Forsætisráðherra (Steingrímur Hermannsson):
Herra forseti. Við umræður um þetta mál nýlega kom fram ósk um að ég kynnti reglugerðardrög fyrir hlutafjársjóð Byggðastofnunar sem 10. gr. frv. gerir ráð fyrir að settur verði á fót í tengslum eins og þar segir við fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja. Ég sagði þá að því skyldi ég lofa í síðasta lagi áður en málið væri afgreitt frá Ed. Síðan kom fram ósk um að þetta yrði kynnt áður en málið fer frá hv. Nd. og ég vil verða við því. Að þessum reglugerðardrögum hefur verið unnið mikið núna upp á síðkastið og margir til kvaddir. Ég óskaði eftir því við aðstoðarmann minn að hann kynnti þetta fyrir talsmönnum stjórnarandstöðunnar í gær og ég hygg að það hafi verið gert.
Þetta er alls ekki auðvelt mál. Þarna er um mikla hagsmuni að ræða og margir sem þurfa að koma að því að koma í veg fyrir skulum við segja mikla byggðaröskun og vandræði í ýmsum byggðarlögum í kringum landið. Eins og nú standa mál mun Atvinnutryggingarsjóður hafa afgreitt um það bil 90 umsóknir af um 190--200. Ég held að það megi segja að það sé óvenjuhröð aðgerð þegar um skuldbreytingu er að ræða. Ástæðan fyrir því að ekki er komið lengra er fyrst og fremst sú að það vantar reikninga frá mörgum fyrirtækjum. Þá reikninga er nú verið að vinna og er eðlilegt að eftir þeim sé beðið. Af þessum umsóknum hygg ég að um það bil 55 hafi verið afgreiddar jákvætt, þ.e. skuldbreyting hefur fengist, og er það að sjálfsögðu byggt á þeirri niðurstöðu samstarfsnefndar að þessi fyrirtæki hafi eftir skuldbreytinguna rekstrargrundvöll og sömuleiðis að eiginfjárstaða sé í lagi. Ég hygg að það megi segja að mjög hafi greiðst úr sölu skuldabréfa og þó að það séu enn þá á einstaka stöðum einhver vandkvæði er það ekki stórt. Ég held að það megi örugglega segja að þessi aðgerð hafi sannað nauðsyn sína. Það hafa fjölmargir sem fengið hafa skuldbreytingu borið.
Hins vegar eru rúmlega 30, líklega orðin um 33--34 fyrirtækin sem hafa fengið neitun á þeirri forsendu að þau hafi ekki rekstrargrundvöll að mati samstarfsnefndarinnar. Þessum fyrirtækjum mun fjölga. Það er álit starfsmanna Byggðastofnunar að þetta muni vera hátt í 40% þeirra fyrirtækja sem þarna sækja um. Nú er að vísu mjög mismunandi ástatt með þessi fyrirtæki. Sum eru með jákvæða eiginfjárstöðu en ekki með rekstrargrundvöll, allt of litla framlegð o.s.frv. Önnur eru með afar neikvæða eiginfjárstöðu og alls ekki séð hvernig þeim verður komið til aðstoðar án þess að málið sé gengið í gegnum gjaldþrot eða nauðasamninga eða hvað sem menn geta hugsað sér í því sambandi eða hvort eigendur geta þá aukið sjálfir verulega við eigið fé. Sum þessara fyrirtækja eru meginstoð atvinnulífs í byggðarlögum allt í kringum landið og hefur athygli Byggðastofnunar ekki síst beinst að þeim fyrirtækjum. Ég hef óskað eftir því við Byggðastofnun að hún skoði slík fyrirtæki mjög vandlega og sömuleiðis hef ég beint þeirri ósk til viðskiptabanka og Fiskveiðasjóðs að þeir geri það. Ríkisstjórnin hefur ekki sjálf haft afskipti af þeim
málum. Að mati forstjóra Byggðastofnunar eru fyrirtækin 15--20 sem eru máttarstoð atvinnulífs í byggðarlögum.
