaus fyrstu 10 árin.
Það er fyrst og fremst verkefni Norræna þróunarsjóðsins að lána til þessara landa og verkefna í þeim þar sem norrænir hagsmunir eru í húfi af hálfu verktaka og annarra verkseljenda og þar sem aðrar lánastofnanir, eins og t.d. Norræni fjárfestingarbankinn, lána síðan viðbótarlán á venjulegum kjörum og svo að sjálfsögðu þróunarstofnanir aðildarlandanna og aðrar lánastofnanir þeirra, útflutningslánakerfi o.s.frv. Með þessum hætti verður unnt að hleypa af stokkunum verðugum og nauðsynlegum verkefnum sem e.t.v. mundu annars ekki standast ávöxtunarkröfur sem venjulegar lánastofnanir gera. Auk þess opnast Norðurlöndunum með þessu leið til að keppa við aðrar iðnaðarþjóðir sem margar hafa við hliðina á sínum venjulegu útflutnings- og framkvæmdalánastofnunum fyrirkomulag mjúkra lána eins og þetta er oft kallað. Með stofnun sjóðsins geta Norðurlöndin í sameiningu einnig boðið upp á slík lán við hliðina á venjulegum framkvæmda- og útflutningslánum. Þetta hlýtur að auka möguleika norrænna fyrirtækja í samkeppni um verkefni í þróunarlöndunum þar sem þekking og framleiðslugeta norrænna fyrirtækja getur komið viðkomandi þjóðum að góðu gagni.
Það mun styrkja þennan nýja sjóð að hann starfar með norræna fjárfestingarbankanum og norræna verkefnaútflutningssjóðnum og þannig er hægt að beita samstilltum aðgerðum til að fjármagna nytsamar framkvæmdir í þróunarlöndum. Sjóðnum er auðvitað fyrst og fremst ætlað að styrkja þjóðir þriðja heimsins í framþróun þeirra, en að svo miklu leyti sem slík þróun byggist á aðkeyptri þjónustu og búnaði styrkir hann líka aðstöðu norrænna fyrirtækja og þar með talin íslensk ráðgjafar- og verkfræðifyrirtæki og framleiðendur á sérhæfðum búnaði, t.d. á sviði fiskveiða og fiskvinnslu. Stofnfé þessa nýja sjóðs eru 100 millj. sérstakra dráttarréttinda sem skal greiða á fimm árum, en það svarar um 6,73 milljörðum kr. á núverandi gengi. Hluti Íslands er 67,5 millj. kr. eða
13,5 millj. kr. á ári og það er gert ráð fyrir fjárframlagi til þessarar sjóðsstofnunar í fjárlögum þessa árs.
Þetta frv., sem hér liggur fyrir þinginu, er flutt til þess að tryggja sjóðnum fullnægjandi heimildir vegna hugsanlegrar starfsemi hans hér á landi, en hann mun hins vegar hafa aðalskrifstofu í Helsinki. Í raun og veru hefur þingið þegar tekið afstöðu til efnisatriðisins, sem er stofnun sjóðsins, með þeirri þáltill. sem var samþykkt hér í Sþ. fyrir jól. En ég vík þá að einstökum atriðum í frv.
Þar er í fyrsta lagi í 2. gr. ákvæði um að sjóðurinn skuli vera undanþeginn greiðsluhöftum og efnahagsaðgerðum á sviði lánamála sem gætu komið í veg fyrir eða torveldað starfsemi hans eða girt fyrir að hann gæti staðið við sínar skuldbindingar. Með einföldum orðum talað er hann undanþeginn ákvæðum laganna um skipun gjaldeyris- og viðskiptamála hér á landi að svo miklu leyti sem það kynni að hamla starfsemi hans ef sjóðsstjórnin kynni að ákveða að reka hér einhvern tíma einhverja starfsemi.
Þá er í öðru lagi í 3. og 4. gr. ákvæði þess efnis að sjóðurinn sé undanþeginn opinberum gjöldum hér á landi. Tilgangurinn sá sami og með 2. gr., þ.e. ef svo færi að sjóðurinn vildi reka hér einhverja starfsemi njóti hann sömu réttinda hér og hann nýtur í Helsingfors þar sem hann hefur aðalskrifstofu.
Í þriðja lagi eru svo ákvæði um gildistöku laganna í 5. gr. Hún er tengd gildistöku Norðurlandasamningsins um sjóðinn, en hann hefur þegar verið samþykktur eins og ég sagði áðan með þáltill. sem samþykkt var hér fyrir sl. jól.
Virðulegi forseti. Ég legg áherslu á að þetta frv. nái sem fyrst fram að ganga og ég legg til að því verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. fjh.- og viðskn.