Þorsteinn Pálsson:
Herra forseti. Svar hæstv. fjmrh. var athygli vert. Hann lýsir því m.ö.o. yfir að hér eigi að samþykkja þetta frv. óbreytt með þeim skýru ákvæðum að fiskvinnslufyrirtækin eigi að endurgreiða þetta lán og að ríkissjóður taki það í engu á sig nema þá eftir þriggja ára taprekstur. Ég fullyrði: Ef hér á að stefna í þriggja ára áframhaldandi taprekstur fiskvinnslunnar í landinu, þá verður ekkert fiskvinnslufyrirtæki gangandi. Þetta er yfirlýsing hæstv. fjmrh. Það var eftir því tekið að bæði hæstv. forsrh. og hæstv. sjútvrh. gengu úr þingsalnum meðan sú yfirlýsing var gefin. Þetta er yfirlýsing um það að útreikningar Þjóðhagsstofnunar um afkomu frystihúsanna eru rangir og afkoma vinnslunnar er 4% lakari en þar greinir af því að hæstv. ráðherra neitar um þessa breytingu á lögunum sem er óhjákvæmileg ef ríkisstjórnin ætlar að standa á þeim útreikningum sem liggja fyrir af hálfu Þjóðhagsstofnunar. Þetta eru skilaboðin sem nú eru send út um landið, út til fólksins í sjávarútveginum þegar þessari umræðu lýkur hér í hv. Nd. Og þau skilaboð fylgja með að þegar hæstv. fjmrh. gaf þetta endanlega svar, þá hurfu hæstv. sjútvrh. og hæstv. forsrh. úr þingsalnum.