Nú hefur verið dálítið um það rætt hér hvort hugmyndin hafi verið að hlutafjársjóður Byggðastofnunar kæmi að þessum fyrirtækjum. Ég skal ekki segja hver upphaflega hugmyndin í því sambandi var, en ég held að tvímælalaust beri þeim stofnunum sem að þessum málum starfa og ríkisvaldinu skylda til að skoða það atvinnuástand sem skapast á ýmsum stöðum ef fyrirtækin stöðvast og kanna allar leiðir til að koma í veg fyrir slíkt og þá miklu byggðaröskun sem þessu getur fylgt. Ég tel fyrir mitt leyti að hlutafjársjóður Byggðastofnunar geti orðið mjög mikilvægur í þessu sambandi. Ég er hins vegar alls ekki að draga úr því að hlutafjársjóðurinn geti komið að öðrum málum þegar fram í sækir og víða um lönd eru starfandi stofnanir sem annast hlutafjáreign stjórnvalda eða ríkis í hlutafélögum í viðkomandi landi. Svo er t.d. í Svíþjóð og víða annars staðar og ég get séð fyrir mér að þessi sjóður geti orðið vísir að slíkri stofnun. En það sem að okkur snýr núna er hvort þessi sjóður geti orðið að liði við að bæta eiginfjárstöðu fyrirtækja og ég vek athygli á því að m.a. í síðustu ríkisstjórn var mjög talað um hvernig væri hægt að bæta eiginfjárstöðu fyrirtækja. Ég hef því látið semja drög að reglugerð sem ég ætla að lýsa í megindráttum, en verð að taka fram að hún er enn þá til meðferðar hjá ýmsum aðilum og þó að athugasemdum hafi fækkað eru þó ýmsar sem enn eiga eflaust eftir að koma fram og ýmsar sem komið hafa fram sem er eftir að taka afstöðu til.
Í 1. gr. þessarar reglugerðar er gert ráð fyrir því að hér verði um hlutafjársjóð útflutningsgreina að ræða. Sumir hafa gert athugasemd við það og telja það of vítt og að þetta ætti frekar að tengjast sjávarútveginum einum. Aðrir telja það of þröngt og telja að þarna þurfi að koma til ýmis önnur fyrirtæki. Hér er farin millileið og þetta verður reyndar að lesa með 12. gr. í þessari reglugerð þar sem eru sett ákveðin skilyrði fyrir því að sjóðurinn megi koma inn í fyrirtæki. Meginskilyrðið er að þarna sé um að ræða meginstoð atvinnulífs í viðkomandi byggðarlagi og það út af fyrir sig þrengir þetta á hinn mátann mjög.
Það er gert ráð fyrir því að sjóðurinn taki þátt í fjárhagslegri endurskipulagningu útflutningsgreina með kaupum á hlutabréfum í starfandi fyrirtækjum og þátttöku í stofnun nýrra fyrirtækja er taki við starfsemi eldri útflutningsfyrirtækja. Þetta verður líka að lesa með grein síðar í þessum drögum, 12. gr. sem ég kem að síðar.
Eitt mjög stórt atriði er hvernig stjórn svona sjóðs skuli skipuð. Gert er ráð fyrir því í frv. að um sé að ræða þriggja manna stjórn. Nú er að sjálfsögðu afar mikilvægt að í þessa stjórn veljist annars vegar ekki menn sem hafa fjárhagslegra hagsmuna að gæta persónulega og ekki þeir sem tengjast fyrirtækjum sem hafa fjárhagslegra hagsmuna að gæta. Hins vegar þurfa það að vera menn sem hafa góða yfirsýn yfir ástand og horfur í þessum atvinnugreinum. Ég vil bara
nefna sem dæmi að sjálfur teldi ég mjög æskilegt að þarna væri maður frá Byggðastofnun. Byggðastofnun kemur eflaust til með að hafa stórra hagsmuna að gæta í starfsemi þessa sjóðs því að það er margt sem bendir til þess að Byggðastofnun kunni að þurfa að breyta verulegum skuldum í hlutafé í gegnum sjóðinn. Í þessum drögum eins og stendur núna er ekki gert ráð fyrir neinum tilnefningum. Það var í fyrri drögum og komu fram mjög ákveðnar athugasemdir við það, en vitanlega verður stjórnin ekki skipuð án víðtæks samráðs við aðila sem að þessu koma.
Í 6. gr. eins og hún stendur núna segir: ,,Stjórnarmaður skal ekki taka þátt í meðferð máls er varðar fyrirtæki ef hann situr í stjórn eða er starfsmaður þess.`` Þetta þrengir vitanlega afar mikið að þessar tvær málsgreinar verða að skoðast saman. Ég tek það skýrt fram að ég hef ekkert á móti því að tilnefningar komi ef menn geta verið sammála um að þær nái þessum víðtæku skilyrðum sem verður að setja. Þess vegna hafa menn heldur í síðari drögum horfið frá því.
Hér er gert ráð fyrir að þessi sjóður tengist Byggðastofnun en hafi þó sjálfstæðan fjárhag. Um það hefur m.a. verið rætt hvort hann eigi að vera alger hluti af Byggðastofnun. Menn hafa sagt í því sambandi að þarna þurfi langtum fleira að koma að, sjóðir eins og Fiskveiðasjóður, kannski Iðnlánasjóður í einhverjum tilfellum, bankar, og þess vegna ekki eðlilegt að hann sé hluti af einum af þeim sjóðum sem muni þurfa að aðstoða í þessu sambandi.
