Verðbréfaviðskipti
Föstudaginn 17. febrúar 1989

     Frsm. minni hl. fjh.- og viðskn. (Matthías Bjarnason):
    Herra forseti. Ég get tekið undir þau orð sem hv. 17. þm. Reykv. sagði hér áðan varðandi það að hlutafélög gætu ekki sjálf annast útboð og það er auðvitað hægt að gera með styttri brtt. þá við 3. umr. Ég sé nú ekki að nefnd, hvorki meiri hl. né minni hl., geti staðið gegn því. Það þyrfti að fella niður tvö orð ,,skal ætíð``. Ef þau falla niður þá getur það verið val fyrirtækjanna sem vildu annast þetta sjálf, en ef þau ekki gera það, þá verður að leita til verðbréfafyrirtækja, banka eða sparisjóða.
    Hæstv. viðskrh. taldi að hér væri um mjög veigamikla breytingu að ræða á frv. ef ekki væri haldið við það að bankar þyrftu að stofna sérstök fyrirtæki til þess að annast verðbréfaviðskipti. Hann nefndi verðbréfaviðskipti stórþjóða eins og í Bandaríkjunum og Japan. Ég held að menn þurfi ekkert að vera að sækja samanburð til þeirra stóru og miklu viðskiptaumsvifa við þetta litla land og þessi takmörkuðu verðbréfaviðskipti sem hér eiga sér stað. Ég sé ekki annað en gott eitt við það að bankarnir annist þessi verðbréfaviðskipti án þess að leggja á þá kvaðir að þurfa að stofna ný fyrirtæki til þess, með sérstakt starfslið í útibúum bankanna vítt og breitt um landið. Þess vegna held ég að sú röksemdafærsla hæstv. ráðherra eigi eiginlega ekki við rök að styðjast.
    Út af 30. gr. vil ég enn einu sinni taka undir athugasemdir Seðlabankans sem sendar voru nefndinni áður en tillaga var send frá ráðherrum í ríkisstjórninni um orðalag 30. gr. eins og það er núna. Seðlabankinn segir eitthvað á þessa leið: Hér á landi hefur bindiskyldu aðeins verið beitt gagnvart innlánsstofnunum, þ.e. viðskiptabönkum, sparisjóðum og innlánsdeildum samvinnufélaga. Víða erlendis er slíku stjórntæki aðeins beitt gagnvart viðskiptabönkum, en margar undantekningar eru þó frá því.
    Seðlabankinn taldi eðlilegt að hafa heimildarákvæði í 30. gr. frv. til staðar: ef telja má starfsemi verðbréfasjóða á einhverjum tíma náskylda starfsemi innlánsstofnana. Ef þetta hefði verið gert þá hefði ég getað samþykkt 30. gr., ef þessu hefði verið bætt við og niður hefði fallið orðið ,,sömu``. Þá hefði enginn ágreiningur verið um þessa 30. gr. En mér finnst að á seinni stigum hafi greinin versnað stórkostlega og ég tek alveg undir orð hv. 17. þm. Reykv. að það er verið að vekja viðleitni þessara verðbréfasjóða að fara inn í innlánsstarfsemi, fara inn á svið innlánsstofnana og með því erum við þá í raun og veru að fjölga þeim enn þá --- og það var nú helst að okkur Íslendinga vantaði fleiri banka ofan á allar aðrar þrengingar. En það er beinlínis verið að gera það með því að fara inn á þessa braut með þessum hætti eins og hér er lagt til.
    Út af orðum hv. 10. þm. Reykn. vildi ég segja að ég var ekki að gagnrýna það að leitað væri til sem flestra og rætt við þá. Það sem ég gagnrýndi í sambandi við meðferð málsins var það að höfundar frv., þeir sem skila frv. í hendur ríkisstjórninni eða viðskrh., standi svo í alls konar stappi við þingnefnd

út af þeirri vinnu sem þeir eru búnir að skila af sér án athugasemda. Það er það sem ég er að gagnrýna en ekki hitt.
    Ég ætla ekki að tefja hér tímann en vil segja það að við, alveg jafnt í minni hl. nefndarinnar sem meiri hl., erum alveg sammála um það að leggja áherslu á það að mikilvægt er að setja löggjöf um verðbréfaviðskipti og verðbréfasjóði. Það eru þarna tiltekin atriði sem ágreiningur er um og hefði verið hægt að leysa og afgreiða þetta frv. nokkurn veginn samhljóða ef til þess hefði verið tekið tillit.