Ég hef þegar lýst þeim skilyrðum sem standa í 6. gr., sem sagt að hann megi ekki vera tengdur fyrirtæki sem á hagsmuna að gæta. Hann skuli þá víkja ef um slíka hagsmuni er að ræða.
Þá er gert ráð fyrir því í 7. gr. að hlutafjársjóður Byggðastofnunar afli fjár með sölu hlutdeildarskírteina til lánastofnana og annarra kröfuhafa fyrirtækja sem sækja um aðstoð sjóðsins, enda verði andvirði þeirra notað til skuldbreytinga samkvæmt reglum sjóðsins. Einnig er stjórn sjóðsins heimilt að gefa sveitarfélögum, sjóðum, fyrirtækjum og einstaklingum kost á að kaupa hlutdeildarskírteini. Það er opið hverjir geta komið þarna inn í. Ástæðan fyrir því að hið fyrra er talið fyrst er að við teljum að þarna sé tæki fyrir viðskiptabanka og sjóði að koma að endurskipulagningu fyrirtækis án þess að gerast beinir hluthafar sjálfir sem þeir hafa mjög takmarkaða heimild til. Við teljum að frá slíkum stofnunum eigi að koma meginhluti þess fjármagns sem fer í hlutafjáraukningu hjá fyrirtækjum sem eru þá í viðskiptum við viðkomandi stofnun. Raunar teldi ég þetta hvað mikilvægast í þessu sambandi. Ég sé ekki að takist að útvega nauðsynlegt fjármagn, sem getur orðið æðimikið, án þess að viðskiptabankar, fjárfestingarsjóðir og alveg sérstaklega Byggðastofnun komi að því máli.
Í frv. er gert ráð fyrir því að 600 millj. séu með ríkisábyrgð og það stendur óbreytt. Það vekur upp ýmsar spurningar. Nú er alveg ljóst að 600 millj. eru hvergi nærri nóg og hugmyndin hefur því verið sú að
hafa tvenns konar skírteini, A og B, A með ríkisábyrgð og B án ríkisábyrgðar. Ríkisábyrgðin nær til greiðslu andvirðis hlutafjárskírteina með verðtryggingu sem er gert ráð fyrir að sé í SDR eða gjaldeyristrygging í þessari reglugerð. Þá er spurningin hverjir ættu að hafa forkaupsrétt að ríkistryggðum hlutdeildarskírteinum. Eiga t.d. viðskiptabankar og sjóðir sem eru fyrir með trygg veð að hafa aðgang að slíkum skírteinum? Þannig stendur það nú. Við þetta hafa komið ýmsar athugasemdir. Þá er í raun og veru verið að bjóða þessum aðilum að breyta veðum í frystihúsum og ýmsu slíku, sem eru sögð trygg en eru ekki trygg t.d. ef afli fæst ekki til húsanna, í enn betri veð, þ.e. með ríkisábyrgð. Mér finnst, ég vil lýsa því hér, að þetta þurfi að skoðast mjög vandlega og er spurning hvort á slíkum skírteinum, A-skírteinum á að vera full ríkisábyrgð, á allri upphæðinni, eða hvort ekki má hafa hana að hluta þó að B-skírteini verði ekki með ríkisábyrgð.
Eins og ég sagði áðan er gert ráð fyrir að um gengistryggingu verði að ræða. Það er gert ráð fyrir að öll hlutdeildarskírteini verði skráð á nafn og geti gengið kaupum og sölum. Ég var búinn að nefna áður að miðað væri við SDR í gengistryggingunni. Það er gert ráð fyrir að greiða að fullu og öllu upp hlutdeildarskírteini innan tíu ára frá kaupdegi hlutdeildarskírteina. Það er
vitanlega álitamál hvort á að vera að binda í reglugerð að þau skuli greiðast upp innan ákveðins tíma. Ef þeir finnast sem vilja eiga skírteini áfram geta þeir vitanlega notað það fjármagn til að kaupa ný skírteini.
Síðan er grein sem er afar mikilvæg. Hún greinir frá þeim skilyrðum sem setja yrði við þátttöku hlutafjársjóðsins.
Í fyrsta lagi stendur svo í reglugerðinni enn að viðkomandi fyrirtæki teljist vera meginuppistaða í útflutningi og atvinnurekstri á viðkomandi starfssvæði samkvæmt reglum sjóðsstjórnar. Það þarf vitalega að skilgreina hvað telst vera meginuppistaða. Er það t.d. að fyrirtæki í sjávarútvegsplássum taki við meira en helmingi af afla eða eitthvað þess háttar? Þetta hefur verið rætt töluvert við forstjóra Byggðastofnunar sem hefur sett fram vissar hugmyndir í þessu sambandi. Er rétt að segja meginuppistaða eða mikilvægt fyrirtæki í útflutnings- og atvinnurekstri á viðkomandi starfssvæði? Hér stendur enn þá ,,megin``. Það er gert til að takmarka þetta meira en annars yrði.
Í öðru lagi að sýnt þyki að fyrirtæki búi við jákvæða rekstrarafkomu og viðunandi greiðslustöðu að lokinni endurfjármögnun og fjárhagslegri endurskipulagningu. Að sjálfsögðu þýðir ekkert að fara inn í fyrirtæki nema það sé tryggt, eiginfjárstaðan komin upp í eitthvað sem telst viðunandi, 20--30% jákvæð vil ég leyfa mér að segja o.s.frv. Þetta held ég að sé ljóst atriði.
Inn í þetta getur vitanlega fleira komið eins og t.d. Atvinnutryggingarsjóðurinn með skuldbreytingu og því segir í 3. lið að samhliða hafi tekist með frjálsum samningum, nauðasamningum eða öðrum aðgerðum að gera eiginfjárstöðu viðkomandi fyrirtækis jákvæða
miðað við matsverð fasteigna, véla, tækja og áætlaðs endursöluverðs skipa. Sem sagt: sjóðnum er ekki ætlað sem slíkum að koma inn í fyrirtæki sem eru gjaldþrota. Honum er ekki ætlað að yfirtaka skuldir umfram eignir. Þar verða aðrir aðilar að koma að eins og talið er í þessari grein.
Ég vil nefna að í þessu sambandi hefur verið vakin athygli á því að kannski eigi að setja að skilyrði að gera upp vissar mjög viðkvæmar skuldir hjá fyrirtækjum eins og við lífeyrissjóði. Starfsmenn glata sínum réttindum ef ekki er gert upp við lífeyrissjóði. Það eru kannski ekki afgerandi upphæðir en mjög viðkvæm mál og vitanlega þarf að gæta í þessu sambandi hagsmuna starfsfólks. Launin, ef til gjaldþrots kemur, eru að sjálfsögðu forgangskrafa, en það þarf að gæta slíkra hluta. Það er ekki í þessu eins og stendur nú, en athygli skal vakin á þessu atriði. Það er þá gert ráð fyrir að í kjölfar árangurslausra nauðasamninga eða gjaldþrots fyrirtækja sé hlutafjársjóðnum skylt að taka þátt í stofnun nýrra fyrirtækja með hlutafjárkaupum og þá að sjálfsögðu haft í huga að slík fyrirtæki keyptu hið gjaldþrota fyrirtæki á uppboði og héldu rekstrinum áfram. Ríkissjóði er heimilt að selja hlutafjársjóðnum sína hlutafjáreign og virðist vera sjálfsagt.
Þá er gert ráð fyrir því að hlutabréf skuli boðin til sölu með opinberri auglýsingu eigi síðar en fjórum árum eftir að þau eru keypt. Það er ekki ástæða til þess að hlutafjársjóðurinn sitji með hlutabréf til lengri tíma en nauðsyn krefur og reyndar eðlilegt að hann dragi sig út úr slíkum fyrirtækjum. Því er þetta skilyrði sett.
Þá er gert ráð fyrir að starfsfólki og hluthöfum skuli veittur viss forkaupsréttur eða þeim skuli tilkynnt með hæfilegum fyrirvara að bréfin séu til sölu.
Þá eru greinar sem eru kannski ekki svo umræðu verðar. Það er gert ráð fyrir að stjórn hlutafjársjóðs Byggðastofnunar auglýsi eftir umsóknum um aðstoð til fjárhagslegrar endurskipulagningar útflutningsfyrirtækja, hún aðstoði umsækjendur eftir föngum við upplýsingaöflun o.s.frv. Svo er gert ráð fyrir að hlutafjársjóðurinn sé undanþeginn opinberum gjöldum og sköttum.
Ég hef, herra forseti, rakið öll meginatriði þessara draga að reglugerð um hlutafjársjóð Byggðastofnunar. Eins og ég sagði áðan hafa talsmenn stjórnarandstöðunnar fengið þetta og ég skal með ánægju svara þeim spurningum sem fram koma, en vil að lokum taka fram að að sjálfsögðu þarf slík reglugerð enn mjög að skoðast t.d. af væntanlegri stjórn. Þó að hún hafi verið skoðuð allítarlega bæði af forstjóra Byggðastofnunar og formanni Atvinnutryggingarsjóðs og a.m.k. einum viðskiptabanka eru eflaust fleiri sem þurfa að koma að þessu máli.
En ég skal ekki lengja mál mitt um önnur atriði frv. Þau hafa verið ítarlega rædd og lít ég svo á að það hafi verið fyrst og fremst þetta atriði sem menn vildu ræða nú.